Vesturbyggð
Bæjarstjórn - 373
= Bæjarstjórn #373 =
Fundur haldinn í Brellum, fundarsal í ráðhúsi Vesturbyggðar, 17. ágúst 2022 og hófst hann kl. 17:00
====== Nefndarmenn ======
- Anna Vilborg Rúnarsdóttir (AVR) aðalmaður
- Ásgeir Sveinsson (ÁS) aðalmaður
- Friðbjörn Steinar Ottósson (FSO) aðalmaður
- Guðrún Eggertsdóttir (GE) aðalmaður
- Jón Árnason (JÁ) aðalmaður
- Svanhvít Sjöfn Skjaldardóttir (SSS) aðalmaður
- Þórkatla Soffía Ólafsdóttir (ÞSÓ) aðalmaður
====== Starfsmenn ======
- Gerður Björk Sveinsdóttir (GBS) staðgengill bæjarstjóra
====== Fundargerð ritaði ======
- Gerður Björk Sveinsdóttir staðgengill bæjarstjóra
== Almenn erindi ==
=== 1. Seinna tilboð í slökkvibíl fyrir Bíldudal ===
Lagt fram minnisblað slökkviliðsstjóra dags. 10. ágúst 2022 vegna útboðs á slökkviliðsbíl fyrir slökkviliðið á Bíldudal. Fimm tilboð bárust og var lægstbjóðandi Moto Truck og var tilboðið 14% yfir kostnaðaráætlun.
Lagt er til í minnisblaðinu að tilboðinu verði tekið.
Til máls tók: Forseti
Bæjarstjórn Vesturbyggðar samþykkir að taka tilboði Moto Truck í nýjan slökkvibíl fyrir slökkviliðið á Bíldudal.
=== 2. Ráðning bæjarstjóra ===
Ráðningasamningur við bæjarstjóra Þórdísi Sif Sigurðardóttur lagður fram til samþykktar. Ráðningin var tekin fyrir á 944. fundi bæjarráðs Vesturbyggðar þar sem samþykkt var að ráða Þórdís Sif sem bæjarstjóra Vesturbyggðar.
Til máls tók: Forseti
Ráðningasamningurinn er samþykktur samhljóða.
Bæjarstjórn Vesturbyggðar býður Þórdísi Sif Sigurðardóttur velkomna til starfa.
=== 3. Ráðning leikskólastjóra við Araklett á Patreksfirði ===
Lögð fram bókun fræðslu- og æskulýðsráðs frá 79. fundi ráðsins 9. ágúst sl. þar sem lagt er til að Bergdís Þrastardóttir verði ráðin í starf leikskólastjóra leikskólans Arakletts á Patreksfirði.
Til máls tók: Forseti
Bæjarstjórn Vesturbyggðar samþykkir að ráða Bergdísi Þrastardóttur sem leikskólastjóra leikskólans Arakletts og felur bæjarstjóra að ganga frá ráðningasamningi við Bergdísi.
Bæjarstjórn Vesturbyggðar býður Bergdísi Þrastardóttur velkomna til starfa.
=== 4. Móberg, Rauðasandi - Endurheimt votlendis, framkvæmdaleyfi. ===
Erindi frá Votlendissjóði, dags. 10. ágúst. Í erindinu er sótt um framkvæmdaleyfi að beiðni eigenda fyrir endurheimt votlendis á um 55ha svæði á jörðinni Móberg, Rauðasandi. Áætlaður framkvæmdatími er ágúst og september 2022.
Landgræðslan hefur mælt losun svæðisins og staðfest. Starfsmenn hennar stýra verkinu sem verður unnið af verktakanum Þotunni frá Bolungavík og undirverktaka hennar frá Tálknafirði.
Samkvæmt umsókninni hefur enginn búskapur verið stundaður á Móbergi síðan 1995. Á fyrirhuguðu endurheimtasvæði er lítill landhalli. Engar minjar eru skráðar á jörðinni (kortavefur Minjastofnunar Íslands). Syðst á svæðinu er einn raflínustaur, endurheimtin mun ekki hafa áhrif á línuna eða framtíðar áform er línan verður lögð í jörðu. Erindinu fylgir yfirlitsmynd af landinu, samantekt frá RFK ráðgjöf dags. 11.02.2022 ásamt kynningarriti Skipulagsstofnunar um Endurheimt votlendis.
