Vopnafjarðarhreppur
Hreppsráð - 27
== Fundur nr. 27 ==
Kjörtímabilið 2018—2022
Kjörtímabilið 2018—2022
Félagsheimilinu Miklagarði kl. 08:00
Sara Elísabet Svansdóttir ritaði fundargerð
SB
Sigríður BragadóttirNefndarmaður
BHS
Björn Heiðar SigurbjörnssonNefndarmaður
TH
Teitur HelgasonNefndarmaður
SES
Sara Elísabet SvansdóttirSveitarstjóri
Fundur haldinn í hreppsráði Vopnafjarðarhrepps 8. apríl 2021 í félagsheimilinu Miklagarði kl. 08:00.
Fundargerð menningarmálanefndar frá 22.3 lögð fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
Lögð fram viðbótargöng frá Framfara- og ferðamálafélagi Vopnafjarðar vegna verkefnisins „Vesturfaraferðir" sem snýr að því að kanna grundvöll fyrir því að setja á fót sérsniðnar ferðir fyrir Vestur-Íslendinga til Vopnafjarðar, Þistilfjarðar og nágrennis og fékk verkefnið styrk frá Uppbyggingarsjóði Austurlands árið 2020. Hreppsráð samþykkir að styrkja verkefnið um 280.000 kr. Samþykkt samhljóða.
Lögð fram til kynningar árssskýrsla Kaupvangs 2020 frá Austurbrú.
Lagt fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar minnisblað frá Sigurvini Ólafssyni, lögfræðingi um stöðu Finnafjarðarverkefnisins.
Lögð fram drög að samningi um jaðarstyrk til menningarsvæða fyrir árið 2021 um smáheima íslenskra þjóðsagna. Hreppsráð samþykkir að leggja 500 þúsund krónur í verkefnið á móti 500 þúsund króna framlagi Austurbrúar og felur sveitarstjóra að vinna málið áfram.
Lögð fram breytingartillaga varðandi samninga um minkaveiði hjá sveitarfélaginu. Samþykkt samhljóða.
Lögð fram drög að samsstarfssamningi Einherja og Vopnafjarðarhrepps. Hreppsráð leggur til við sveitarstjórn að samþykkja samstarfssamninginn. Samþykkt samhljóða.
Lagt fram til kynningar.
Lagt fram bréf frá Fuglastígi á Norðausturlandi varðandi mótframlag Vopnafjarðarhrepps við uppsetningu á fuglaskýli við Nýpslón. Hreppsráð samþykkir mótframlag Vopnafjarðarhrepps að upphæð 1,7 milljón kr og felur sveitarstjóra að gera viðauka við fjárhagsáætlun 2021. Samþykkt samhljóða.
Bréf frá foreldrum leikskólabarna lagt fram varðandi sumarlokun leikskóla. Hreppsráð vísar erindinu til fræðslunefndar og leikskólastjóra til umsagnar. Samþykkt samhljóða.
Bréf frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga varðandi aðgerðaráætlun sveitarfélaga til viðspyrnu fyrir íslenskt atvinnulíf og heimili lagt fram til kynningar.
Fleira var ekki tekið fyrir og fundi slitið kl. 10:12.