Suðurnesjabær
Ferða-, safna- og menningarráð
= Ferða-, safna- og menningarráð =
Dagskrá
=== 1.Kjörnar nefndir erindisbréf ===
1808028
Erindisbréf ferða-, safna- og menningarráðs.
=== 2.Siðareglur kjörinna fulltrúa í Suðurnesjabæ ===
2205093
Á 47. fundi bæjarstjórnar, dags. 6. júlí voru siðareglur kjörinna fulltrúa í Suðurnesjabæ samþykktar samhljóða og undirritaðar og vísað til fastanefnda til kynningar og staðfestingar.
Afgreiðsla:
Farið yfir siðareglur kjörinna fulltrúa og þær undirritaðar.
Farið yfir siðareglur kjörinna fulltrúa og þær undirritaðar.
=== 3.Viðburðir og menningarmál 2022 ===
2201045
Kynning á stöðu mála vegna bæjarhátíðar Suðurnesjabæjar sem fram fer í lok ágúst.
Afgreiðsla:
Farið yfir dagskrá bæjarhátíðarinnar og aðra viðburði sem áætlaðir eru í Suðurnesjabæ yfir almanaksárið. Ráðið lýsir ánægju sinni með dagskrárdrög hátíðarinnar og hvetur íbúa til þess að taka virkan þátt í hátíðarhöldunum. Einnig eru íbúar hvattir til þess að koma hugmyndum sínum á framfæri í gegnum ábendingagátt á heimasíðu og hittast og búa til sína eigin viðburði.

=== 4.Stefna í ferða-, safna og menningarmálum ===
1910062
Upplýsingar um vinnu við stefnumótun í ferða-, safna- og menningarmálum.
Afgreiðsla:
Lagt fram til kynningar og mál í vinnslu.
Lagt fram til kynningar og mál í vinnslu.
=== 5.Byggðasafn Garðskaga ===
1809075
Upplýsingar um samninga vegna reksturs á Garðskaga.
Afgreiðsla:
Lagt fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
=== 6.Framkvæmdasjóður ferðamannastaða ===
2009054
Upplýsingar um framkvæmdasjóð ferðamannastaða en ákveðið hefur verið að flýta ferlinu við auglýsingu og úthlutun styrkja úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða vegna framkvæmda á árinu 2023.
Afgreiðsla:
Lagt fram til kynningar. Ráðið telur mikilvægt að Suðurnesjabær sæki um í sjóðinn í næstu úthlutun.
Lagt fram til kynningar. Ráðið telur mikilvægt að Suðurnesjabær sæki um í sjóðinn í næstu úthlutun.
Fundi slitið - kl. 19:00.
Umræður um hlutverk ráðsins og erindisbréf lagt fram til kynningar.