Skipulags- og umhverfisráð tók málið fyrir á 97. fundi sínum þar sem samþykkt var að skipulagsfulltrúa verði heimilt að veita framkvæmdaleyfi sbr. 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 11. gr. reglugerðar um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012 með fyrirvara um jákvæða umsögn Minjavarðar. Ráðið leggur til við framkvæmdaraðila að framkvæmdin verði þannig útfærð að ekki myndist slysagildrur fyrir dýr og menn.
Til máls tók: Forseti
Bæjarstjórn samþykkir að skipulagsfulltrúa verði heimilt að veita framkvæmdaleyfi sbr. 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 11. gr. reglugerðar um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012 með fyrirvara um jákvæða umsögn Minjavarðar.
=== 5. Brjánslækjarhöfn. Framkvæmdarleyfi, grjótgarður. ===
Tekið fyrir erindi frá Hafnasjóð Vesturbyggðar, dags. 12. Ágúst 2022. Í erindinu er sótt um framkvæmdaleyfi fyrir byggingu á nýjum grjótgarði fyrir smábátahöfn í Brjánslækjarhöfn. Útlögn á grjóti og kjarna úr námu og af lager samtals um 27.300m3, upppúrtekt og endurröðun um 1.200m3. Sprengt verður fyrir um 10.000m3 af grjóti úr námu E2, um 10.000m3 af malarefni verður fengið úr námu E3. Áætluð verklok eru 31. desember 2022.
Erindinu fylgir yfirlitsmynd sem sýnir hafnarsvæðið og garðinn. Leyfisbréf frá Umhverfisstofnun dags. 10. júní fyrir varpi í hafið. Ákvörðun Skipulagsstofnunar um matsskyldu dags. 1. febrúar 2022, þar sem niðurstaða Skipulagsstofnunar er að fyrirhuguð framkvæmd sé ekki líkleg til að hafa í för með sér umtalsverð umhverfisáhrif, sbr. þau viðmið sem tilgreind eru í 2. viðauka laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana. Því skuli framkvæmdin ekki háð mati á umhverfisáhrifum. Þá fylgir erindinu samþykki Ríkiseigna fyrir framkvæmdunum.
Skipulags- og umhverfisráð tók málið fyrir á 97. fundi sínum þar sem samþykkt var að skipulagsfulltrúa verði heimilt að veita framkvæmdaleyfi sbr. 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 11. gr. reglugerðar um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012 með fyrirvara um samþykki ábúenda.
Til máls tók: Forseti
Bæjarstjórn samþykkir að skipulagsfulltrúa verði heimilt að veita framkvæmdaleyfi sbr. 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 11. gr. reglugerðar um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012 með fyrirvara um samþykki ábúenda.
== Fundargerð ==
===
6.
===
Bæjarráð - 941
Lögð fram til kynningar fundargerð 941. fundar bæjarráðs, fundurinn var haldinn 15. júní 2022. Fundargerðin er í 30 liðum.
Til máls tók: Forseti
[6.1. #2201017 – Stjórnskipan Vesturbyggðar - skipan í ráð og nefndir 2022](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2201017/) [6.2. #2205040 – Umsagnarbeiðni rekstrarleyfi - Pálshús](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2205040/) [6.3. #2205031 – Beiðni um að reisa gróðurhús við kamb](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2205031/) [6.4. #2206024 – Þáttargerð á sunnanverðum Vestfjörðum - beiðni um styrk](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2206024/) [6.5. #2205022 – Brotthvarf úr framhaldsskólum](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2205022/) [6.6. #2205023 – Orlof húsmæðra 2022](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2205023/) [6.7. #2206006 – Áskorun til sveitarfélaga vegna fasteignaskatts](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2206006/) [6.8. #2206008 – 67. Fjórðungsþing Vestfirðinga að sumri, 14. júní 2022](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2206008/) [6.9. #2205042 – Mál nr. 563 um stefnumótandi byggðaáætlun fyrir árin 2022-2036. Ósk um umsögn](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2205042/) [6.10. #2205003 – Fundargerð nr 909 stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2205003/) [6.11. #2205004 – Mál nr 482 um atvinnuréttindi útlendinga ( einstaklingar sem flytjast til innan viðskiptafyrirtækis) ósk um umsögn](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2205004/) [6.12. #2004011 – Hjúkrunarrými á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða Patreksfirði](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2004011/) [6.13. #2205009 – Mál nr. 593 um sorgarleyfi. Ósk um umsögn](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2205009/) [6.14. #2102072 – Reikningsskil sveitarfélaga - breyting á reglugerð 1212-2015](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2102072/) [6.15. #2205029 – Bréf til sveitarfélaga frá mennta- barnamálaráðherra