Fjarðabyggð
Hafnarstjórn - 282
**1. 2108124 - Grænn orkugarður á Reyðarfirði**
|Kynningar tengdar Grænum orkugarði.|
Sief Andriopoulos, meistaranema í verkfræði við tækniháskólann í Delft, kynnti lokaverkefni sitt við skólann. Verkefnið ber heitið "Roadmapping the develpment of a green hydrogen industrial port complex - A case study in an Icelandic setting" og var unnið í samstarfi við Rotterdamhöfn með aðstoð Fjarðabyggðar.
Martijn Coopman og René van der Plas frá Rotterdamhöfn kynntu starfsemi sína og mismunandi möguleika á samstarfi milli hafnanna.
| |
__Gestir__
|Martijn Coopman - 09:00|
|Sief Andriopoulos - 09:00|
|Valgeir Ægir Ingólfsson - 09:00|
|René van der Plas - 09:00|
**2. 2207045 - Ósk um umsögn um strandsvæðisskipulag Austfjarða**
|Skipulagsstofnun hefur óskað eftir umsögn hafnarstjórnar á tillögu um strandsvæðisskipulag Austfjarða. Frestur til að skila inn umsögn er til 15.september næstkomandi. Hafnarstjórn felur hafnarstjóra og verkefnastjóra hafna að skrifa umsögn í samvinnu við skipulags- og umhverfisfulltrúa og leggja fyrir næsta fund.|
| |
__Gestir__
|Valgeir Ægir Ingólfsson - 10:45|
**3. 2207037 - Breyting á eldisfyrirkomulagi Fiskeldis Austfjarða í Fáskrúðsfirði**
|Skipulagsstofnun hefur óskað eftir umsögn vegna tilkynningar Fiskeldis Austfjarða hf. á breytingu á eldisfyrirkomulagi í Fáskrúðsfirði. Hafnarstjórn felur atvinnu- og þróunarstjóra að skila umsögn.|
| |
__Gestir__
|Valgeir Ægir Ingólfsson - 11:00|
**4. 2208096 - Sjávarútvegssýningin 2022**
|Sjávarútvegssýningin Iceland Fishing Expo 2022 verður haldin í Laugardalshöll 21.-23.september næstkomandi og verða Fjarðabyggðarhafnir með bás á sýningunni.|
| |
__Gestir__
|Þórður Vilberg Guðmundsson - 11:15|
|Valgeir Ægir Ingólfsson - 11:15|
**5. 2101071 - Fóðurprammi sekkur við Gripalda**
|Aðgerðir við að ná fóðurpramma Laxa Fiskeldis sem sökk við Gripalda upp af hafsbotni eru hafnar. Farið yfir verkáætlun og stöðu aðgerðanna.|
**6. 2208102 - Hafnarsvæðið á Fáskrúðsfirði**
|Óskir hafa komið frá Loðnuvinnslunni um breytingar á hafnarsvæðinu á Fáskrúðsfirði. Lögð fram forhönnun og kostnaðarmat þeirra breytinga. Hafnarstjórn felur hafnarstjóra og framkvæmdasviði að funda með Loðnuvinnslunni, vinna málið áfram og leggja fyrir aftur.|
**7. 2208101 - Bryggja við Olís í Neskaupstað**
|Lagt fram til bréf frá Olís varðandi bryggju við stöð fyrirtækisins í Neskaupstað. Hafnarstjórn samþykkir að Olís fjarlægi bryggjuna.|