Fjarðabyggð
Bæjarráð - 759
**1. 1905130 - Samstarfsvettvangur sveitarfélaganna fyrir heimsmarkmið um sjálfbæra þróun og loftslagsmál**
|Framlagt bréf Sambands íslenskra sveitarfélag þar sem boðað er til upplýsinga- og samráðsfundar 31. ágúst nk. milli kl 08:00 og 09:00 á Teams þar sem farið verður yfir framgang og stöðu innleiðingu heimsmarkmiðanna hjá sveitarfélögum sem ákváðu þátttöku í þeim 2021. Fundurinn er ætlaður til að upplýsa nýkjörna fulltrúa sem og þá sem komið hafa að vinnu við innleiðinguna sem og að halda áfram samstarfi um hana.|
Bæjarráð samþykkir að bæjarstjórn fái boð um að setja fundinn ásamt skipulags- og umhverfisfulltrúa.
[anna_220712-134819-49.pdf](
displaydocument.aspx?
itemid=SZQPRtBzIEeVDVkvfM4sg&meetingid=9M8xOTgL6kmth2LlYKXXXQ1
&filename=anna_220712-134819-49.pdf)
**2. 2207084 - Fyrirspurn um framtíð tjaldsvæðis á Stöðvarfirði**
|Framlögð fyrirspurn Íbúasamtaka á Stöðvarfirði um framtíð tjaldsvæðisins á Stöðvarfirði.|
Bæjarráð tekur undir sjónarmið íbúasamtakanna varðandi mótun stefnu um framtíð tjaldsvæðisins. Erindi Íbúasamtakanna um staðsetningu tjaldsvæðis á íþróttavellinum á Stöðvarfirði vísað til mannvirkja- og veitunefndar til umfjöllunar og kostnaðargreiningar.
[Til bæjarstjórnar Fjarðabyggðar.pdf](
displaydocument.aspx?
itemid=YsuRvsGSCUakBilQuCNBg&meetingid=9M8xOTgL6kmth2LlYKXXXQ1
&filename=Til bæjarstjórnar Fjarðabyggðar.pdf)
**3. 2207101 - Meint vanhæfi formanns umhverfis- og skipulagsnefndar**
|Þuríður Lillý Sigurðardóttir vék af fundið við umfjöllun og afgreiðslu dagskrárliðar.|
Framlagt erindi Ívars Ingimarssonar um meint vanhæfi formanns umhverfis- og skipulagsnefndar vegna umfjöllunar um erindi hans vegna ágangs sauðfjár í Stöðvarfirði.
Bæjarráð telur að engar forsendur séu fyrir vanhæfi.
**4. 2207068 - Rammasamningur um aukið framboð íbúða 2023-2032**
|Lagður fram til kynningar rammasamningur um húsnæðismál milli Innviðaráðuneytisins, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Húnæðis- og mannvirkjastofnunar.|
Bæjarráð samþykkir að skipaður verði starfshópur á grundvelli erindisbréfs og vinni upplýsingar vegna rammasamnings um húsnæðismálin. Erindisbréf lagt fyrir á næsta fundi bæjarráðs ásamt því að starfshópurinn verður skipaður.
[Rammasamningur HMS tölvupóstur.pdf](
displaydocument.aspx?
itemid=ravw3Ww8fkymW9fUcZp7PQ1&meetingid=9M8xOTgL6kmth2LlYKXXXQ1
&filename=Rammasamningur HMS tölvupóstur.pdf)
[Rammasamningur IRN Samband HMS - undirritað.pdf](
displaydocument.aspx?
itemid=5aUKfIA4M0ek5W_FtpHegw&meetingid=9M8xOTgL6kmth2LlYKXXXQ1
&filename=Rammasamningur IRN Samband HMS - undirritað.pdf)
**5. 2204062 - Rekstur málaflokka 2022 - TRÚNAÐARMÁL**
|Lagt fram sem trúnaðarmál yfirlit yfir rekstur málaflokka og framkvæmdir fyrir janúar - maí og skatttekjur og launakostnað fyrir janúar - júní 2022|
**6. 2207107 - Styrkumsókn - Regnbogahátíð Hinsegin Austurlands**
|Framlögð beiðni frá Regnbogahátíð Hinsegin Austurlands um fjárframlag til hátíðarinnar.|
Bæjarráð samþykkir að veita 100.000 kr. styrk til hátíðarinnar, tekið af liðnum óráðstafað 21-690.
[styrkumsókn - Regnbogahátíð Hinsegin Austurlands.pdf](
displaydocument.aspx?
itemid=zc1KhUq0BUyFHmUGHKZNBg&meetingid=9M8xOTgL6kmth2LlYKXXXQ1
&filename=styrkumsókn - Regnbogahátíð Hinsegin Austurlands.pdf)
**7. 2207004F - Mannvirkja- og veitunefnd - 2**
|Fundargerð mannvirkja- og veitunefndar frá 11. júlí tekin til umfjöllunar og fullnaðarafgreiðslu.|
Bæjarráð staðfestir fundargerð mannvirkja- og veitunefndar í umboði bæjarstjórnar sem fól bæjarráði fullnaðarumboð til afgreiðslu mála meðan á sumarleyfi hennar stendur.
**7.1. 2001140 - Fjarðabyggðarhöll - ástand og aðgerðir**
**7.2. 2101055 - Íþróttahús Reyðarfirði - nýbygging 2021**
**7.3. 2202061 - Fundargerðir Heilbrigðiseftirlits Austurlands 2022**