Grindavíkurbær
Bæjarráð - Fundur 1667
**1667. fundur bæjarráðs Grindavíkur haldinn í bæjarstjórnarsal, þriðjudaginn 8. október 2024 og hófst hann kl. 14:00.**
Fundinn sátu:
Hjálmar Hallgrímsson, formaður, Helga Dís Jakobsdóttir var fjarverandi en í staðinn sat fundinn Sævar Þór Birgisson, varamaður, Hallfríður G Hólmgrímsdóttir, aðalmaður og Ásrún Helga Kristinsdóttir, áheyrnarfulltrúi.
Einnig sátu fundinn:
Jón Þórisson, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs, Fannar Jónasson, bæjarstjóri og Guðjón Bragason, lögfræðingur.
Fundargerð ritaði: Jón Þórisson, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.
Dagskrá:
**1. Varðveisla minja og aðgengi ferðamanna - Rammaskipulag - 2410007**
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Hafnarstjóri, sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs, sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs og Skarphéðinn Berg Steinarsson. Frá Batteríinu: Davíð Ingi Bustion (Teams) og Sigurður Einarsson (Teams).
Lögð fram verkefnislýsing og áætlun um hönnun og ráðgjöf frá Batteríinu arkitektum.
Bæjarráð felur sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs að vinna málið áfram með fyrirvara um fjármögnun verkefnisins.
**2. Aðstaða UMFG til æfinga og keppni - 2404147**
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Hafnarstjóri, sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs, sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs og Skarphéðinn Berg Steinarsson.
Lagður fram leigusamningur við Breiðablik vegna aðstöðu í Smáranum með gildistíma 1. okt. 2024 til 31. maí 2025.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að undirrita samninginn.
**3. Málefni fatlaðs fólks - Samningar um þjónustuúrræði - 2410001**
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Hafnarstjóri, sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs, sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs og Skarphéðinn Berg Steinarsson.
Lagt fram minnisblað frá sviðsstjóra félagsþjónustu- og fræðslusviðs, dags. 1. október 2024.
Bæjarráð felur bæjarstjóra og sviðsstjóra félagsþjónustu- og fræðslusviðs að ræða við sveitarfélögin á Suðurnesjum um aðkomu Grindavíkurbæjar að þessum þjónustuúrræðum á árinu 2025.
**4. Hafnasambandsþing 2024 - 2409032**
Gestur fundarins undir þessum dagskrárlið: Hafnarstjóri.
Hafnasamband Íslands boðar til 44. hafnasambandsþings sem haldið verður í Hofi á Akureyri, dagana 24. og 25. október 2024.
Grindavík á skv. reglum Hafnasambandsins 5 fulltrúa.
Bæjarráð samþykkir að fari 3 fulltrúar frá Grindavíkurbæ á hafnarsambandsþingið.
**5. Hafnasambandsþing 2026 - 2409036**
Gestur fundarins undir þessum dagskrárlið: Hafnarstjóri.
Lögð fram fyrirspurn um hvort Grindavíkurbær haldi hafnasambandsþing haustið 2026 ásamt Suðurnesjabæ og Reykjaneshöfn.
Bæjarráð tekur jákvætt í erindið.
**6. Fjárhagsáætlun 2025-2028 - Grindavíkurbær og stofnanir - 2409018**
Lagt fram umræðuskjal um tekjustofna Grindavíkurbæjar á árinu 2025.
Farið yfir samskipti við framkvæmdanefnd um fasteignagjöld á árinu 2025 og fleiri tekjuforsendur fjárhagsáætlunar fyrir árið 2025.
**7. Tryggingar á vélum og verkfærum innan Grindavíkur - 2409030**
Lagður fram tölvupóstur frá Grindinni trésmiðju vegna tryggingamála, dags. 16.09.2024.
Bæjarráð lýsir undrun sinni yfir afstöðu tryggingafélaga sem lýst er í erindinu og telur þetta ástand óviðunandi við þá uppbyggingu sem þegar er hafin í Grindavík og takmarkar möguleika fyrirtækja til reksturs í bæjarfélaginu.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að ræða við framkvæmdanefndina um tryggingamál í Grindavík.
**8. Leit á vettvangi vinnuslyss - 2410005**
Borist hefur erindi frá lögreglustjóranum á Suðurnesjum vegna vettvangs vinnuslyss við Vesturhóp 26.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að ræða við framkvæmdanefndina um framhald málsins.
**9. Aðstaða fyrir lögreglu í Grindavík - 2410006**
Borist hefur erindi frá embætti lögreglustjórans á Suðurnesjum vegna aðstöðu fyrir lögregluna næstu mánuði. Horft er til þess að fá húsnæði Bókasafns Grindavíkur til afnota.
Bæjarráð samþykkir erindið.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 16:20.
Bæjarráð / 8. október 2024
[Fundur 1667](/v/27370)
Bæjarráð / 17. september 2024
[Fundur 1666](/v/27369)
Bæjarstjórn / 24. september 2024
[Fundur 577](/v/27354)
Bæjarráð / 10. september 2024
[Fundur 1665](/v/27342)
Bæjarráð / 3. september 2024
[Fundur 1664](/v/27335)
Bæjarstjórn / 27. ágúst 2024
[Fundur 576](/v/27327)
Bæjarstjórn / 21. ágúst 2024
[Fundur 575](/v/27316)
Bæjarráð / 14. ágúst 2024
[Fundur 1663](/v/27305)
Bæjarstjórn / 23. júlí 2024
[Fundur 574](/v/27293)
Bæjarstjórn / 2. júlí 2024
[Bæjarstjórn nr. 573](/v/27284)
Bæjarstjórn / 25. júní 2024
[Fundur 572](/v/27283)
Bæjarstjórn / 11. júní 2024
[Fundur 571](/v/27265)
Bæjarstjórn / 3. júní 2024
[Fundur 570](/v/27264)
Bæjarstjórn / 30. maí 2024
[Fundur 569](/v/27263)
Bæjarstjórn / 21. maí 2024
[Fundur 568](/v/27262)
Bæjarstjórn / 7. maí 2024
[Fundur 567](/v/27261)
Skipulagsnefnd / 3. júní 2024
[Fundur 133](/v/27259)
Skipulagsnefnd / 8. maí 2024
[Fundur 132](/v/27249)
Skipulagsnefnd / 6. nóvember 2023
[Fundur 128](/v/27248)
Bæjarstjórn / 30. apríl 2024
[Fundur 566](/v/27205)
Bæjarstjórn / 23. apríl 2024
[Fundur 565](/v/27194)
Bæjarstjórn / 17. apríl 2024
[Fundur 564](/v/27184)
Skipulagsnefnd / 10. apríl 2024
[Fundur 131](/v/27169)
Bæjarstjórn / 4. apríl 2024
[Fundur 562](/v/27168)
Bæjarstjórn / 10. apríl 2024
[Fundur 563](/v/27163)
Bæjarstjórn / 26. mars 2024
[Fundur 561](/v/27138)
Skipulagsnefnd / 25. mars 2024
[Fundur 130](/v/27133)
Skipulagsnefnd / 25. mars 2024
[Fundur 130](/v/27131)
Bæjarstjórn / 19. mars 2024
[Fundur 560 ](/v/27114)
Bæjarstjórn / 12. mars 2024
[Fundur 559](/v/27096)