Vopnafjarðarhreppur
Skipulags- og umhverfisnefnd - 26
== Fundur nr. 26 ==
Kjörtímabilið 2018—2022
Kjörtímabilið 2018—2022
Skrifstofa Vopnafjarðarhrepps kl. 08:30
Sara Elísabet Svansdóttir ritaði fundargerð
HH
Höskuldur HaraldssonNefndarmaður
BS
Borghildur SverrisdóttirNefndarmaður
RLG
Ragna Lind GuðmundsdóttirNefndarmaður
IBA
Ingólfur Bragi ArasonNefndarmaður
IDJ
Ingólfur Daði JónssonNefndarmaður
LÁ
Lárus ÁrmannssonNefndarmaður
SEK
Sigríður Elva KonráðsdóttirNefndarmaður
SES
Sara Elísabet SvansdóttirNefndarmaður
SJ
Sigurður JónssonNefndarmaður
Fundur skipulags- og umhverfisnefndar Vopnafjarðarhrepps 19.apríl 2021, haldinn á skrifstofu Vopnafjarðarhrepps kl. 08:30
Auglýsingu breytingar á á aðalskipulagi í Vopnafjarðarhreppi vegna veiðihúss í Ytri hlíð er lokið. Athugasemd barst frá Hauki Geir Garðarssyni. Þar er vísað í fyrri athugasemdir ásamt því að fram koma athugasemdir og mótmæli við því að byggingarmagn skuli í endanlegri tillögu vera stækkað úr 950 fm í 1400 fm. Þau mótmæli eru ekki rökstudd frekar og skipulags- og umhverfisnefnd getur ekki fallist á að ástæða sé til að gera athugasemdir við þá breytingu. Athugasemdir sem hafa borist frá Hauki Geir á fyrri stigum hafa verið til umfjöllunar í skipulags- og umhverfisnefnd og verið send ráðgjöfum og framkvæmdaaðilum til umsagnar. Skipulags- og umhverfisnefnd getur ekki fallist á að þær skipulagsáætlanir sem hafa verið auglýstar fyrir framkvæmdir í Ytri – hlíð hafi með einhverjum hætti áhrif á hagsmuni eigenda að Vakursstöðum 1 og 3. Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að leggja til við sveitarstjórn að samþykkja fyrirliggandi breytingu á aðalskipulagi Vopnafjarðarhrepps 2006 - 2026. Samþykkt samhljóða.
Auglýsingu deiliskipulags fyrir veiðihús í Ytri – hlíð er lokið. Athugasemd barst frá Hauki Geir Garðarssyni. Vísað er í umsögn um athugasemdir Hauks í lið um aðalskipulagsbreytingu. Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að leggja til við sveitarstjórn að samþykkja fyrirliggjandi deiliskipulagsáætlun . Samþykkt samhljóða.
Fyrir liggur erindi frá landeiganda Ytri hlíðar um lausn lands úr landbúnarnotum. Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við sveitarstjórn að orðið verði við erindinu. Samþykkt samhljóða.
Fyrir liggur skipulagslýsing fyrir breytingu á deiliskipulagi miðhluta hafnarsvæðis. Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við sveitarstjórn að lýsingin verði auglýst og kynnt. Samþykkt samhljóða.
Borist hefur erindi frá umsækjanda um að hann óski eftir að falla frá umsókn. Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir erindið.
Fyrir liggur umsókn um byggingarleyfi vegna framkvæmda við Hafnarbyggð 4. Skipulags- og umvherfisnefnd samþykkir að leita eftir umsögnum frá HAUST og Brunavörnum á Austurlandi og heimilar skipulags- og byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi þegar jákvæðar umsagnir og fullnægjandi gögn hafa borist. Samþykkt samhljóða.
Fyrir liggur samþykki nágranna vegna fyrirhugaðra framkvæmda við Vallholt 6. Skipulags- og umhverfisnefnd telur að með því sé grenndarkynningu fullnægt. Nefndin samþykkir að heimila Skipulags- og byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi þegar fullnægjandi gögn hafa borist.
Lagt fram til kynningar.
Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við sveitarstjórn að staðfesta áætlunina. Samþykkt samhljóða.
Fleira var ekki tekið fyrir og fundi slitið kl. 09:16.