Húnaþing vestra
Byggðarráð - 1142. Fundur
**Afgreiðslur:**
-
**Rekstraryfirlit fyrir aðalsjóð og undirfyrirtæki janúar – júní 2022. **Elín Jóna Rósinberg, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs, mætti til fundar og fór yfir rekstur deilda fyrstu sex mánuði ársins. Rekstur deilda er almennt í samræmi við fjárhagsáætlun, þó má greina frávik í rekstri brunavarna sem skýrist m.a. af nýjum kjarasamningum og fyrirkomulagi bakvakta. Byggðarráð þakkar Elínu Jónu fyrir greinargóða yfirferð.
-
**2207034 Lagt fram boð á upplýsinga- og samráðsfund um framhald samstarfs um innleiðingu Heimsmarkmiða sameinuðu þjóðanna** sem haldinn verður 31. ágúst nk. í fjarfundi. Nýkjörnir sveitarstjórnarfulltrúar sérstaklega hvattir til að mæta.
-
**2207033 Rammasamningur um aukið íbúðaframboð 2023-2032**, lagður fram til kynningar.
-
** ** **2207032 Erindi frá Regínu Ólínu Þórarinsdóttur Berndsen **sem snýr að aðstöðu og innviðum á Laugarbakka **. **Byggðarráð felur sveitarstjóra að bjóða Regínu Ólínu til fundar.
-
** ** **Lögð fram tilboð í deiliskipulag á Laugarbakka og við Hvítserk. **Tilboð bárust frá Landmótun, Eflu og Teiknistofu Norðurlands. Sveitarstjóra og skipulagsfulltrúa falið að ganga frá samningum við Landmótun vegna deiliskipulags á Laugarbakka og við Hvítserk. Bogi Magnusen Kristinsson skipulagsfulltrúi sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
-
**Reykjatangi ehf.** Þorvaldur Árnason og Arnar Þór Stefánsson komu til fundar f.h. Reykjatanga ehf. Farið var yfir viðskilnað Reykjatanga ehf. við sveitarfélagið vegna reksturs skólabúða á Reykjum. Byggðarráð felur sveitarstjóra og lögfræðingi sveitarfélagsins að vinna drög að samkomulagi og leggja fyrir byggðarráð.
**Bætt á dagskrá:**
**7. Skólastjóri Tónlistarskóla Húnaþings vestra. **Auglýst var eftir skólastjóra Tónlistarskóla Húnaþings vestra. Enginn umsækjenda uppfyllti þær hæfiskröfur sem settar voru fram í auglýsingu. Lögð fram eftirfarandi tillaga: „Byggðarráð leggur til að hætt verði við ráðningu skólastjóra Tónlistarskóla Húnaþings vestra. Vegna þess felur byggðarráð sveitarstjóra og sviðsstjóra fjölskyldusviðs að koma með tillögu að fyrirkomulagi á stjórnun skólans næsta skólaár 2022-2023.“ Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 3 atkvæðum.
**8. Hleðslustöðvar á Hvammstanga. **Náðst hefur samkomulag við Orku náttúrunnar um uppsetningu hleðslustöðva fyrir rafbíla í samvinnu við sveitarfélagið. Hleðslustöðvarnar verða settar upp við íþróttamiðstöðina og Félagsheimilið Hvammstanga.
** **
Fundargerð upplesin og samþykkt. Fundi slitið kl. 17:18.