Grindavíkurbær
Hafnarstjórn - Fundur 483
**483. fundur Hafnarstjórnar Grindavíkur haldinn Seljabót 2, mánudaginn 11. júlí 2022 og hófst hann kl. 17:00.**
**Fundinn sátu:** Ómar Davíð Ólafsson, formaður, Páll Jóhann Pálsson, varaformaður, Anna Elísa Karlsdóttir Long, aðalmaður, Páll Gíslason, aðalmaður, Leifur Guðjónsson, aðalmaður, Sigurður A Kristmundsson, hafnarstjóri. Inga Fanney Rúnarsdóttir sat fundinn einnig **Fundargerð ritaði:** Sigurður A Kristmundsson, Hafnarstjóri. **Dagskrá:** **1. Grindavík-Viðgerð Kvíabryggju og stormpolli 2021 - 2109112**
Verktakinn hefur störf á viðgerð Kvíabryggju þ. 22. ágúst.
**2. Verklýsing viðgerð Suðurgarður - 2207048**
Grindavíkurhöfn mun fjármagna viðgerð á þekjunni við Suðurgarð, en ríkisstyrkurinn mun skila sér í fjárlögum ríkisins 2023. Hafnarstjórn telur að ganga þurfi lengra í viðgerð á Suðurgarði og laga þurfi 15 metra breitt bil í stað 5 metra eins og fram kemur í verklýsingu Vegagerðarinnar og um 100 metra lengd af þekjunni. En þekjan er víða mjög sígin og yfirborðið illa farið.
**3. Ný hafnarvog - 2207047**
Meta þarf burðargrind hafnavogarinnar með það þykktarmælingu. Mögulega þarf að gera ráð fyrir nýrri hafnarvog í fjárhagsáætlun 2023. kostnaður er ríflega 12 milljónir kr. án vsk.
**4. Fundargerðir Hafnasamband Íslands 2022 - 2202033**
Lagt fram
**5. Umsóknir vegna hafnargerðar og sjóvarna á samgönguáætlun 2023-2027 - 2205180**
Hafnarstjórn samþykkir að umbeðin gögn og rökstuðningur fyrir ósk um framlag ríkissjóðs á samgönguáætlun 2023 til 2027 til hafnabóta og sjóvarna í landi Grindavíkur verði send til Vegagerðarinnar. Hafnarstjórn felur bæjarstjóra og hafnarstjóra einnig að óska eftir ítarlegri greiningu frá ráðgjafafyrirtæki, á uppbyggingaþörf hafnamannvirkja ásamt kostnaðarmati og ávinningi af slíkum hafnabótum fyrir Grindavíkurhöfn, fyrirtæki og samfélagið allt í Grindavík. Ljóst er að mikil framtíðar tækifæri liggja í fiskveiðum, fiskvinnslu, lagareldi og margvíslegri þjónustu tengdum þessum greinum í Grindavík.
**6. Hafnasambandsþing 2022 - 2207024**
Hafnarstjórn hefur rétt á fimm fulltrúum á hafnasambandþingi sem haldið verður í Ólafsvík 27-28 október 2022. Ásamt fulltrúum hafnarstjórnar mun hafnarstjóri og bæjarstjóri sitja þingið.
**7. Öryggismál á hafnarsvæði 2022 - 2207046**
Hafnarstjóra falið að fá ráðgjöf í öryggismálum á hafnarsvæðinu.
**8. Fráveita Grindavíkurbæjar - dælulögn frá Seljabót – 2201039**
Lagt fram
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 19:20.
Hafnarstjórn / 12. júlí 2022
[Fundur 483](/v/25903)
Bæjarráð / 6. júlí 2022
[Fundur 1615](/v/25898)
Fræðslunefnd / 4. júlí 2022
[Fundur 120](/v/25896)
Frístunda- og menningarnefnd / 29. júní 2022
[Fundur 116](/v/25889)
Bæjarráð / 29. júní 2022
[Fundur 1614](/v/25888)
Bæjarráð / 24. júní 2022
[Fundur 1613](/v/25876)
Skipulagsnefnd / 24. júní 2022
[Fundur 102](/v/25874)
Bæjarráð / 15. júní 2022
[Fundur 1612](/v/25865)
Bæjarstjórn / 8. júní 2022
[Fundur 529](/v/25839)
Bæjarráð / 25. maí 2022
[Fundur 1611](/v/25805)
Fræðslunefnd / 24. maí 2022
[Fundur 119](/v/25804)
Bæjarstjórn / 11. maí 2022
[Fundur 528](/v/25760)
Frístunda- og menningarnefnd / 11. maí 2022
[Fundur 115](/v/25756)
Frístunda- og menningarnefnd / 5. maí 2022
[Fundur 115](/v/25736)
Frístunda- og menningarnefnd / 5. maí 2022
[Fundur 115](/v/25735)
Bæjarráð / 4. maí 2022
[Fundur 1610](/v/25730)
Skipulagsnefnd / 3. maí 2022
[Fundur 101](/v/25727)
Hafnarstjórn / 2. maí 2022
[Fundur 482](/v/25716)
Bæjarstjórn / 27. apríl 2022
[Fundur 527](/v/25704)
Skipulagsnefnd / 20. apríl 2022
[Fundur 100](/v/25688)
Bæjarráð / 20. apríl 2022
[Fundur 1609](/v/25687)
Fræðslunefnd / 11. apríl 2022
[Fundur 118](/v/25672)
Fræðslunefnd / 11. apríl 2022
[Fundur 117](/v/25671)
Bæjarráð / 6. apríl 2022
[Fundur 1608](/v/25656)