Vopnafjarðarhreppur
Hreppsráð - 30
== Fundur nr. 30 ==
Kjörtímabilið 2018—2022
Kjörtímabilið 2018—2022
Félagsheimilinu Miklagarði kl. 08:00
Sara Elísabet Svansdóttir ritaði fundargerð
SB
Sigríður BragadóttirNefndarmaður
BHS
Björn Heiðar SigurbjörnssonNefndarmaður
TH
Teitur HelgasonNefndarmaður
SES
Sara Elísabet SvansdóttirSveitarstjóri
Fundur haldinn í hreppsráði Vopnafjarðarhrepps 2. júní 2021 á í félagsheimilinu Miklagarði kl. 08:00. Í upphafi fundar var leitað afbrigða með því að bæta inn liðnum „Fiskmarkaðurinn“ undir „Almenn mál“. Samþykkt samhljóða.
**i. Deiliskipulag miðhluta hafnarsvæðis Vopnafirði – skipulagslýsing, umsagnir**
Kynning skipulagslýsingar er lokið. Umsagnir bárust frá Vegagerðinni, HAUST, Skipulagsstofnun, Samgöngustofu og Tómasi Helgasyni.
Vegagerðin, HAUST og Skipulagsstofnun gera ekki athugasemdir við
skipulagsáætlunina. Tómas Helgason, eigandi að Hafnarbyggð 22 bendir á að útsýni frá hans fasteign muni skerðast. Hreppsráð fór yfir umsagnirnar og þau atriði sem þar koma fram og samþykkir að vísa þeim til skipulagsráðgjafa.
Hreppsráð samþykkir að láta vinna vinnslutillögu á grundvelli lýsingar og að teknu tilliti til umsagna. Samþykkt samhljóða.
Umsókn um stofnun lóðar í landi Háteigs og Hrappsstaða 1 og 2 vegna
Þverárvirkjunar lögð fram. Hreppsráð samþykkir erindið. Samþykkt samhljóða.
Fyrir liggur skipulagslýsing fyrir nýju deiliskipulagi í Sigtúni. Hreppsráð samþykkir að lýsingin verði auglýst og kynnt. Samþykkt samhljóða.
Að öðru leyti er fundargerðin lögð fram til kynningar.
Lögð fram drög að samningi við veiðifélagið Vesturdalsá vegna leigu á stíflu í Arnarvatni. Hreppsráð leggur til að 2.grein verði breytt og að leiguverð verði endurskoðað og vísar samningnum til sveitarstjórnar til samþykktar. Samþykkt samhljóða.
Lagt fram erindi frá Magnúsi Þór Róbertssyni fyrir hönd hóps áhugamanna um gamla snjóbílinn. Hreppsráð tekur vel í erindið og felur sveitarstjóra að vinna samningsdrög á grundvelli umræðu um málið og leggja aftur fyrir hreppsráð til samþykktar. Samþykkt samhljóða.
Lögð fram drög að innkaupastefnu og innkaupareglum Vopnafjarðarhrepps. Hreppsráð samþykkir drögin. Samþykkt samhljóða.
Lögð fram hugmynd að útfærslu peningagjafar sem Sundabúð var gefin. Hreppsráð samþykkir tillöguna um að setja lyftu úr Sundabúð 1 niður í Sambúð og felur sveitarstjóra að vinna málið áfram. Samþykkt samhljóða.
Lögð fram fundargerð og beiðni frá Almannavarnarnefnd Austurlands um skipan tveggja aðila í vinnuhóp á vegum almannavarna. Hreppsráð tilnefnir Björn Heiðar Sigurbjörnsson sem aðalmann og Teit Helgason sem varamann í hópinn fyrir hönd Vopnafjarðar. Samþykkt samhljóða.
Lögð fram drög að tímabundnum samningi vegna reksturs í Kaupvangi. Hreppsráð felur sveitarstjóra að ganga frá tímabundnum samningi við rekstraraðila. Samþykkt samhljóða.
Lagt fram til kynningar.
Fleira var ekki tekið fyrir og fundi slitið kl. 10:04.