Vopnafjarðarhreppur
Sveitarstjórn - 56
== Fundur nr. 56 ==
Kjörtímabilið 2018—2022
Kjörtímabilið 2018—2022
Félagsheimilinu Miklagarði kl. 14:00
Sara Elísabet Svansdóttir ritaði fundargerð
BHS
Björn Heiðar SigurbjörnssonNefndarmaður
AÖS
Axel Örn SveinbjörnssonNefndarmaður
ÞBWÁ
Þuríður Björg Wiium ÁrnadóttirNefndarmaður
BA
Bjartur AðalbjörnssonNefndarmaður
TH
Teitur HelgasonNefndarmaður
BS
Berglind SteindórsdóttirNefndarmaður
SHH
Sigurjón H. HaukssonNefndarmaður
SES
Sara Elísabet SvansdóttirSveitarstjóri
Fundur haldinn í sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps 21.10.2021 í Miklagarði kl. 14:00.
Lagt fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar samantekt eftir íbúafundina um skipulagsmál sem haldnir voru í Miklagarði 8. og 9.september síðastliðinn. Sveitarstjórn samþykkir að nýta umhverfismat aðalskipulagsins til að skoða ólíka valkosti sem íbúar eru ekki sammála um, t.d. staðsetningu tjaldsvæðis, sundlaugar og fleira til að útbúa sterkari grunn til ákvarðanatöku. Einnig samþykkir sveitarstjórn að hefja vinnu við drög að nýju aðalskipulagi. Samþykkt samhljóða.
Fyrir liggur erindi frá Þjóðkirkjunni um endurheimt votlendis í landi Hofs. Sveitarstjórn telur að fyrirhuguð framkvæmd sé í samræmi við aðalskipulag þar sem hún er á landbúnaðarsvæði í gildandi aðalskipulagi og heimilar skipulagsfulltrúa að gefa út leyfi fyrir framkvæmdinni. Samþykkt samhljóða.
Fyrir liggur erindi frá Landgræðslunni um endurheimt votlendis í Vatnsdalsgerði. Sveitarstjórn telur að fyrirhuguð framkvæmd sé í samræmi við aðalskipulag þar sem hún er á landbúnaðarsvæði í gildandi aðalskipulagi og heimilar skipulagsfulltrúa að gefa út leyfi fyrir framkvæmdinni. Samþykkt samhljóða.
Að öðru leyti er fundargerðin lögð fram til kynningar.
Lagt fram minnisblað HMS, ásamt skýrslu HMS og viljayfirlýsingu um samstarf um uppbyggingu íbúðarhúsnæðis á landsbyggðinni þar sem óskað er eftir því að sveitarstjórnir á landsbyggðinni taki fyrir lok október afstöðu til hugmyndar um að setja á fót húsnæðissjálfseignarstofnun á þeim grundvelli sem lýst er í minnisblaðinu. Sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps tekur jákvætt í hugmyndina um að setja á fót húsnæðissjálfseignarstofnun. Samþykkt samhljóða.
Fyrir liggur úrsögn úr Æskulýðs- og íþróttanefnd frá Súsönnu Rafnsdóttur vegna flutninga. Sveitarstjórn samþykkir úrsögnina og þakkar Súsönnu fyrir störf sín í þágu sveitarfélagsins. Varamaður tekur sæti hennar í nefndinni þar til nýr aðalamaður hefur verið skipaður. Samþykkt samhljóða.
Lagt fram fundarboð á aðalfund Heilbrigðiseftirlits Austurlands sem haldinn verður á Höfn í Hornafirði 3.nóvember næstkomandi. Sveitarstjórn tilnefnir Söru Elísabetu Svansdóttur, sveitarstjóra sem fulltrúa Vopnafjarðarhrepps á fundinn. Samþykkt samhljóða.
Lagt fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
Viðauki 3 við fjárhagsáætlun 2021 lagður fram. Viðauki 1-3: Breyting á rekstri er jákvæð um 15,2 m.kr. þar af er reiknaður söluhagnaður 23,2 m.kr. Nettó fjárfesting lækkar um 11,4 m. kr. Söluverð eigna er 30,0 m.kr. og uppgreiðsla lána 13,3 m.kr. samtals breyting á handbæru fé vegna viðauka 1-3 er því jákvæð um 20,0 m.kr.
Samþykkt samhljóða.
Lagt fram bréf frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga um þátttöku og framlög til stafræns samstarfs sveitarfélaga 2022. Sveitarstjórn samþykkir hlut Vopnafjarðarhrepps og vísar til fjárhagsáætlanargerðar 2022.
Sveitarstjóri fór yfir verkefnin sín og svaraði spurningum sveitarstjórnar.
Fleira var ekki tekið fyrir og fundi slitið kl. 14:51.