Seltjarnarnesbær
127. fundur skipulags- og umferðarnefndar
= Fundartími Skipulags- og umferðarnefnd 2022 =
| 20. janúar
|
3. febrúar
3. mars
7. apríl
5. maí
Stjórnsýsla
Hér er að finna fundargerðir skipulags- og mannvirkjanefndar frá þessu ári, raðað í tímaröð. Fundargerðir annarra ára er raðað eftir ártölum í hægri dálki: "Leitað eftir árum"
Skipulags- og umferðarnefnd
**127. fundur skipulags- og umferðarnefndar haldinn í fundarsal bæjarstjórnar Seltjarnarness og í gegnum fjarfundabúnað, þriðjudaginn 12. júlí, 2022 kl. 08:03**
**Nefndarmenn:**
Svana Helen Björnsdóttir, formaður,
Dagbjört Snjólaug Oddsdóttir, varaformaður,
Örn Viðar Skúlason, aðalmaður
Karen María Jónsdóttir, aðalmaður
**Starfsmenn:**
Brynjar Þór Jónasson, sviðsstjóri
Þór Sigurgeirsson, bæjarstjóri
**Fundargerð ritaði:** Brynjar Þór Jónasson, sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs
**Dagskrá:**
Í upphafi fundar var lagt til að Dagbjört Snjólaug Oddsdóttir verði varaformaður nefndarinnar og Brynjar Þór Jónasson ritari í samræmi við erindisbréf frá 2013 en erindisbréf þarf að uppfæra sem fyrst.
*Samþykkt með öllum atkvæðum.*
**1. 2020040062 - Stefnumörkun varðandi gististarfsemi og gististaði fyrir íbúðabyggð**
Lagðar fram athugasemdir og umsagnir við lýsingu fyrir breytingu á Aðalskipulagi Seltjarnarnesbæjar 2015-2033 vegna stefnumörkunar um gististaði.
*Ábendingum og umsögnum vísað til úrvinnslu skipulagsfulltrúa og skipulagsráðgjafa. Ábendingum er ekki svarað formlega á þessu stigi aðalskipulagsferlis. Málið verður tekið fyrir aftur á næsta fundi.*
**2. 2021120139 - Breyting á gildandi deiliskipulagi fyrir Valhúsahæð - Skólabraut 10**
Á 124. fundi skipulags- og umferðarnefndar þann 7. apríl 2022 og á 945. fundi bæjarstjórnar Seltjarnarnesbæjar þann 27. apríl 2022 var samþykkt að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Valhúsahæðar og aðliggjandi útivistarsvæðis vegna Skólabrautar 10 skv. 1. mgr. 43. gr skipulagslaga nr. 123/2010. Í deiliskipulagstillögunni er íbúðum fjölgað úr einni í níu og skilmálum fyrir Skólabraut 10 breytt þannig að gert er ráð fyrir einu bílastæði á íbúð sem staðsett verða innan lóðar. Tillagan var auglýst frá og með 12. maí 2022 til og með 23. júní 2022, engar athugasemdir bárust.
*Skipulags- og umferðarnefnd felur skipulagsfulltrúa að senda tillöguna til yfirferðar hjá Skipulagsstofnun skv. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.*
**3. 2021090135 - Hofgarðar 16 - breyting á deiliskipulagi**
Á 125. fundi skipulags- og umferðarnefndar þann 5. maí 2022 og á 946. fundi bæjarstjórnar Seltjarnarnesbæjar þann 11. maí 2022 var samþykkt að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Bollagarða og Hofgarða vegna Hofgarða 16. Í deiliskipulagstillögunni felst að færa byggingarreit um 0,5m til norðurs að götu og að breyta skilmálablaði þannig að efri hæð verði ekki meira en 40% af flatarmáli byggingarreits. Tillagan var auglýst frá og með 25. maí 2022 til og með 6. júlí 2022.
**Tvær athugasemdir bárust.**
**Athugasemdir frá Stefáni Þ. Sigfússyni og Guðrúnu Ó. Sigurðardóttur, íbúum að Hofgörðum 19.**
1. Hofgarðar er einbýlishúsagata. Þarna á að fara að byggja fjölbýli.
Svar: Ekki er sótt um fjölgun íbúða í tillögunni.
2. Að færa byggingareit nær götu: Samkvæmt teikningum sem þau komu með til okkar um daginn á framendinn á húsinu að vera 7 metra hár. Með því að færa það nær götu mun hús þeirra skyggja sól langt inn á okkar lóð. Svona bygging er alls ekki í takt við húsin í götunni.
Svar: Samkvæmt gildandi deiliskipulagi Bollagarða og Hofgarða, samþykkt í bæjarstjórn 9. september 2015, er leyfileg hámarkshæð nýbyggingar við Hofgarða 16 „7 metrar frá inngangskóta“. Skuggavarp sýnir að fyrirhuguð bygging við Hofgarða 16 skyggir mjög lítið á lóð Hofgarða 19 og breytingin hverfandi við að færa byggingarreit fram um 0,5m. Fyrirhuguð tveggja hæða bygging er í samræmi við byggingar við Hofgarða 18-26.
3. Nú er búið að breyta orðalagi og á efri hæð að vera 40% af byggingarreit en ekki af neðri hæð. Þetta er gert til að hafa efri hæðina mun stærri en ætlast er til. Það er mjög mikill munur á þessu og enn og aftur ekki í takt við húsin í götunni.
Svar: Breyting í skipulagstillögu er í samræmi við önnur tveggja hæða hús á skipulagssvæðinu. Efri hæð Hofgarða 18 er um 37% af neðri hæð. Hofgarða 20 er á þremur pöllum og því ekki sambærilegt. Efri hæð Hofgarða 22 er 156% af neðri hæð. Efri hæð Hofgarða 24 er 124% af neðri hæð. Efri hæð Hofgarða 26 er 166% af neðri hæð. Í tillögunni er gert ráð fyrir að efri hæð nýbyggingar við Hofgarða 16 verði að hámarki 68% af neðri hæð.
**Athugasemd frá Ásrúnu Kristjánsdóttur og Guðjóni S. Vilbergssyni, íbúum að Hofgörðum 18.**
Varðar : Deiliskipulagsbreytingu - Bollagarðar og Hofgarðar.
Kynnt er deiliskipulagsbreyting á byggingarreit að Hofgörðum 16 og breyting á byggingarmagni efri hæðar.
Þar sem ekki liggja fyrir frekari gögn um breytinguna um væntanlegrar byggingar erum við andvíg þessari breytingu á deiliskipulaginu.
Við mótmælum þessari breytingu.
Svar: Breyting í skipulagstillögu er í samræmi við önnur tveggja hæða hús á skipulagssvæðinu. Efri hæð Hofgarða 18 er um 37% af neðri hæð. Hofgarða 20 er á þremur pöllum og því ekki sambærilegt. Efri hæð Hofgarða 22 er 156% af neðri hæð. Efri hæð Hofgarða 24 er 124% af neðri hæð. Efri hæð Hofgarða 26 er 166% af neðri hæð. Í tillögunni er gert ráð fyrir að efri hæð nýbyggingar við Hofgarða 16 verði að hámarki 68% af neðri hæð. Tilfærsla á byggingarreit er talin óveruleg og til samræmis við nærliggjandi byggingarreiti við götuna.
*Skipulags- og umferðarnefnd telur ekki ástæðu til að gera breytingar á tillögunni og felur skipulagsfulltrúa að svara framkomnum athugasemdum. Vísað til staðfestingar í bæjarstjórn.*
**4. Önnur mál
**