Vopnafjarðarhreppur
Skipulags- og umhverfisnefnd - 25
== Fundur nr. 25 ==
Kjörtímabilið 2018—2022
Kjörtímabilið 2018—2022
Félagsheimilinu Miklagarði kl. 08:30
Sara Elísabet Svansdóttir ritaði fundargerð
HH
Höskuldur HaraldssonNefndarmaður
BS
Borghildur SverrisdóttirNefndarmaður
LÁ
Lárus ÁrmannssonNefndarmaður
RLG
Ragna Lind GuðmundsdóttirNefndarmaður
IBA
Ingólfur Bragi ArasonNefndarmaður
SEK
Sigríður Elva KonráðsdóttirNefndarmaður
IDJ
Ingólfur Daði JónssonNefndarmaður
SES
Sara Elísabet SvansdóttirSveitarstjóri
SJ
Sigurður JónssonSkipulags- og byggingarfulltrúi
Fundur skipulags- og umhverfisnefndar Vopnafjarðarhrepps 15.mars 2021, haldinn í félagsheimilinu Miklagarði kl. 08:30
Auglýsingu breytingar á deiliskipulagi miðsvæðis hafnarinnar er lokið. Engar athugasemdir bárust á auglýsingatímanum. Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að leggja til við sveitarstjórn að samþykkja fyrirliggandi breytingu á deiliskipulagi hafnarsvæðisins. Samþykkt með sex atkvæðum. Sigríður Elva Konráðsdóttir situr hjá.
Umsagnir Minjastofnunar og Umhverfisstofnunar vegna umsóknar um framkvæmdaleyfi vegna skógræktar á Hróaldsstöðum 2 í Vopnafirði lagðar fram. Samkvæmt umsögn Minjastofnunar þarf að skrá fornminjar á vettvangi og senda inn ný gögn í kjölfarið. Í umsögn UST koma fram atriði sem framkvæmdaaðili þarf að taka afstöðu til og gera sveitarstjórn grein fyrir. Afgreiðslu frestað þar til ný gögn hafa verið lögð fram í samræmi við umsagnir. Samþykkt samhljóða.
Umsókn um byggingarleyfi vegna breyttrar notkunar á Lónabraut 4 lögð fram. Verður húsnæðinu breytt úr íbúðarhúsnæði í skrifstofuhúsnæði. Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir fyrirliggjandi erindi fyrir sitt leyti og heimilar útgáfu byggingarleyfis þegar fullnægjandi gögn hafa borist. Samþykkt samhljóða.
Umsókn um framkvæmdaleyfi vegna skógræktar á 53 hektara svæði á Egilsstöðum lögð fram. Samþykkt að grenndarkynna erindið og senda á umsagnaraðila. Grenndarkynning nái til Refsstaða, Hrappsstaða og Háteigs. Umsagnaraðilar eru Umhverfisstofnun, Skógræktin, Minjastofnun og Brunavarnir Austurlands. Samþykkt samhljóða.
Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við sveitarstjórn að heimila skipulagsfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi vegna lagningar hluta Vopnafjarðarlínu 1 í jarðstreng yfir Hellisheiði. Samþykkt samhljóða.
Umsókn um byggingarleyfi vegna vinnubúða við Hrappsstaði lögð fram. Skipulags- og umhverfisnefnd óskar eftir skriflegu samþykki landeiganda á Hrappsstöðum og samþykkir að senda erindið í grenndarkynningu. Grenndarkynning nái til Háteigs. Umsagnaraðilar eru HAUST, Minjastofnun Íslands, Vinnueftirlitið og Brunavarnir á Austurlandi. Samþykkt samhljóða.
Umsókn um framkvæmdaleyfi vegna efnisvinnslu í námu E11 lögð fram. Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við sveitarstjórn að fela skipulagsfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi vegna efnistökunnar. Samþykkt samhljóða.
Fleira var ekki tekið fyrir og fundi slitið kl. 09:16.