Vopnafjarðarhreppur
Skipulags- og umhverfisnefnd - 27
== Fundur nr. 27 ==
Kjörtímabilið 2018—2022
Kjörtímabilið 2018—2022
Skrifstofa Vopnafjarðarhrepps kl. 09:30
Sara Elísabet Svansdóttir ritaði fundargerð
BS
Borghildur SverrisdóttirNefndarmaður
IDJ
Ingólfur Daði JónssonNefndarmaður
LÁ
Lárus ÁrmannssonNefndarmaður
RLG
Ragna Lind GuðmundsdóttirNefndarmaður
SEK
Sigríður Elva KonráðsdóttirNefndarmaður
SES
Sara Elísabet SvansdóttirSveitarstjóri
Fundur skipulags- og umhverfisnefndar Vopnafjarðarhrepps 27.maí 2021, haldinn á skrifstofu Vopnafjarðarhrepps kl. 09:30.
Kynning skipulagslýsingar er lokið. Umsagnir bárust frá Vegagerðinni, HAUST, Skipulagsstofnun, Samgöngustofu og Tómasi Helgasyni. Vegagerðin, HAUST og Skipulagsstofnun gera ekki athugasemdir við skipulagsáætlunina. Tómas Helgason, eigandi að Hafnarbyggð 22 bendir á að útsýni frá hans fasteign muni skerðast. Skipulags- og umhverfisnefnd fór yfir umsagnirnar og þau atriði sem þar koma fram og samþykkir að vísa þeim til skipulagsráðgjafa.
Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að leggja til við sveitarstjórn að hún láti vinna vinnslutillögu á grundvelli lýsingar og að teknu tilliti til umsagna. Samþykkt samhljóða.
Umsókn um stofnun lóðar í landi Háteigs og Hrappsstaða 1 og 2 vegna Þverárvirkjunar lögð fram. Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við sveitarstjórn að erindið verði samþykkt. Samþykkt samhljóða.
Fyrir liggur umsókn um byggingarleyfi vegna framkvæmda við veiðihúsið í Selá og jákvæð umsögn frá HAUST. Skipulags- og umhverfisnefnd heimilar skipulags- og byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi þegar jákvæðar umsagnir og fullnægjandi gögn hafa borist. Samþykkt samhljóða.
Lagðar fram reyndarteikningar af íbúðarhúsi á Skjaldþingsstöðum dagsettar 7.02.2021, unnar af Ómari Þresti Björgúlfssyni.
Skipulags og umhverfisnefnd samþykkir fyrirliggjandi teikningar. Samþykkt samhljóða.
Fyrir liggur skipulagslýsing fyrir nýju deiliskipulagi í Sigtúni. Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við sveitarstjórn að lýsingin verði auglýst og kynnt. Samþykkt samhljóða.
Umsókn um byggingarleyfi vegna vinnubúða við Egilsstaði lögð fram. Niðurstaða grenndarkynningar liggur fyrir og umsagnir bárust frá HAUST, Brunavörnum á Austurlandi, Vinnueftirlitinu og Minjastofnun. Skipulags- og umhverfisnefnd heimilar skipulags- og byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi þegar fullnægjandi gögn hafa borist. Samþykkt samhljóða.
Fleira var ekki tekið fyrir og fundi slitið kl. 10:16.