vegna móttöku barna á flótta frá Úkraníu](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2205029/) [6.16. #2203080 – Sorhirða Verkfundargerðir Verktaka og Verkkaupa](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2203080/) [6.17. #2205036 – Fundargerð 138 fundar Heilbrigðisnefndar 11. maí 2022 ásamt bréfi heilbrigðisnefndar til Fjórðungssambandsins](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2205036/) [6.18. #2205043 – Mál nr. 595 um útlendinga (alþjóðleg vernd). Ósk um umsögn](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2205043/) [6.19. #2205047 – Mál nr. 592 um framkvæmdaáætlun í málefnum innflytenda. Ósk um umsögn](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2205047/) [6.20. #2205049 – Mál nr. 573 um skipulagsmál ( uppbygging innviða). Ósk um umsögn](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2205049/) [6.21. #2205050 – Mál nr. 571 um sveitarstjórnarlög (íbúakostningar á vegnum sveitarfélaga). Ósk um umsögn](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2205050/) [6.22. #2205063 – Rofavörn frá hafnarsvæði að Yxnahamrar](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2205063/) [6.23. #2206023 – Fjárhagsáætlun 2023 - 2026](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2206023/) [6.24. #2206026 – Ársreikningur Náttúrustofu Vestfjarða 2021](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2206026/) [6.25. #2206022 – Rekstur og fjárhagsstaða 2022.](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2206022/) [6.26. #2201042 – Fjárhagsáætlun 2022 - viðaukar](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2201042/) [6.27. #2010046 – Ofanflóðavarnir á Bíldudal](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2010046/) [6.28. #2204016 – Skólamötuneyti á Bíldudal](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2204016/) [6.29. #2205035 – Endurskoðun á samningi um styrk til björgunarsveitarinnar Blakks](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2205035/) [6.30. #2205034 – Endurskoðun á samningi um rekstur upplýsingamiðstöðvar í Vesturbyggð](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2205034/)
===
7.
===
Bæjarráð - 942
Lögð fram til kynningar fundargerð 942. fundar bæjarráðs, fundurinn var haldinn 28. júní 2022. Fundargerðin er í 14 liðum.
Til máls tók: Forseti
[7.1. #2201017 – Stjórnskipan Vesturbyggðar - skipan í ráð og nefndir 2022](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2201017/) [7.2. #2206032 – Þinggerð 67. fjórðungsþ. kosningarsumar 2022](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2206032/) [7.3. #2206033 – Ársreikningur 2021 og samþykktir Landskerfi bókasafna hf. ásamt aðalfundarboði](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2206033/) [7.4. #2206030 – Félag skógarbænda á Vestfjörðum - ársreikningur](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2206030/) [7.5. #2002139 – Umhverfisstofnun - Lokunareftirlit 14.06.18 í aflagðan urðunarstað Vesturbyggðar í Vatnseyrarhlíðum](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2002139/) [7.6. #2206040 – Ársskýrsla Persónuverndar 2021](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2206040/) [7.7. #2206034 – Ósk um upplýsingar vegna endurskoðunar stefnumótandi áætlunar í málefnum sveitarfélaga 2019-2033, Landsskipulagsstefnu 2015-2026 og nýja húsnæðisstefnu](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2206034/) [7.8. #2206021 – Styrkbeiðni vegna ferðakostnaðar á Haustþing 2022](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2206021/) [7.9. #2205051 – Sumarlokun 2022 - Ráðhús Vesturbyggðar](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2205051/) [7.10. #2203081 – Strandsvæðaskipulag Vestfjarða](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2203081/) [7.11. #2206035 – Uppfæra Street View í Vesturbyggð](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2206035/) [7.12. #2111059 – Ósk um óformlegar viðræðum um sameiningu sveitarfélaga](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2111059/) [7.13. #2206039 – Bréf frá eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga vegna ársreiknings 2021](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2206039/) [7.14. #2206042 – Boð á aðalfund Byggðasamlags Vestfjarða ásamt tillögu að breytingu á samþykktum og ársreikningi](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2206042/)
===
8.
===
Bæjarráð - 943
Lögð fram til kynningar fundargerð 943. fundar bæjarráðs, fundurinn var haldinn 14. júlí 2022. Fundargerðin er í 23 liðum.
