Vopnafjarðarhreppur
Hreppsráð - 26
== Fundur nr. 26 ==
Kjörtímabilið 2018—2022
Kjörtímabilið 2018—2022
Félagsheimilinu Miklagarði kl. 08:00
Sara Elísabet Svansdóttir ritaði fundargerð
SB
Sigríður BragadóttirNefndarmaður
ÍG
Íris GrimsdóttirNefndarmaður
BA
Bjartur AðalbjörnssonNefndarmaður
SES
Sara Elísabet SvansdóttirSveitarstjóri
Fundur haldinn í hreppsráði Vopnafjarðarhrepps 4. mars 2021 í félagsheimilinu Miklagarði kl. 08:00. Í upphafi fundar var leitað afbrigða með því að bæta inn liðnum „Íslandsmót MSÍ í snjókrossi“ undir „Almenn mál.“
Lagt fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
Lagt fram erindi frá Framfara- og ferðamálafélagi Vopnafjarðar vegna verkefnisins „Vesturfaraferðir" sem snýr að því að kanna grundvöll fyrir því að setja á fót sérsniðnar ferðir fyrir Vestur-Íslendinga til Vopnafjarðar, Þistilfjarðar og nágrennis og fékk verkefnið styrk frá Uppbyggingarsjóði Austurlands árið 2020. Hreppsráð felur sveitarstjóra að afla frekari upplýsinga um verkefnið. Samþykkt samhljóða.
Lagt fram minnisblað um verkefni verkefnastjóra æskulýðs-, tómstunda- og frístundamála um ráðningu starfsmanns í hlutastarf í félagsmiðstöð. Sveitarstjóra falið að vinna málið áfram. Samþykkt samhljóða.
Lagt fram til kynningar minnisblað frá Sigrúnu Láru Shanko, listakonu á Vopnafirði, um möguleika á listasmiðju á Vopnafirði.
Lögð fram til kynningar lokaskýrsla vegna fræðsluáætlunar Vopnafjarðarhrepps sem unnin var af Austurbrú og verður gangsett haustið 2021 fyrir starfsfólk Vopnafjarðarhrepps.
Lagt fram til kynningar.
Lagt fram minnisblað um þjónustu Vegagerðarinnar við millidalaleið. Sveitarstjóra falið að vinna málið áfram. Samþykkt samhljóða.
Lagt fram til kynningar minnisblað um símamál í dreifbýli Vopnafjarðarhrepps. Það er ekkert gsm samband á nokkrum bæjum í Hofsárdal, frá Vatnsdalsgerði inn í Hofsárdal. Hreppsráð hvetur fjarskiptafyrirtæki til að tryggja gsm samband í allri sveitinni, til dæmis með endurvarpa. Samþykkt samhljóða.
Lögð fram styrkbeiðni frá stuðningshópi Einars Gunnlaugssonar vegna Íslandsmóts MSÍ í snjókrossi. Hreppsráð samþykkir að styrkja Einar með framlagi upp á 50.000 kr.
Fleira var ekki tekið fyrir og fundi slitið kl. 09:24.