Hvalfjarðarsveit

Mannvirkja- og framkvæmdanefnd 75. fundur

01.10.2024 - Slóð - Skjáskot

    = Mannvirkja- og framkvæmdanefnd =

Dagskrá Ómar Örn Kristófersson situr fundinn á Teams. === 1.Melahverfi III - Gatnaframkvæmd === 2409030 Í framkvæmdaáætlun Hvalfjarðarsveitar fyrir árið 2024 er lagt til að farið verði í hönnun og framkvæmd við gatnagerð í Melahverfi III samkv. samþykktu deiliskipulagi. Mannvirkja- og framkvæmdanefnd leggur til við sveitastjórn að fela verkefnastjóra framkvæmda og eigna að leita eftir tilboðum í hönnunar og útboðsgögn, kostnaðaráætlun, magntökuskrá og jarðvegsskýrslu. Jafnframt er samþykkt að leita tilboða hjá fimm verkfræðistofum þ.e. Eflu, Verkís, COWI, Hnit og VSÓ í verkfræðihönnun gatnaframkvæmda Melahverfis III. === 2.Krossland - Opið svæði === 2409033 Umfjöllun um opin svæði / leiksvæði í Krosslandi. Farið yfir stöðu málsins, verkefnastjóra framkvæmda og eigna og formanni nefndarinnar falið að vinna málið áfram. === 3.Göngu og reiðhjólastígar í sveitarfélaginu === 2001040 Umfjöllun um göngu- og reiðhjólastíga í Hvalfjarðarsveit. Mannvirkja- og framkvæmdanefnd leggur til við sveitastjórn að farið verði í áframhaldandi stígagerð við Eiðisvatn á árinu 2025 og verkefnastjóra framkvæmda og eigna verði falið vinna að gerð verðkönnunar fyrir verkið. === 4.Íþróttahús - Heiðarborg === 2001042 Verkstaða framkvæmda við byggingu íþróttahúss við Heiðarborg. Verkefnastaða og framkvæmd verksins kynnt. Helgi Pétur Ottesen kemur inn á fundinn. === 5.Viðhalds- og framkvæmdaáætlun 2025-2028 === 2409031 Viðhalds- og framkvæmdáætlun 2025-2028. Mannvirkja- og framkvæmdanefnd samþykkir að leggja viðhalds- og framkvæmdaáætlun fyrir árin 2025-2028 fram til fyrri umræðu í sveitastjórn. Ómar Örn Kristófersson víkur af fundi. === 6.Viðhalds- og framkvæmdaáætlun 2024-2027 === 2309051 Verkefnastjóri framkvæmda og eigna fer yfir verkstöðu viðhalds- og framkvæmdaáætlunar 2024. Verkefnastjóri framkvæmda og eigna fór yfir verkstöðu framkvæmda- og viðhaldsáætlunar 2024. === 7.Samstarf slökkviliða á Vesturlandi. === 2302012 Skýrsla frá Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi. Skýrslan framlögð. Fundi slitið - kl. 18:30.

Framleitt af pallih fyrir gogn.in