Til máls tók: Forseti
[8.1. #2107043 – Framkvæmdaáætlun bæjarstjórnar - lagning vegar að fimm lóðum í Mórudal](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2107043/) [8.2. #2207003 – Balar 2 - deiliskipulag](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2207003/) [8.3. #2110023 – Hóll, Bíldudal. Deiliskipulag Íbúabyggðar.](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2110023/) [8.4. #2207011 – Aðalstræti 133. Umsókn um lóð.](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2207011/) [8.5. #2207010 – Langholt 3. Umsókn um lóð.](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2207010/) [8.6. #2206011 – Urðargata 21 - umsókn um lóð.](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2206011/) [8.7. #2207021 – Veiðileyfi í Vesturbotni - Lúsasmit og heisufar villtra laxfiska á Vestfjörðum og Austfjörðum](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2207021/) [8.8. #2207023 – Könnun um innleiðingu hringrásarhagkerfis](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2207023/) [8.9. #2207022 – Ósk um umsögn - Aðalskipulag Reykhólahrepps](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2207022/) [8.10. #2207018 – Flutningur verkefna frá Bæjartúni hses. til Brákar hses.](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2207018/) [8.11. #2207026 – Innleiðing Heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2207026/) [8.12. #2207013 – Umsagnarbeiðni rekstrarleyfi til sölu gistingar - Bjarkarholt](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2207013/) [8.13. #2207001 – Fundargerðir nr. 910 og 911 stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2207001/) [8.14. #2203044 – Styrkvegir 2022 umsóknir](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2203044/) [8.15. #2207024 – Samráð á skipulagsstigi vegna samgangna](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2207024/) [8.16. #2203080 – Sorphirða Verkfundargerðir Verktaka og Verkkaupa](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2203080/) [8.17. #2207019 – Ketildalir, Arnarfirði. Framkvæmdaleyfi ljósleiðari og rafmagn.](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2207019/) [8.18. #2205025 – Aðalstræti 9 - umsókn um endurnýjun lóðarleigusamnings](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2205025/) [8.19. #2205026 – Aðalstræti 7 - umsókn um endurnýjun lóðarleigusamnings](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2205026/) [8.20. #2205024 – Dalbraut 1 - umsókn um byggingarleyfi](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2205024/) [8.21. #2204024 – Breyting á deiliskipulagi hafnarsvæðis á Patreksfirði](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2204024/) [8.22. #2201015 – Breyting á deiliskipulag ofanflóðagarða ofan Urða og Mýra á Patreksfirði og byggðar neðan þeirra](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2201015/) [8.23. #2104031 – Deiliskipulag Hafnarsvæðis á Bíldudal](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2104031/)
===
9.
===
Bæjarráð - 944
Lögð fram til kynningar fundargerð 944. fundar bæjarráðs, fundurinn var haldinn 4. ágúst 2022. Fundargerðin er í 5 liðum.
Til máls tók: Forseti
[9.1. #2205045 – Ráðning bæjarstjóra](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2205045/) [9.2. #2207017 – Húsfélagið Sigtún 57-67 Fundargerðir og fl.](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2207017/) [9.3. #2207031 – Drög að stefnu um verndun og rannsóknir á fornleifum og byggingararfi - Minnjastofnun Íslands](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2207031/) [9.4. #2207029 – Reglugerð um umferðarmerki og notkun þeirra - Iðnaðarráðuneytið](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2207029/) [9.5. #2207030 – Breytingar á starfsleyfi Arctic Sea Farm hf í Patreks- og Tálknafirði - Umhverfisstofnun](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2207030/)
===
10.
===
Skipulags og umhverfisráð - 96
Lögð fram til kynningar fundargerð 96. fundar skipulags- og umhverfisráðs, fundurinn var haldinn 11. júlí 2022. Fundargerðin er í 17 liðum.
Til máls tók: Forseti
[10.1. #2207019 – Ketildalir, Arnarfirði. Framkvæmdaleyfi ljósleiðari og rafmagn.](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2207019/) [10.2. #2110023 – Hóll, Bíldudal. Deiliskipulag Íbúabyggðar.](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2110023/) [10.3. #2207014 – Gilsbakki 1. Fyrirspurn bílskúr.](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2207014/) [10.4. #2207011 – Aðalstræti 133. Umsókn um lóð.](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2207011/) [10.5. #2207010 – Langholt 3. Umsókn um lóð.](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2207010/) [10.6. #2206011 – Urðargata 21 - umsókn um lóð.](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2206011/) [10.7. #2205061 – Umsókn um breytingu á sumarhúsi í íbúðarhúsnæði](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2205061/) [10.8. #2205033 – Strandgata 13. Fyrirspurn varðandi klæðningu](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2205033/) [10.9. #2110016 – Breyting á Aðalskipulagi ísafjarðarbæjar 2008-2020. Kynning á skipulagslýsingu -landfylling á Eyrinni, Ísafirði](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2110016/) [10.10. #2205025 – Aðalstræti 9 - umsókn um endurnýjun lóðarleigusamnings](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2205025/) [10.11. #2205026 – Aðalstræti 7 - umsókn um endurnýjun lóðarleigusamnings](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2205026/) [10.12. #2203081 – Strandsvæðaskipulag Vestfjarða](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2203081/) [10.13. #2205024 – Dalbraut 1 - umsókn um byggingarleyfi](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2205024/) [10.14. #2204024 – Breyting á deiliskipulagi hafnarsvæðis á Patreksfirði](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2204024/) [10.15. #2201015 – Breyting á deiliskipulag ofanflóðagarða ofan Urða og Mýra á Patreksfirði og byggðar neðan þeirra](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2201015/) [10.16. #2104031 – Deiliskipulag Hafnarsvæðis á Bíldudal](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2104031/) [10.17. #2207003 – Balar 2 - deiliskipulag](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2207003/)
===
11.
