Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum
779. stjórnarfundur SSS 24. maí 2022
= 779. stjórnarfundur SSS 24. maí 2022 =
Árið 2022, er fundur haldinn í stjórn Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum miðvikudaginn 24. maí, kl. 8:00 í fundarsal Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum, Skógarbraut 945, 262 Reykjanesbæ.
Mætt eru: Laufey Erlendsdóttir, Hjálmar Hallgrímsson, Ingþór Guðmundsson, Jóhann Friðrik Friðriksson og Berglind Kristinsdóttir sem jafnframt ritaði fundargerð.
Ingþór Guðmundsson setti fund og bauð fundarmenn velkomna á fundinn.
**Dagskrá:** Ársreikningur Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum 2021.
Endurskoðandi Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum, Kristján Ragnarsson fór yfir ársreikning S.S.S. vegna ársins 2021 en áritun endurskoðenda er fyrirvaralaus.
Tap félagsins á árinu samkvæmt rekstrarreikningi nam 1.357.590 en rekstrarhagnaður fyrir skatta og gjöld var 3.430.707,-
Á Sambandi sveitarfélaga á Suðurnesjum hvílir framtíðarlífeyriskuldbinding á Brú vegna Brunavarna Suðurnesja. Framkvæmdastjóra falið að vinna að leiðréttingu í samvinnu við Brunavarnir Suðurnesja og aðildarsveitarfélög.
Skuld Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja við S.S.S. hefur hækkað á milli ára og er nú komin í kr. 48.260.466,- Stjórn S.S.S. leggur til að aðildarsveitarfélög H.E.S. greiði upp skuld H.E.S. við S.S.S. og geri ráð fyrir því í næstu fjárhagsáætlunum sínum. Mikilvægt er að rekstur H.E.S. sé sjálfbær til framtíðar og er stjórn H.E.S. hvött til að hafa það að leiðarljósi.
Stjórn Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum samþykkir reikninginn samhljóða
*.* *2. Bréf dags. 05.05.2022 frá Innviðaráðuneytinu, v. Viðauki fyrir 1. júní nk. 20.gr. reglugerðar 1212/2015*.
Lagt fram.
3.
*Aðalfundarboð Fisktækniskóla Íslands.*
a) Tilnefning í stjórn Fisktækniskóla Íslands
*.*
Stjórn S.S.S. tilnefnir Hjálmar Hallgrímsson sem aðalmann í stjórn Fisktækniskóla Íslands og Berglindi Kristinsdóttur til vara.
*4. Vorfundur Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum, fundargerð dags. 29.04.2022.*
Lagt fram.
5.
*Fundargerð Þekkingarseturs Suðurnesja nr. 42, dags. 20.04.2022.*
Lagt fram.
*6. Tölvupóstur frá nefndarsviði Alþings dags. 23.05.2022. Beiðni um umsögn um frumvarp til laga um sveitarstjórnarlög, 571. mál. https://www.althingi.is/altext/152/s/0810.html*
Lagt fram.
*7. Tölvupóstur frá nefndarsviði Alþingis dags. 23.05.2022. Beiðni um umsögn um frumvarp til laga um skipulagslög, 573. mál. https://www.althingi.is/altext/152/s/0812.html*
Lagt fram.
*8. Bréf dags. 13.05.2022 frá Keili, v. framsal hlutar í Keili, miðstöð vísinda, fræða og atvinnulífs.*
Stjórn S.S.S. samþykkir erindið og felur framkvæmdastjóra að undirrita samninginn fyrir hönd S.S.S.
9.
*Undirbúningur vegna aðalfundar S.S.S. 2022.*
Aðalfundur S.S.S. verður haldinn daganna 16.-17.september. Fundurinn verður haldinn í sveitarfélaginu Vogum. Lagt er til að sveitarstjórnarfólki sé kynnt starfsemi og verkefni S.S.S. á aðalfundinum.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 9:00.