Reykjavíkurborg

Endurskoðunarnefnd - Fundur nr. 315

16.12.2024 - Slóð - Skjáskot

==

Endurskoðunarnefnd - Fundur nr. 315 Endurskoðunarnefnd Ár 2024, mánudaginn 16. desember var haldinn 315. fundur endurskoðunarnefndar Reykjavíkurborgar. Fundurinn var haldinn í Guðrúnartúni 1 og hófst kl. 10:07. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum: Lárus Finnbogason, Einar S Hálfdánarson, Sigrún Guðmundsdóttir og Sunna Jóhannsdóttir. Jafnframt tók sæti á fundinum Ingunn Ólafsdóttir, starfandi innri endurskoðandi. Fundarritari var Kristín Henley Vilhjálmsdóttir. Þetta gerðist: Þetta gerðist: Lögð fram orðsending Innri endurskoðunar og ráðgjafar varðandi viðbrögð A hluta og samstæðu Reykjavíkurborgar vegna eftirfylgni endurskoðunarnefndar með ábendingum ytri endurskoðenda. IER24100011 Kristín Henley Vilhjálmsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið. Fylgigögn Lögð fram drög að innri endurskoðunaráætlun Faxaflóahafna sf. fyrir tímabilið 2025-2026. IER24030030 Ingunn Ólafsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið. Samþykkt og vísað til hafnarstjórnar. Lögð fram drög að innri endurskoðunaráætlun Malbikunarstöðvarinnar Höfða hf. fyrir tímabilið 2025-2026. IER24100004 Ingunn Ólafsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið. Frestað. Lögð fram skýrsla regluvarðar Reykjavíkurborgar fyrir tímabilið 1. febrúar 2023 – 31. janúar 2024. IER24060004 Lagt fram svar mannauðs- og starfsumhverfissviðs Reykjavíkurborgar dags. 02.12.2024 við fyrirspurn endurskoðunarnefndar dags. 02.09.2024 um veikindahlutfall starfsfólks Reykjavíkurborgar á tímabilinu 2021-2024. IER24080015 Fram fer umræða um starfsskýrslur endurskoðunarnefndar 2023-2024. IER24080012 Frestað. Fundi slitið kl. 12:17 Lárus Finnbogason Einar S. Hálfdánarson Sigrún Guðmundsdóttir Sunna Jóhannsdóttir PDF útgáfa fundargerðar Fundargerð endurskoðunarnefndar 16.12.2024

Framleitt af pallih fyrir gogn.in