Mosfellsbær
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 480
==== 26. ágúst 2022 kl. 11:00, ====
í Kjarna
== Fundinn sátu ==
- Árni Jón Sigfússon byggingarfulltrúi
- Þór Sigurþórsson
== Fundargerð ritaði ==
Árni Jón Sigfússon byggingarfulltrúi
== Dagskrá fundar ==
=== Almenn erindi ===
== 1. Akurholt 5 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi ==202207015
Kristinn Þór Runólfsson Akurholti 5 sækir um leyfi til að byggja úr timbri viðbyggingu við núverandi einbýlishús á lóðinni Akurholt nr. 5 í samræmi við framlögð gögn. Stækkun: 40,8 m², 118,3 m³.
Samþykkt. Niðurstaða afgreiðslufundar felur í sér samþykkt byggingaráforma í samræmi við 11. gr. laga um mannvirki nr. 160 / 2010. Óheimilt er að hefja framkvæmdir fyrr en byggingarfulltrúi hefur gefið út byggingarleyfi í samræmi við 13. gr. laga um mannvirki nr. 160 / 2010.
== 2. Hamrabrekkur 18 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi ==202208699
Júlíus Baldvin Helgason Langholtsvegi 67 Reykjavík sækir um leyfi til að byggja úr timbri viðbyggingu við núverandi frístundahús á lóðinni Hamrabrekkur nr. 18 í samræmi við framlögð gögn. Stækkun: 16,0 m², 53,4 m³.
Vísað til umsagnar skipulagsnefndar þar sem ekki er í gildi deiliskipulag á svæðinu.
== 3. Vefarastræti 2-6 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi ==202206344
Mosfellsbær Þverholti 2 sækir um leyfi til að byggja úr steinsteypu leikskólabyggingu á tveimur hæðum ásamt útigeymslum á lóðinni Vefarastræti nr. 2-6, í samræmi við framlögð gögn. Stærðir: 1.807,6 m², 7.438,7 m³.