Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum
778. stjórnarfundur SSS 20. apríl 2022
= 778. stjórnarfundur SSS 20. apríl 2022 =
Árið 2022, er fundur haldinn í stjórn Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum miðvikudaginn 20. apríl, kl. 8:00 í fundarsal Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum, Skógarbraut 945, 262 Reykjanesbæ.
Mætt eru: Laufey Erlendsdóttir, Hjálmar Hallgrímsson, Ingþór Guðmundsson, Kolbrún Jóna Pétursdóttir og Berglind Kristinsdóttir sem jafnframt ritaði fundargerð.
Ingþór Guðmundsson setti fund og bauð fundarmenn velkomna á fundinn.
**Dagskrá:**
1.
*Vorfundur Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum.* Búið er að senda út fundarboð og undirbúa dagskrá í samvinnu við framkvæmdastjóra Kölku. Yfirskrift fundarins er, í átt að hringrásarhagkerfi. **Dagskrá:**
- Setning fundar – Ingþór Guðmundsson formaður stjórnar Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum.
- Yfirvofandi breytingar í hnotskurn. Hverju þarf að breyta og hvenær? Steinþór Þórðarson, framkvæmdastjóri Kölku
- Hugleiðingar og spjall um hringrásarhagkerfið. Freyr Eyjólfsson, verkefnastjóri hringrásarhagkerfisins hjá Sorpu.
- Þáttur Úrvinnslusjóðs. Ólafur Kjartansson, framkvæmdastjóri Úrvinnslusjóðs.
- Fyrirspurnir og umræður. Í pallborði sitja auk fyrirlesara þau Anna Karen Sigurjónsdóttir, sjálfbærnifulltrúi Reykjanesbæjar og Önundur Jónasson formaður stjórnar Kölku. Stjórn S.S.S. minnir sveitarstjórnarfólk á að skrá sig á fundinn.
2.
*Erindi frá Dómsmálaráðuneytinu, dags. 21.03.2022 v. endurskipulagningu sýslumannsembætta.* Lagt fram.
3.
*Tölvupóstur dags. 23.03.2022 frá Reykjanesbæ, vegna fagháskólanáms í leikskólakennarafræðum við HÍ.* Stjórn S.S.S. þakkar fyrir erindið og felur framkvæmdastjóra að afla frekari upplýsinga frá Keili.
4.
*Tölvupóstur dags. 08.04.2022 frá nefndarsviði Alþingis, umsögn um tillögu til þingsályktunar um fjármál fyrir árin 2023-2027, 513 mál.* [https://www.althingi.is/altext/pdf/152/s/0735.pdf](https://www.althingi.is/altext/pdf/152/s/0735.pdf)
Lagt fram.
*Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 8:45.*