Vopnafjarðarhreppur
Hreppsráð - 21
== Fundur nr. 21 ==
Kjörtímabilið 2018—2022
Kjörtímabilið 2018—2022
Skrifstofa Vopnafjarðarhrepps kl. 08:00
Sara Elísabet Svansdóttir ritaði fundargerð
BHS
Björn Heiðar SigurbjörnssonNefndarmaður
SB
Sigríður BragadóttirNefndarmaður
ÍG
Íris GrimsdóttirNefndarmaður
SES
Sara Elísabet SvansdóttirSveitarstjóri
Lagt fram til kynningar
Fundargerð frá aðalfundi Brunavarna á Austurlandi, ársreikningur Brunavarna á Austurlandi 2019 og ársskýrsla lögð fram til kynningar. Hreppsráð felur sveitarstjóra að greina hvaða kostir eru í stöðunni við rekstur slökkviliðs á Vopnafirði. Samþykkt samhljóða.
Lagt fram til kynningar.
Sveitarstjóri fór yfir stöðuna og tillögu sína um að fresta árshátið sveitarfélagsins til vors 2021 vegna Covid-19. Samþykkt samhljóða..
Lögð fram til kynningar hugmynd að teikningu einstaklingsíbúðar í leiguíbúðum aldraðra í Sundabúð. Sveitarstjóra falið að vinna hugmyndina áfram og leggja hana fyrir og setja inn í fjárhagsáætlun 2021 endurbætur á leiguíbúðum aldraðra í Sundabúð. Samþykkt samhljóða.
Lagt fram til kynningar minnisblað frá KPMG varðandi uppreikning á innri leigu sveitarfélagsins sem hefur það í för með sér að tekjur eignasjóðs aukast um 5,8 milljónir á mánuði en rekstarkostnaður viðkomandi deilda myndi að sama skapi aukast. Samþykkt samhljóða.
Lagt fram til kynningar.
Fleira var ekki tekið fyrir, fundargerð lesin og borin upp til samþykktar, hún samhljóða samþykkt og fundi slitið kl. 09:57.