Skorradalshreppur
Hreppsnefnd - 170. fundur
=== Hreppsnefnd Skorradalshrepps ===
Fundur nr. 170
==== miðvikudaginn 10. ágúst 2022 kl.17:00, hélt hreppsnefnd Skorradalshrepps fund á ====
Hvanneyri. Þessir sátu fundinn: Pétur Davíðsson, Jón E. Einarsson, Guðný
Elíasdóttir, Óli Rúnar Ástþórsson og Sigrún Guttormsdóttir Þormar.
Fundargerð ritaði: Pétur Davíðsson, hreppsnefndarmaður.
**Þetta gerðist:**
**Almenn mál** **1. Skólaakstur – Mál nr. 2207007**
Tekin fyrir verðkönnun í skólaakstur
Oddviti lagði niðurstöður verðkönnunarinnar. Fjórum aðilum var boðið að senda
inn tölur, en það komu tölur frá þremur aðilum. Oddvita heimilað að ganga til
samninga við lægstbjóðenda til eins árs með fyrirvara um niðurstöðu um
aukaaksstur.
**2. Vegna refa og minkaveiða. – Mál nr. 2205004**
Bréf frá Birgi Haukssyni. Erindinu var vísað til nýrrar hreppsnefndar.
Oddviti lagði fram tillögu um greiðslur vegna unnina dýra. Það samþykkt.
**3. Orlofsnefnd Mýra og Borgarfjarðarsýslu – Mál nr. 2208001**
Tekið fyrir erindi frá orlofsnefnd húsmæðra Mýra- og Borgarfjarðarsýslu
Lagt fram.
**4. Fjárhagsstaða svetarfélagsins – Mál nr. 2208002**
Farið yfir fjárhagsstöðu sveitarfélagsins og tillögur ræddar
Lagt fram minnisblað frá ÓRÁ. Umræður urðu um stöðuna. ÓRÁ og PD vinna að
útfærslum á upplýsingastreymi fyrir nefndarmenn.
**5. Kosning fulltrúa í Þróunarfélag Grundartanga ehf. – Mál nr. 2208003**
Kosning fulltrúa í Þróunarfélag Grundartanga ehf. fyrir árið 2022.
Samþykkt að Jón E. Einarsson verði aðalmaður og Óli Rúnar Ásgeirsson verði til
vara.
**6. Lögheimili sveitarfélagins og prókúruhafi – Mál nr. 2208004**
Lagt til að lögheimili sveitarfélagsins verði að Mófellsstaðakoti hjá oddvita.
Eins að oddviti Jón Eiríkur Einarsson sé prókúruhafi sveitarfélagsins.
Það samþykkt.
Fleira ekki gert.
Fundi slitið kl. 19:45.