Hvalfjarðarsveit
Fræðslunefnd 41. fundur
= Fræðslunefnd =
Dagskrá
Inga María Sigurðardóttir og Ásdís Björg Björgvinsdóttir boðuðu forföll.
=== 1.Beiðni vegna sértækra stuðningsþarfa. ===
2206021
Erindi frá skólastjóra Heiðarskóla.
Fræðslunefnd leggur til við sveitarstjórn að verða við beiðni skólastjóra Heiðarskóla vegna sérstakra stuðningsþarfa með viðauka við fjárhagsáætlun 2022 og við fjárhagsáætlunargerð fyrir árið 2023 í samræmi við gögn málsins.
=== 2.Umsókn um leikskólavist utan lögheimilissveitarfélags ===
2208002
Umsókn.
Fræðslunefnd synjar beiðni um kostnaðarþátttöku við leikskólavist utan lögheimilissveitarfélags þar sem umsóknin grundvallast ekki á skilyrðum Hvalfjarðarsveitar sbr. Reglur Hvalfjarðarsveitar um kostnaðarþátttöku og leikskóladvöl barna utan lögheimlissveitarfélags.
=== 3.Leikskólahúsnæði - þarfagreining 2022 ===
2202016
Skýrsla - framtíðarsýn í leikskólamálum.
Umræða um næstu skref varðandi leikskólahúsnæði og kynning á skýrslu starfshópsins um framtíðarsýn í leikskólamálum í Hvalfjarðarsveit frá apríl 2022.
=== 4.Beiðni um kaup á búnaði ===
2208006
Erindi frá skólastjóra Heiðarskóla.
Fræðslunefnd samþykkir að fresta afgreiðslu málsins til næsta fundar nefndarinnar.
=== 5.Trúnaðarmál fræðslunefndar ===
2108003
Trúnaðarmál 2108002.
Mál nr. 2108002
Erindi fært í trúnaðarbók
Erindi fært í trúnaðarbók
Fundi slitið - kl. 17:15.