Vopnafjarðarhreppur
Æskulýðs- og íþróttanefnd - 13
== Fundur nr. 13 ==
Kjörtímabilið 2018—2022
Kjörtímabilið 2018—2022
Félagsheimilinu Miklagarði kl. 14:00
Teitur Helgason ritaði fundargerð
SR
Súsanna RafnsdóttirNefndarmaður
VPE
Víglundur Páll EinarssonNefndarmaður
LBS
Linda Björk StefánsdóttirNefndarmaður
TH
Teitur HelgasonNefndarmaður
ÞS
Þórhildur Sigurðardóttirverkefnastjóri frístunda-, æskulýðs- og fjölmenningarmála
Fundur Æskulýðs- og íþróttanefndar Vopnafjarðarhrepps 9. ágúst 2021 kl 14:00.
Þórhildur og Víglundur víkja af fundi. Málið rætt og tekur nefndin vel í erindið og leggur til við sveitastjórn að veita þennan styrk.
Leggur nefndin einnig til að þeim sé gefið leyfi til að vera í Vallarhúsinu í fullu samráði við Einherja.
Hafa kynningardag til að kynna völlinn og íþróttina fyrir bæjarbúum. Þórhildi falið að vinna málið áfram.
Nefndinni barst fyrirspurn um hvort hægt væri að halda splakvöld í Miklagarði fyrir alla bæjarbúa 1 – 2 í mánuði. Þórhildi falið að athuga málið.
Nefndin óskar eftir að fá að vita hvar framkvæmdir á skólalóðinni standa og hvaða framkvæmdir eru á dagskrá. Vill nefndin enn og aftur benda á að skólalóðin er hættuleg fyrir gesti og gangandi.
Gróðursetja þarf í kringum blakvöllinn og vilji er til að gróðursetja í
sjálfboðavinnu en umhirða yrði á hendi sveitafélagsins. Passa þarf að það sé góður sandur á vellinum sem hægt er að spila í, sandurinn sem er núna er of grófur.
Nefndin óskar eftir að fá upplýsingar varðandi aðgangsstýringuna og lengingu á opnunartíma íþróttahússins
Nefndinni finnst að það sé ástæða til að setja heita potta við íþróttahúsið burtséð frá sundlaugarhugleiðingum þar sem þeir munu nýtast burtséð frá staðsetningu á lauginni.
Ekki fleira rætt fundi slitið kl. 15:35