Húnaþing vestra
Skipulags- og umhverfisráð - 347. fundur.
**Dagskrá:**
- Erindi nr.
**2201037.** ** **Laxárdalsvegur, framkvæmdarleyfi.
- Erindi nr.
**2208001.** Svalbarð, stofnun lóðar.
**1. Erindi nr. 2201037. Laxárdalsvegur, framkvæmdarleyfi.**
Vegagerðin óskar hér með eftir framkvæmdaleyfi til Húnaþings vestra skv. 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og reglugerð nr. 772/2012 um framkvæmdaleyfi.
Laxárdalsvegur verður endurbyggður í vegstæði núverandi vegar með nokkrum lagfæringum á plan- og hæðarlegu. Á vegarkaflanum er einbreið brú yfir Laxá sem ekki verður endurnýjuð og er vegur aðlagaður að henni. Verkið verður boðið út og er áætlað að framkvæmdir hefjist í sumar. Áætlað er að framkvæmdum verði að fullu lokið haustið 2023.
*Byggðarráð samþykkti á fundi sínum dags, 12. júlí 2022 óverulega breytingu á aðalskipulagi Húnaþings vestra 2014-2026 skv. 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og staðfest var hjá Skipulagsstofnun 2. ágúst með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.*
*Skipulags- og umhverfisráð leggur til við sveitarstjórn að samþykkja framkvæmdaleyfi skv. 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og reglugerð nr. 772/2012. Framkvæmdin er í samræmi við skipulag og er ekki tilkynningarskyld samkvæmt lögum um mat á umhverfisáhrifum nr. 111/2022.*
**2. Erindi nr. 2208001. Svalbarð, stofnun lóðar.**
Hindisvík ehf. sækir um stofnun lóðar úr landi Svalbarðs, lnr. 144512, samkvæmt uppdrætti gerðum af Skúla Húni Hilmarssyni dags. 1. ágúst 2022. Stofnuð lóð fær heitið Svalbarð 2.
*Skipulags- og umhverfisráð samþykkir stofnun lóðar Svalbarðs 2.*