Svalbarðsstrandarhreppur
Umhverfis & Atvinnumálanefnd
**Fundargerð**
- fundur umhverfisnefndar Svalbarðsstrandarhrepps 2018-2022, haldinn í ráðhúsinu Svalbarðseyri, mánudaginn 25. apríl 2022 10:00.
**Fundinn sátu** **:** Elísabet Ásgrímsdóttir, Harpa Barkardóttir, Eva Sandra Bentsdóttir og .
**Fundargerð ritaði:** ** ** Björg Erlingsdóttir, Sveitarstjóri.
**Dagskrá:**
|
|
**1. ** |
|
**2022 Vinnuskóli - 2203007**
|
||
|
Farið yfir undirbúning Vinnuskóla
|
||
|
*Flokksstjórar mæta til vinnu eftir næstu mánaðarmót. Auglýst hefur verið eftir starfsmönnum á heimasíðu hreppsins. Boðið verður uppá ýmis námskeið yfir sumarið. Umhverfis- og atvinnumálanefnd leggur til við sveitarstjórn að laun til starfsmanna verði eftirfarandi: *
Laun með orl.
7. bekkur 760
8. bekkur 1,106
9. bekkur 1,451
10.bekkur 1,796
|
||
|
*Samþykkt*
|
|
|
||
|
|
|
**2. ** |
|
**Umhverfisdagur 2022 - 2202010**
|
||
|
Umhverfisvika verður haldin 18.-24. maí
|
||
|
*Umhverfisvika verður haldin 17.-24. maí og dagskrá kynnt á heimasíðu Svalbarðstrandarhrepps og borin í heimahús. Íbúar eru hvattir til þess að taka þátt og taka til hendinni í sínu nærumhverfi.*
|
||
|
*Samþykkt*
|
|
|
||
|
|
|
**3. ** |
|
**Loftlagsstefna Svalbarðsstrandarhrepps - 2108007**
|
||
|
Drög að stefnu lög fram.
|
||
|
*Drög að stefnu lögð fram*
|
||
|
*Samþykkt*
|
|
|
||
|
|
|
**4. ** |
|
**Gámasvæðið og umgengni um það - 1610103**
|
||
|
Farið yfir stöðu mála á gámasvæði
|
||
|
*Umhverfis- og atvinnumálanefnd leggur til við sveitarstjórn að klárað verði að þétta girðingar á gámasvæðinu og hugað að því að opnunartími sé ákveðinn og takmarkaður. *
Umhverfis og atvinnumálanefnd leggur til að fundin verði lausn á hirðingu á almennu og heimilissorpi á frístundasvæðum í samstarfi við félög húseigenda. Kort af gámasvæði á Svalbarðseyri og leiðbeiningar um sorphirðu verði þýdd á erlend tungumál og borið í hús.
|
||
|
*Samþykkt*
|
|
|
||
|
|
|
**5. ** |
|
**Verkefni sumarsins 2022 - opin svæði - 2204009**
|
||
|
Farið yfir verkefnalista
|
||
|
*Sveitarstjórn á eftir að taka ákvörðun um lagningu göngu- og hjólastígs milli Smáratúns og Laugartúns. Á næstu dögum verða númeralausar bifreiðar merktar og síðar fjarlægðar. Kerfill verður hreinsaður eins og fyrri sumur og gamlar úrsér gengnar girðingar fjarlægðar. Vinnuskóli sinnir að venju umhirðu og blómaskreytingum á Svalbarðseyri. Umhverfi göngu- og hjólastígs í Vaðlabyggð verður lagað á næstu vikum. *
|
||
|
*Samþykkt*
|
|
|
||
|
|
|
**6. ** |
|
**Matjurtargarðar til leigu að sumri - 2005002**
|
||
|
Matjurtargarðar á Svalbarðseyri
|
||
|
*Aðstaða í matjurtargarði sveitarfélagsins er laus til umsóknar og verða auglýstir á næstu dögum. Nefndin hvetur íbúa til að tryggja sér reit til ræktunar á grænmeti. *
|
||
|
*Samþykkt*
|
|
|
||
|
|
|
**7. ** |
|
**Hundagerði á Svalbarðseyri - 1905010**
|
||
|
Hundagerði á Svalbarðseyri
|
||
|
*Umhverfis- og atvinnumálanefnd minnir eigendur hunda að á svæðinu fyrir norðan Sundlaugina er búið að koma upp afmörkuðu svæði þar sem hægt er að gefa hundum færi á að leika lausum hala. *
|
||
|
*Samþykkt*
|
|
|
||
|
|
|
**8. ** |
|
**Göngu- og hjólastígur áfangi 2 - 2201005**
|
||
|
Farið yfir framkvæmdir vetursins 2020
|
||
|
*Landeigendum hefur verið sendur póstur og óskað samþykkis þeirra fyrir hönnun á leið göngustíg frá Vaðlaheiðargöngum og að hreppsmörkum við Garðsvík. Vinna er hafin hönnun leiðarinnar og staðfesting á stuðningi frá Vegagerð árið 2026/2027 eða fyrr ef hreppurinn er tilbúinn með hönnun og fjármögnun. *
|
||
|
*Samþykkt*
|
|
|
||
|
|
|
**9. ** |
|
**Umhverfis- og atvinnumál í lok tímabils - 2204010**
|
||
|
Farið yfir tölur um atvinnuþátttöku
|
||
|
*Tölur Vinnumálastofnunar um stöðu atvinnumála bera með sér að atvinnuleysi er skráð undir 3% vorið 2022. Vonir eru bundnar við gott sumar í ferðaþjónustu og næg atvinna virðist vera í boði fyrir íbúa. Sem fyrr er atvinnuframboð einhæft.*
|
||
|
*Samþykkt*
|
|
|
||
|
** **
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 12:00.