Grindavíkurbær
Innviðanefnd - Fundur 6
**6. fundur innviðanefndar haldinn í bæjarstjórnarsal, miðvikudaginn 26. mars 2025 og hófst hann kl. 15:00.**
Fundinn sátu:
Lilja Ósk Sigmarsdóttir, varaformaður,
Hjálmar Hallgrímsson, formaður,
Unnar Á. Magnússon, aðalmaður,
Páll Jóhann Pálsson, áheyrnarfulltrúi.
Einnig sátu fundinn:
Sigurður A Kristmundsson, hafnarstjóri,
Sigurður Rúnar Karlsson, veitustjóri,
Elísabet Bjarnadóttir, sérfræðingur skipulags- og umhverfissviðs,
Guðjón Bragason, Lögfræðingur.
Fundargerð ritaði: Elísabet Bjarnadóttir, skipulagsfulltrúi.
Gestur fundarins, Jón Haukur Steingrímsson, sat dagskrárliði 1-8.
Sigurður Rúnar Karlsson yfirgaf fund eftir lið 8.
Mál nr. 2503031 tekið inn með afbrigðum.
Dagskrá:
**1. Lagnaleiðir fyrir stofninnvið - 2503014**
Gerð verður grein fyrir valkostum sem eru til skoðunar varðandi framtíðarlagnaleiðir stofninnviða.
Gestur fundar: Jón Haukur Steingrímsson, jarðverkfræðingur.
Nefndin tekur vel í tillögu varnargarðateymis um lagnaleið að austanverðum Þorbirni. Nefndin telur verkefnið brýnt og er skipulagsfulltrúa falið að vinna málið áfram.
**2. Sprungu- og innviðaviðgerðir (áfangi 1) - 2503003**
Fulltrúi frá Grindavíkurbæ í framkvæmdateymi sprunguverkefnis kynnir stöðu mála.
Farið yfir verkefnastöðu viðgerða en 1.áfanga er næstum lokið. Minnisblað um jarðkönnun knattspyrnuvallar er í vinnslu. Mikill vilji framkvæmdateymis að aðgerðaáætlun tvö verði samþykkt svo hægt verði að nýta sumar í áframhaldandi viðgerðir.
**3. Hugmynd að stoppistað fyrir ferðamenn - 2503001**
Lagt fyrir nefnd til kynningar.
Tillaga varnargarðateymis kynnt. Hún stuðlar að öryggi vegfarenda.
**4. Bláalónsvegur innan varnargarða - 2503027**
Vegagerðin sendir fyrirspurn um málsmeðferð vegna færslu Bláalónsvegar innan varnargarða. Færsla nauðsynleg til að tryggja öryggi vegfarenda.
Nefndin gerir ekki athugasemd við áformin og skipulagsfulltrúa falið að vinna málið áfram.
**5. Bláa lónið Fyrirspurn til skipulags- og umhverfissviðs - 2503028**
Fyrirspurn um málsmeðferð vegna breytinga á deiliskipulagi. Óskað er eftir heimild fyrir nýrri hreinsistöð og færslu á byggingarmagni og reitum. Lóðir sem um ræðir eru Norðurljósavegur 9, 9a og 11.
Skipulagsfulltrúa falið að vinna málið áfram.
**6. Fyrirspurn vegna rannsóknarborhola - 2503029**
Fyrirspurn um málsmeðferð vegna rannsóknarborholuframkvæmda.
Nefndin gerir ekki athugasemd við áform um borholur 1 og 2. Skipulagsfulltrúa falið að svara fyrirspyrjanda um hvort þörf er á framkvæmdaleyfi.
**7. Staða Grindavíkur og sviðsmyndir um hvernig Grindavík og samfélag Grindvíkinga verður árið 2035 - 2503018**
Skýrsla Deloitte lögð fram til umræðu og greint frá umfjöllun bæjarstjórnar á fundi nr.583 þann 25. mars.
Í síðustu viku var kynning á skýrslu Deloitte, "Staða Grindavíkur og sviðsmyndir um hvernig Grindavík og samfélag verður árið 2035", dags. 17. mars 2025 og "Íbúakönnun meðal Grindavíkinga" dags. febrúar 2025, sem Maskína vann fyrir Forsætisráðuneytið. Könnunin náði til einstaklinga sem skráðir voru með búsetu í Grindavík í nóvember 2023. Drög að umsögn bæjarstjórnar um skýrslu Deloitte kynnt.
Höfð verður hliðsjón af umræðu á fundi við lokagerð skýrslu.
**8. Jarðkönnun í Grindavík vegna náttúruhamfara - 2402008**
Lokaskýrsla jarðkönnunar lögð fram og rædd.
Skýrslan sýnir skýrt að þörfin til að halda áfram er brýn og ekki megi fresta verkefnum. Það myndi hafa veruleg neikvæð samfélagsleg áhrif.
9.
**Fundargerðir 2025 - Svæðisskipulag Suðurnesja - 2502040**
Fundargerð 52. fundar svæðisskipulagsnefndar Suðurnesja lögð fram og kynnt.
Nefndin felur skipulagsfulltrúa að kanna hvort hægt sé að fá kynningargögn um framtíðaráform Landsnets.
**10. Drög um breytingar á lögum um veiðigjöld - 2503031**
Drög um breytingar á lögum um veiðigjöld tekin til umræðu. Nefndin tekur undir þær áherslur fyrir umsögn sem ræddar voru á fundinum og minnir á að sjávarútvegur er undirstöðuatvinnuvegur í Grindavík.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:00.
Bæjarstjórn / 25. mars 2025
[Fundur 583](/v/27540)
Bæjarráð / 11. mars 2025
[Fundur 1678](/v/27523)
Bæjarráð / 4. mars 2025
[Fundur 1677](/v/27520)
Bæjarstjórn / 26. febrúar 2025
[Fundur 582](/v/27513)
Bæjarráð / 18. febrúar 2025
[Fundur 1676](/v/27504)
Bæjarstjórn / 28. janúar 2025
[Fundur 581](/v/27491)
Bæjarráð / 21. janúar 2025
[Fundur 1675](/v/27486)
Bæjarráð / 14. janúar 2025
[Fundur 1674](/v/27468)
Bæjarráð / 7. janúar 2025
[Fundur 1673](/v/27462)
Bæjarstjórn / 17. desember 2024
[Fundur 580](/v/27450)
Bæjarstjórn / 28. nóvember 2024
[Fundur 579](/v/27421)
Bæjarráð / 12. nóvember 2024
[Fundur 1670, bæjarráð](/v/27416)
Innviðanefnd / 18. nóvember 2024
[Fundur 2, Innviðanefnd](/v/27415)
Bæjarráð / 5. nóvember 2024
[Fundur 1669](/v/27404)