Reykjavíkurborg
Fjölmenningarráð - Fundur nr. 73
==
==
[Fjölmenningarráð - Fundur nr. 73
](/fundargerdir/fjolmenningarrad-fundur-nr-73)
**Fjölmenningarráð**
Ár 2024, þriðjudaginn 10. september var haldinn 73. fundur fjölmenningarráðs Reykjavíkurborgar. Fundurinn var í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl.15.01. Fundinn sátu Magnea Gná Jóhannsdóttir, Helga Margrét Marzellíusardóttir, Monika Gabriela Bereza, Milan Chang, Helga Margrét Marzellíusardóttir. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum með rafrænum hætti með vísan til heimildar í 2. málsl. 4. mgr. 44. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar sbr. 3. mgr. 17. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011: Mouna Nasar. Einnig sat fundinn Elísabet Pétursdóttir og Aleksandra Kozimala.
Joanna Marcinkowska ritaði fundargerð.
**Þetta gerðist:**
Lögð fram svohljóðandi tillaga fjölmenningarráðs:
Lagt er til að fjölmenningaráð samþykki að starfsáætlun fjölmenningarráðs Reykjavíkurborgar, starfsárið 2024- 2025 verði með eftirfarandi hætti; Auk Fjölmenningarþings Reykjavíkurborgar sem haldið verður í maí 2025, verði fjórir fundir fjölmenningarráðs tileinkaðir samstarfi með hagsmunaaðilum og haldnir í hverfum borgarinnar í október, janúar, mars og apríl.
Tillögunni fylgir greinargerð. MSS24090033
Samþykkt.
Fylgigögn
Lagt fram fundardagatal fjölmenningarráðs 2024-2025. MSS22090148
Fylgigögn
Fram fer kynning á verkefninu Ungir leiðtogar. MSS24030087
Fylgigögn
Lögð fram skýrsla mannréttinda- og lýðræðisskrifstofu Reykjavíkurborgar um Fjölmenningarþing 2024. MSS23010211
Fylgigögn
Kynningu um Borgaraþing um málefni barna á aldrinum 0-6 ára, er frestað. MSS24050127
Lögð fram skýrsla OECD, Efnahags- og framfarastofnunar, Skills and Labour Market Integration of Immigrants and their Children in Iceland 2024. MSS24090019
Fylgigögn
**Fundi slitið kl. 15:59**
Magnea Gná Jóhannsdóttir Helga Margrét Marzellíusardóttir
Monika Gabriela Bereza Milan Chang
Mouna Nasr
**PDF útgáfa fundargerðar Fundargerð fjölmenningarráðs 10. september 2024**