Húnaþing vestra
Fjallskilastjórnir - Fjallskilastjórn Hrútfirðinga að austan
Stjórn hittist til að ræða fjallskilaseðil og uppfæra. Mat á fjallskilaskyldri vinnu hækkuð um 5% og akstur um 10% vegna verðhækkana.
Göngur verði 1. Sept. og réttað verði 3. Sept. Laugardag.
Önnur leit fari fram laugardaginn 10. september. Nema veður hamli.
Fyrri heimalandasmölun skal fara fram 24. september og skilarétt
sunnudaginn 25. september kl. 10:00 – Seinni laugardaginn 8. Október.
Formanni falið að klára setja upp og senda fjallskilaseðil.
Fleira ekki tekið fyrir og fundi slitið klukkan 23.15
**Fjallskilaseðill 2022**
Á fundi stjórnar Fjallskiladeildar Hrútfirðinga þann 8. ágúst 2022 var samþykkt að í haust verði fjallskil á svæðinu með eftirfarandi hætti
**Fyrsta leit fari fram fimmtudaginn 1. og föstudaginn 2 september og réttað verði að morgni laugardagsins 3. september** **.** Leit skal haga þannig að allt svæðið, þ.e. bæði heiðin og Meladalur verði smöluð á sama tíma.
** **
__Kl. 12:00__ ** að morgni** ** fimmtud. 1. september skulu 7 gangnamenn vera ferðafærir við Bláhæð.**
Verkefni þeirra verður að smala fremsta hluta heiðarinnar eins langt og tími leyfir.
Eftirtalin bú leggi til gangnamenn: Eyjanes 1. - Reykir II 2. - Akurbrekka 1. –
Þóroddsstaðir 1. - Bálkastaðir I 2.
** **
**Að kvöldi fimmtudagsins 1. september skulu vera mættir 20 gangnamenn í Skútaskála** **. ** Eftirtalin bú leggi til gangnamenn: Eyjanes 2. - Reykir II 3. - Akurbrekka 3. - Þóroddsstaðir 3. - Brautarholt 1. –
Hvalshöfði 1. - Bálkastaðir I 5. - Hrútatunga 2.
** **
**Að morgni föstudagsins 2. september ** __kl. 8.00__ ** ** **skulu vera mættir 5 gangnamenn við Bláhæð** **.** Eftirtalin bú leggi til gangnamenn: Reykir II 2. - Akurbrekka 1. – Þóroddsstaðir 1. – Bálkastaðir I 1.
**Fjallkóngur í 1. leit er Þorsteinn á Reykjum.**
**Réttarstörf hefjast ** __kl. 9.00__ ** ** **laugardaginn 3. september.**
**Réttarstjóri í Hrútatungurétt verði Guðmundur á Jaðri .**
** **
Marklýsing er í höndum Aðalheiðar á Reykjum og Matthildar Hjálmarsdóttur.
Skilamaður í Miðfjarðarrétt verði Ásgeir í Brautarholti
**.**
** **
Akstur á fé úr Miðfjarðarrétt Brautarholtsbúið.
Kerra fram að hliði að austan, Þóroddstaðabúið.
** **
**Æskilegt er að leitarmenn séu klæddir litsterkum utanyfirfötum á meðan leit stendur og noti viðeigandi ** __öryggishjálma/búnað.__ **Munið eftir skærlitu vestunum.**
Gangnamenn yngri en 16 ára verða ekki teknir gildir sem leitarmenn nema með samþykki Fjallkóngs.
Ákveði fjallskilanefnd að fella niður eitthvað af álagðri fjallskilavinnu munu viðkomandi aðilar ekki fá
hana greidda. Sama gildir ef menn skila ekki þeirri vinnu sem á þá er lögð.
__ __
__Leitarmenn eru minntir á að leitum er ekki lokið fyrr en allt __
__safnið er komið inn í safngirðingu!__
** **
** **
**Önnur leit fari fram laugardaginn 10. september. **
**Nema veður hamli** **. Gangnamenn skulu vera ferðafærir ** __kl. 8.30__ ** ** **við Leirhnjúk.**
Eftirtalin bú leggi til gangnamenn, alls 15, þar af 3 á Meladal:
Tannstaðabakki 1. - Eyjanes 1. - Reykir II 2. - Akurbrekka 2. - Þóroddsstaðir 1. - Brautarholt 1. –
Bálkastaðir I 3. - Hrútatunga 1.
Á Meladal: Reykir II 1. - Þóroddsstaðir 1. - Bálkastaðir I 1.
**Fjallkóngur í 2. leit verði Þorsteinn á Reykjum.**
Akstur á fé frá hliði við Síká í annari leit: Búið á Reykjum II.
Akstur á fé úr Dæld í annari leit: Hrútatungubúið.
**Heimalandasmalanir verði tvær.** **Sú fyrri fari fram laugardaginn ** **24. september ** **og **
**skilarétt fari fram sunnudaginn 25. september og hefjist** __kl. 10.00__ __ __
Réttarstjóri í Skilarétt verði Guðmundur á Jaðri .
Marklýsing er í höndum Aðalheiðar á Reykjum og Matthildar Hjálmarsdóttur.
Skilamaður í skilarétt Miðfirðinga verði Gunnar á Þóroddsstöðum.
Akstur á fé úr skilarétt Þóroddstaðabúið.
** **
**Seinni heimalandasmölun** **fari fram laugardaginn 8. október **
og segi menn til fjár er fram kemur þá.
** Fjallskilastjórn Hrútfirðinga**