===
Hafna- og atvinnumálaráð - 40
Lögð fram til kynningar fundargerð 40. fundar hafna- og atvinnumálaráðs, fundurinn var haldinn 12. júlí 2022. Fundargerðin er í 8 liðum.
Til máls tók: Forseti
[11.1. #2104031 – Deiliskipulag Hafnarsvæðis á Bíldudal](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2104031/) [11.2. #2204024 – Breyting á deiliskipulagi hafnarsvæðis á Patreksfirði](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2204024/) [11.3. #2203081 – Strandsvæðaskipulag Vestfjarða](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2203081/) [11.4. #2202005 – Endurskoðun samgönguáætlunar](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2202005/) [11.5. #2207020 – Boðun á Hafnasambandsþing 2022, Ólafsvík.](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2207020/) [11.6. #2206044 – Reglur um styrki vegna fordæmisgefandi dómsmála - Hafnasamband íslands](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2206044/) [11.7. #2204030 – Fundargerð nr 443 - Hafnasambands Íslands](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2204030/) [11.8. #2206043 – Fundargerð 444 - stjórnar Hafnasambands Íslands](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2206043/)
===
12.
===
Fasteignir Vesturbyggðar - 79
Lögð fram til kynningar fundargerð 79. fundar fasteigna Vesturbyggðar, fundurinn var haldinn 20. júlí 2022. Fundargerðin er í 1 lið.
Til máls tók: Forseti
===
13.
===
Fræðslu- og æskulýðsráð - 79
Lögð fram til kynningar fundargerð 79. fundar fræðsluráðs, fundurinn var haldinn 9. ágúst 2022. Fundargerðin er í 2 liðum.
Til máls tók: Forseti
===
14.
===
Skipulags og umhverfisráð - 97
Lögð fram til kynningar fundargerð 97. fundar skipulags- og umhverfisráðs, fundurinn var haldinn 15. ágúst 2022. Fundargerðin er í 6 liðum.
Til máls tók: Forseti
[14.1. #2207025 – Notkun ásætuvarna á sjókvíar á vegum Arctic Sea Farm í Arnarfirði - Ósk um umsögn](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2207025/) [14.2. #2111056 – Þórsgata 4, framkvæmdir.](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2111056/) [14.3. #2208010 – Móberg, Rauðasandi - Endurheimt votlendis, framkvæmdaleyfi.](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2208010/) [14.4. #2207028 – Mikladalsvegur 5, umsókn um byggingaráform - geymsla.](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2207028/) [14.5. #2208012 – Eyrargata 5. Ósk um breytingu á deiliskipulagi hafnarsvæðis](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2208012/) [14.6. #2208013 – Brjánslækjarhöfn. Framkvæmdarleyfi, grjótgarður.](/stjornsysla/baejarstjorn-og-nefndir/fundargerdir/malsnumer/2208013/)
===
15.
===
Hafna- og atvinnumálaráð - 41
Lögð fram til kynningar fundargerð 41. fundar hafna- og atvinnumálaráðs, fundurinn var haldinn 15. ágúst 2022. Fundargerðin er í 2 liðum.
Til máls tók: Forseti
**Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:36**
Bæjarstjórn Vesturbyggðar kom saman til 373. fundar miðvikudaginn 17. ágúst kl. 17:00 eftir sumarfrí bæjarstjórnar. Fundurinn fór fram í Brellum, fundarsal bæjarstjórnar í Ráðhúsi Vesturbyggðar, Patreksfirði. Jón Árnason forseti bæjarstjórnar setti fundinn og kannaði hvort athugasemdir væru við fundarboðun. Svo var ekki.