Vopnafjarðarhreppur
Æskulýðs- og íþróttanefnd - 12
== Fundur nr. 12 ==
Kjörtímabilið 2018—2022
Kjörtímabilið 2018—2022
Félagsheimilinu Miklagarði kl. 12:00
Teitur Helgason ritaði fundargerð
VPE
Víglundur Páll EinarssonNefndarmaður
LBS
Linda Björk StefánsdóttirNefndarmaður
SR
Súsanna RafnsdóttirNefndarmaður
KÁ
Kristinn ÁgústssonNefndarmaður
TH
Teitur HelgasonNefndarmaður
ÞS
Þórhildur Sigurðardóttirverkefnastjóri frístunda-, æskulýðs- og fjölmenningarmála
Fundur æskulýðs- og íþróttanefndar Vopnafjarðarhrepps haldinn mánudaginn 12. apríl 2021 kl 12. í Miklagarði
Í ljósi þess að við erum að fara í verkefnið Barnvænt sveitarfélag leggur nefndin til eftirfarandi.:
Frístundastyrkur nái líka til barna undir 6 ára aldri.
Frístundastyrkur verði hækkaður í 30.000 krónur.
Í fundargerðum frá 7.3.2019 - 8.4.2019 - 24.4.2019 - 16.10.2019 - 7.1.2020 hefur nefndin tekið þetta mál fyrir og þrýst á að farið sé í þessa framkvæmd. Stoppaði það á því að fara þyrfti í heildarskipulag við íþróttahús.
Nefndin óskar eftir að farið sé í þess framkvæmd sem fyrst, búið að berjast fyrir þessu í nokkur ár og teljum við að það sé kominn tími til að framkvæma.
Nefndin veit til þess að körfur eru tilbúnar og búið er að merkja fyrir tveimur völlum. Það vantar bara að gengið sé í verkið og það klárað. Nefndin vill þrýsta á að þetta verði klárað fyrir sumarið.
Þórhildur fer yfir verkefnið Barnvænt sveitarfélag og hvað felst í því.
Þórhildur fer yfir starfið í félagsmiðstöð.
Nefndin óskar eftir upplýsingum um stöðuna á skólalóð.
Nefndin óskar eftir upplýsingum um aðgangsstýringu í líkamsrækt.
Fundi slitið klukkan 13:08.