Vopnafjarðarhreppur
Skipulags- og umhverfisnefnd - 22
== Fundur nr. 22 ==
Kjörtímabilið 2018—2022
Kjörtímabilið 2018—2022
Félagsheimilinu Miklagarði kl. 08:00
Sara Elísabet Svansdóttir ritaði fundargerð
HH
Höskuldur HaraldssonNefndarmaður
BS
Borghildur SverrisdóttirNefndarmaður
SEK
Sigríður Elva KonráðsdóttirNefndarmaður
LÁ
Lárus ÁrmannssonNefndarmaður
RLG
Ragna Lind GuðmundsdóttirNefndarmaður
IBA
Ingólfur Bragi ArasonNefndarmaður
IDJ
Ingólfur Daði JónssonNefndarmaður
SES
Sara Elísabet SvansdóttirSveitarstjóri
SJ
Sigurður JónssonSkipulags- og byggingarfulltrúi
Ingólfur Bragi Arason víkur af fundi vegna tengsla við Björgunarsveitina Vopna. Lögð fram kynning og umsókn um stöðuleyfi fyrir smáhýsi frá Björgunarsveitinni Vopna. Smáhýsið er skráð í fasteignaskrá F2362606. Það þarf að sækja um byggingarleyfi fyrir því á nýrri lóð sem þarf væntanlega að stofna. Skipulags- og umhverfisnefnd óskar eftir rökstuðningi fyrir þessari staðsetningu og lóðarumsókn í framhaldinu. Samþykkt samhljóða.
Bréf
frá Skipulagsstofnun vegna kostnaðarframlags vegna aðalskipulagsbreytingar lagt
fram þar sem óskað er eftir nánari rökstuðningi á því hvaða ástæðu
sveitarfélagið telur að það uppfylli í 60% endurgreiðslu í stað 50%.
Sveitarstjóra falið að kanna nánar hvaða upplýsingum Skipulagsstofnun er að
sækjast eftir og senda þeim uppfærða umsókn. Samþykkt samhljóða.
Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að leggja til við sveitarstjórn að hún heimili skipulags- og byggingarfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi. Samþykkt samhljóða.
Lögð fram greinargerð á framkvæmd á stíflu við Arnarvatn sem var farið í án leyfis og myndir af framkvæmdinni og umhverfinu. Skipulags- og umhverfisnefnd harmar þessi vinnubrögð og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að fá úttekt af áhrifum stíflunnar frá Umhverfisstofnun og/eða Náttúrufræðistofnun Austurlands og sveitarstjóra falið að fá fund með fulltrúa veiðifélagsins Vesturárdal og klára samning við veiðifélagið þar sem skýrt er hver hámarkshæð á vatni skuli vera, undanhleyping í vorleysingum og sá tími sem vatnið á að vera fullopið. Samþykkt samhljóða.
Lögð fram afstöðumynd fyrir vélaskemmu á Egilsstöðum í Vopnafirði. Umsögn Minjastofnunar Íslands liggur ekki fyrir og afgreiðslu því frestað til næsta fundar Skipulags- og umhverfisnefndar. Samþykkt samhljóða.
Lögð fram betur útfærð gögn um framkvæmdina. Skipulags- og umhverfisnefnd óskar eftir staðfestingu á því að sá hluti húss sem verið er að endurbæta falli ekki undir aldursfriðun. Samþykkt samhljóða.
Umsókn
um stofnun lóðar í Ytri hlíð lögð fram. Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til
við sveitarstjórn að erindið verði samþykkt. Samþykkt samhljóða.
Lögð fram umsókn Karolinu Szulczyk um leigu á lóð í landi Þorbrandsstaða fyrir byggingu heilsárshúss. Skipulags- og umhverfisnefnd getur ekki samþykkt erindið því ekki er til skipulagt frístundasvæði í aðalskipulagi sveitarfélagsins. Samþykkt samhljóða.
Fleira var ekki tekið fyrir, fundargerð lesin og borin upp til samþykktar, hún samhljóða samþykkt og fundi slitið kl. 09:28.