Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra
Fundargerð - stjórn SSNE - 31. fundur - 10. nóvember 2021
= Fundargerð - stjórn SSNE - 31. fundur - 10. nóvember 2021 =
**Fundur haldinn miðvikudaginn 10. nóvember 2021 í fjarfundi og hófst fundurinn kl. 10:00. Fundi slitið kl. 12:25**
Fundinn sátu: Hilda Jana Gísladóttir formaður, Eva Hrund Einarsdóttir, Þröstur Friðfinnsson, Anna Karen Úlfarsdóttir fyrir Jón Stefánsson, Sigurður Þór Guðmundsson (fór af fundi kl 11:30), Helga Helgadóttir (fór af fundi kl 12:11) og Eyþór Björnsson sem ritaði fundargerð.
Fjarverandi var Kristján Þór Magnússon.
Formaður setti fund og gengið var til dagskrár.
**Dagskrá:** **1. SAMNOR **
Fulltrúar SAMNOR, Ingunn Helga Bjarnadóttir, Jón Már Héðinsson, Lára Stefánsdóttir, Sigríður Huld Jónsdóttir, Sigurbjörn Árni Arngrímsson og Valgerður Gunnarsdóttir komu á fundinn, kynntu samstarf sín á milli og ræddu samstarf við SSNE. Elva Gunnlaugsdóttir, verkefnastjóri SSNE, sat fundinn undir þessum lið.
*Stjórn þakkar fulltrúum SAMNOR fyrir kynningu og samtal á fundinum og felur formanni og starfsfólki SSNE að vinna að áframhaldandi samstarfi. Jafnframt samþykkir stjórn að ónotaðir fjármunir úr Uppbyggingarsjóði verði nýttir í að framleiða markaðsverkefni framhaldsskóla svæðisins, að undangengnu samþykki úthlutunarnefndar.* **2. Áhersluverkefni SSNE**
Elva Gunnlaugsdóttir sat fundinn undir þessum lið og kynnti, ásamt framkvæmdastjóra, framkomnar hugmyndir um áhersluverkefni SSNE 2022.
Lagt fram til kynningar.
**** **3. Formlegt erindi til Vegagerðarinnar varðandi uppgjör vegna strætó**
Þórður Stefánsson, bókari SSNE, sat fundinn undir þessum lið. Framkvæmdastjóri kynnti drög að erindi til Vegagerðarinnar.
Fylgiskjal:
[Vegagerðin vegna uppgjörs almenningssamgangna](/static/files/Fundargerdir/31/erindi-ssne-uppgjor-skuldar-vegna-almenningssamgangna-10.11.2021.pdf) *Stjórn SSNE felur framkvæmdastjóra að knýja á um að loforð Vegagerðarinnar um niðurfellingu skuldar vegna almenningssamgangna verði efnd. * **4. Staðfesting stjórnar á breytingum á verklagsreglum úthlutunarnefndar uppbyggingarsjóðs** *Stjórn SSNE samþykkir framkomnar tillögur um breytingar á verklagsreglum og starfsreglum Uppbyggingarsjóðs. * **5. Hraðið, erindi frá Þekkingarneti Þingeyinga.** *Stjórn SSNE telur verkefnið vera uppbyggilegt og spennandi og styður framgang þess.* **6. Húsnæði SSNE á Húsavík**
Framkvæmdastjóri lagði fram til kynningar áætlun um kostnað við að leigja húsnæði að Hafnarstétt 3 á Húsavík og samanburð við núverandi kostnað sem og áætlun um upphafskostnað vegna endurnýjunar á húsgögnum og kaupa á öðrum búnaði.
*Stjórn felur framkvæmdastjóra að segja upp núverandi húsnæði að Garðarsbraut 5 á Húsavík og ganga til samninga um leigu á húsnæði í Hafnarstétt 3. Með því verður öll vinnuaðstaða starfsfólks bætt til muna en einnig er það mjög til hagsbóta fyrir starfsemi SSNE að vera í rými þekkingarsamfélags og frumkvöðla þar sem nýsköpun og atvinnuþróun er í forgrunni. Stjórn gerir þá kröfu að aðgengi fyrir alla í hinu nýja húsnæði SSNE verði tryggt. * ** **7. Framvinda fjárhagsáætlunar fyrir desember þingið**
Framkvæmdastjóri fór yfir framvindu fjárhagsáætlunar 2021 og 2022.
**8. Efni til kynningar. **
a) Skipting framlaga til
[sóknaráætlana 2022](/static/files/Fundargerdir/31/re-skipting-framlaga-til-soknaraaetlana-2022.msg)
b) 2022 Skipting grunnframlaga -
[töflur](/static/files/Fundargerdir/31/8-b-2022_skipting-grunnframlaga_toflur.docx)
c) Skipting grunnframlaga ríkisins til sóknaráætlana
[landshluta 2020](/static/files/Fundargerdir/31/8-c-skipting-grunnframlaga-rikisins-til-soknaraaetlana-landshluta-2020-m-toflum-10.09.pdf)
d) Starfs- og fjárhagsáætlun
[úthlutunarnefndar](/static/files/Fundargerdir/31/8-d-starfs-og-fjarhagsaaetlun-uthlutunarnefndar.docx)
e)
[Fundargerð 70. fundar SSNV](/static/files/Fundargerdir/31/8-e-fundargerd-70.-fundar-stjornar-ssnv-2.-november-2021.pdf)
f)
[Flugklasinn - staða okt 2021](/static/files/Fundargerdir/31/8-f-flugklasinn-stada-okt-2021.pdf)
g)
[Fundargerð 573. fundar SASS](/static/files/Fundargerdir/31/8-g-573.-fundur-stj.-sass.pdf)
h) Fundargerð 902. fundar stjórnar
[Sambands íslenskra sveitarfélaga](/static/files/Fundargerdir/31/8-h-stjorn-sambands-islenskra-sveitarfelaga-902.pdf) **9. Önnur mál**
Engin mál voru rædd undir þessum lið.