Reykjavíkurborg
Íbúaráð Grafarholts og Úlfarsárdals - Fundur nr. 46
==
==
[Íbúaráð Grafarholts og Úlfarsárdals - Fundur nr. 46
](/fundargerdir/ibuarad-grafarholts-og-ulfarsardals-fundur-nr-46)
**Íbúaráð Grafarholts og Úlfarsárdals**
Ár 2024, miðvikudagurinn, 18. september, var haldinn 46. fundur íbúaráðs Grafarholts og Úlfarsárdals. Fundurinn var haldinn í bókasafninu í Úlfarsárdal og hófst kl. 16.33. Eftirtaldir fulltrúar voru viðstaddir: Guðný Maja Riba, Björn Ingi Björnsson, Ellen Ellertsdóttir, Herdís Björnsdóttir, Heiða Björk Júlíusdóttir og Stefán Pálsson. Fundinn sátu einnig Trausti Jónsson og Heimir Snær Guðmundsson sem ritaði fundargerð.
**Þetta gerðist:**
Fram fer kynning á kynning á lýsingu skipulagsgerðar og drög að tillögu að breytingu Aðalskipulags Reykjavíkur 2040 - Stakar byggingar á opnum svæðum í Hólmsheiði og austanverðum Úlfarsárdal. USK24060311
Haraldur Sigurðsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
Fylgigögn
Fram fer umræða um Aðalskipulagi Reykjavíkur 2040 í Grafarvogi og Úlfarsárdal. MSS23090077
Haraldur Sigurðsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
Fylgigögn
Fram fer kynning á Hverfisskipulagi í Grafarholti og Úlfarsárdal. MSS23090077
Ævar Harðarson tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
Fylgigögn
Fram fer umræða um umferð fjórhjóla á Skyggnisbraut. MSS23090067
Samþykkt að fela formanni að afla upplýsinga um starfsemi Safaríferða í kjölfar kvartana íbúa.
Fram fer umræða um málefni hverfisins. MSS22090034
**Fundi slitið kl. 18:30**
Guðný Maja Riba Stefán Pálsson
Herdís Björnsdóttir Björn Ingi Björnsson
Ellen Ellertsdóttir Heiða Björk Júlíusdóttir
**PDF útgáfa fundargerðar Íbúaráð Grafarholts og Úlfarsárdals 16. september 2024 - prentvæn útgáfa**