Dalabyggð

Umhverfis- og skipulagsnefnd Dalabyggðar - 154

04.03.2025 - Slóð - Skjáskot

    **1. 2308002 - Deiliskipulag í Búðardal **

|Nefndin fór yfir athugasemdir og fól skipulagsfulltrúa að fullvinna breytingar og funda með eigendum þar sem það á við og gera skipulagið tilbúið til afgreiðslu á næsta fundi nefndarinnar.| [1.90 Deiliskipulagsuppdráttur A02.12.2024..pdf]( displaydocument.aspx? itemid=F3qFCeDIy02naJVwGCPBiw1&meetingid=kPtCwkxRrEGB1MycR5YEA1) [1.90 Deiliskipulagsuppdráttur B02.12.2024..pdf]( displaydocument.aspx? itemid=rZ3kPr0N8kufZENJchbdHw1&meetingid=kPtCwkxRrEGB1MycR5YEA1) 2. 2301065 - Ljárskógarbyggð |Nefndin samþykkir framlagða tillögu skv. 3. mgr. 41. greinar Skipulagslaga, með eftirfarandi breytingum:|

  1. Við framlagt deiliskipulag verði bætt tveimur íbúðarhúsalóðum.
  2. Í athugasemdum við auglýsta tillögu kemur fram að endurskoðun friðunarákvæða Breiðafjarðar standi yfir og geti það haft áhrif á kvaðir á eigendur þeirra lóða sem til verða. 3.Nefndin tekur undir með tillögu Glaðs um að gera ráð fyrir reiðvegi um fjöru, í norðurátt frá réttinni, inn að fjarðarbotni. 3. 2502011 - Beiðni um framlengingu á stöðuleyfi fyrir vindmælingarmastri |Nefndin bendir á að rúm 2 ár eru frá því að síðast féll úr gildi framlenging á stöðuleyfi. Ljósabúnaður hefur ekki verið í lagi, nema hluta þess tíma. Hætta getur skapast af ljóslausu mastri og nefndin telur að nauðsynlegt sé að fjarlægja þau hið fyrsta.| Nefndin samþykkir því ekki áframhaldandi stöðu mastranna og beinir staðfestingu á því til sveitarstjórnar. 4. 2312007 - Ólafsdalur - breyting á aðalskipulagi og breyting á deiliskipulagi |Nefndin ræddi fram komnar athugasemdir og drög að viðbrögðum. Skipulagsfulltrúa falið að klára viðbrögð í anda umræða á fundinum og leggja erindið þannig fyrir sveitarstjórn.| 5. 2502012 - Umsókn um byggingarleyfi að Lækjarhvammi 22 |Nefndin samþykkir erindið og felur byggingarfulltrúa að afla nauðsynlegra gagna og að veita leyfið.|
Framleitt af pallih fyrir gogn.in