Skagafjörður
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa
= Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa =
Dagskrá
=== 1.Birkihlíð 145968 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi ===
2203241
Atli Gunnar Arnórsson sækir f.h. Þrastar H. Erlingssonar um leyfi til að útbúa sláturaðstöðu og framleiðslueldhús í tengslum við núverandi kjötvinnslu á jörðinni Birkihlíð, L145968. Framlagðir aðaluppdrættir gerðir á Stoð ehf. verkfræðistofu af Atla Gunnari Arnórssyni byggingarverkfræðingi. Uppdrættir í verki 73143001, númer A-100, A-101, A-102 og A-103, dagsettir 14. febrúar 2022. Byggingaráform samþykkt.
=== 2.Ríp 2 146396 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi ===
2204041
Atli Gunnar Arnórsson sækir f.h. Birgis Þórðarsonar um leyfi til að byggja við og breyta þeim hluta geymslu sem stendur á jörðinni Ríp 2, L146396 í kjötvinnslu. Framlagðir aðaluppdrættir gerðir á Stoð ehf. verkfræðistofu af Atla Gunnari Arnórssyni byggingarverkfræðingi. Uppdrættir í verki 756410, númer A-100, A-101, A-102 og A-103, dagsettir 30. mars 2022. Fyrir liggur samþykki Halldórs Gunnlaugssonar, eiganda sambyggðrar geymslu sem stendur á jörðinni Ríp 3, L146397. Byggingaráform samþykkt.
=== 3.Sjávarborg IIA - Umsókn um byggingarleyfi ===
2207122
Helga Jóhanna Haraldsdóttir, Björn Hansen og Edda Eiríka Haraldsdóttir sækja um leyfi til að setja svalir og svaladyr út frá stofu annarrar hæðar fjöleignahúss sem stendur á lóðinn Sjávarborg IIA, L229261. Framlagðir aðaluppdrættir gerðir af Ingvari Gýjar Sigurðarsyni tæknifræðingi. Uppdrættir í verki 3142, númer A-101 og A-102, dagsettir 12. júlí 2022. Erindið samþykkt, byggingarleyfi veitt.
=== 4.Víðigrund 1 - Umsókn um byggingarleyfi ===
2208038
Gígja Hrund Símonardóttir og Helgi Svanur Einarsson sækja um leyfi til að breyta útliti einbýlishúss sem stendur á lóðinni nr. 1 við Víðigrund. Breytingin varðar nýja hurð á suðurhlið hússins, ásamt verönd við húsið. Framlagður uppdráttur gerður af Ingvari Gýjar Sigurðarsyni tæknifræðingi. Uppdráttur númer A-101, dagsettur 13. júlí 2022. Erindið samþykkt, byggingarleyfi veitt.
=== 5.Flugumýrarhvammur - Umsókn um byggingarleyfi ===
2207066
Rögnvaldur Ólafsson sækir um leyfi til að setja niður geymslubragga á áður samþykktum byggingarreit á jörðinni Flugumýrarhvammi, L146280. Framlagður uppdráttur gerður á Stoð ehf. verkfræðistofu af Atla Gunnari Arnórssyni byggingarverkfræðingi. Uppdráttur í verki 70410202, númer A-101, dagsettur 31. maí 2022, ásamt afstöðumynd nr. S-101, dagsettri 12. maí 2022. Erindið samþykkt, byggingarleyfi veitt.
=== 6.Kirkjugata 17 - Umsókn um byggingarleyfi. ===
2208050
Bjarni K. Þórisson og Ingibjörg S. Halldórsdóttir sækja um leyfi til að gera breytingar á útliti einbýlishúss sem stendur á lóðinni númer 17 við Kirkjugötu á Hofsósi. Framlagðir uppdrættir gerðir af Ingvari Gýjar Sigurðarsyni tæknifræðingi. Uppdrættir í verki 3205, númer A-101 og A-102, dagsettir 14. júlí 2022. Erindið samþykkt, byggingarleyfi veitt.
=== 7.Viðvík land 178681 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi ===
2206047
Þórir Guðmundsson sækir f.h. Guðríðar B. Magnúsdóttur og Kára Ottóssonar um leyfi til að byggja íbúðarhús á landinu Viðvík land, L178681. Framlagðir aðaluppdrættir gerðir á Teiknistofu Þ. Guðmundssonar af Þóri Guðmundssyni byggingarfræðingi. Uppdrættir í verki HA22106, númer A-101, A102 og A-103 dagsettir 20. maí 2022. Byggingaráform samþykkt.
=== 8.Árnes 146145 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi ===
2208058
Atli Gunnar Arnórsson sækir f.h. Arnars M. Sigurðarsonar um leyfi til að breyta hlöðu, mhl. 07 á jörðinni Árnesi, L146145 í fóður- og geldneytiaðstöðu. Framlagðir aðaluppdrættir gerðir á Stoð ehf. verkfræðistofu af Atla Gunnari Arnórssyni byggingarverkfræðingi. Uppdrættir í verki 78180101, númer A-101, A-102 og A-103, dagsettir 5. ágúst 2022. Byggingaráform samþykkt.
Fundi slitið - kl. 16:15.