Vopnafjarðarhreppur
Atvinnu- og ferðamálanefnd - 7
== Fundur nr. 7 ==
Kjörtímabilið 2018—2022
Kjörtímabilið 2018—2022
Félagsheimilinu Miklagarði kl. 16:15
ÁBV
Árný Birna VatnsdalNefndarmaður
ERH
Ester Rósa HalldórsdóttirNefndarmaður
HBWB
Hólmar Bjarki W. BárðarsonNefndarmaður
SH
Stefán HrafnssonNefndarmaður
Fundargerð atvinnu- og ferðamálanefndar 28. janúar 2022 kl. 16:15.
Bréfið lesið upp. Sjómenn leggja til að sérregla gildi fyrir Vopnafjarðarhrepp við úthlutun byggðakvóta fiskveiðiárið 2021/2022. Um er að ræða reglugerð nr. 995/2021 um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa.
Talað um að fá reglugerð breytt eins og sjómenn fara fram á. Fundurinn samþykkir að setja sig ekki upp á móti þessari hugmynd, fordæmi fyrir þessu annarsstaðar.
Formaður leggur til að farið sé eftir veiðireynslu eins og gert hefur verið. Nefndin sammála að fara þessa leið, samþykkt samhljóða.
Rætt um ferðamál og mögulega ráðningu á ferðamálafulltrúa. Rætt um að reyna að koma umræðunni af stað og ráða ferðamálafulltrúa á staðinn.
Rætt um að halda áfram með vinnu nefndarinnar með Framfara- og ferðamálafélaginu, sem fór af stað eftir opinn fund fyrir ári síðan. Sent er með þessari fundargerð bréf sem samið var til sveitarstjórnar á opnum fundi af nefndinni og Framfara- og ferðamálafélaginu.
Fleira ekki tekið fyrir og fundi slitið kl. 17:00.