Fjarðabyggð
Bæjarráð - 762
**1. 2208046 - Skólahald í Tónskóla Neskaupstaðar 2022-2023**
|Sviðsstjóri framkvæmdasviðs kynnti þær framkvæmdir og aðgerðir sem farið hefur verið í við endurbætur í Nesskóla. |
| |
__Gestir__
|Sviðsstjóri framkvæmdasviðs - 08:30|
**2. 2208153 - Fundur með sveitarstjórn Fljótsdalshrepps**
|Bæjarstjórn Fjarðabyggðar fundaði með sveitarstjórn Fljótsdalshrepps fimmtudaginn 25. ágúst sl. Á fundinum var rætt um ýmis sameiginleg hagsmunamál sveitarfélaganna s.s. varðandi orkuskipti, orkuöflun vegna þeirra og fleira. Fundurinn var afar gagnlegur og ákveðið var að framhald yrði á þessu samráði sveitarfélaganna, og mun bæjarstjórn Fjarðabyggðar bjóða sveitarstjórn Fljótsdalshrepps til fundar á næstunni þar sem þessi mál og frekari samvinna sveitarfélaganna verður rædd.|
Bæjarráð þakkar sveitarstjórn Fljótsdalshrepps fyrir góðar móttökur og gagnlegar umræður.
**3. 2205271 - Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2023 - 2026**
|Lagt fram minnisblað fjármálastjóra, drög að rammaúthlutun vegna fjárhagsáætlunar 2023 auk forsenda tekju- og gjaldaliða. Umræður um fyrstu drög að rammaúthlutun 2023. Vísað til áframhaldandi vinnu við fjárhagsáætlunargerð 2023 og tekið fyrir á næsta fundi bæjarráðs.|
**4. 2208146 - Rekstrarform Hitaveitu Fjarðabyggðar**
|Framlagt minnisblað frá KPMG um áhrif þess ef breyting verður gerð á bókhaldslegu rekstrarformi Hitaveitu Fjarðabyggðar með tilliti til skattaumhverfis opinberra orkufyrirtækja. Fjármálastjóra er falið að vinna málið áfram og málinu vísað til kynningar í mannvirkja- og veitunefnd.|
**5. 2208076 - Ársreikningur Eignarhaldsfélagsins Hrauns ehf fyrir árið 2021**
|Ársreikningur Eignarhaldsfélagsins Hrauns fyrir árið 2021 lagður fram til undirritunar.|
**6. 2109174 - Barnvænt sveitarfélag 2021-2022**
|Bæjarráð samþykkir að skipa Hjördísi Helgu Seljan Þóroddsdóttur og Þórdísi Mjöll Benediktsdóttur í stýrihóp um barnvænt sveitarfélag.|
**7. 2208117 - Umsókn um lóð Hrauntún 7-9**
|Lögð fram lóðarumsókn Róberts Óskars Sigurvaldasonar f.h. Búðinga ehf frá 23.8.2022 þar sem sótt er um lóð að Hrauntúni 7-9 á Breiðdalsvík fyrir parhús. Umsóknin kemur í kjölfar grenndarkynningar sem gerð var fyrr í ágúst. Umhverfis- og skipulagsnefnd hefur samþykkt lóðaúthlutunina fyrir sitt leyti.|
Bæjarráð samþykkir að úthluta lóðinni.
**8. 2207134 - Umsókn um lóð - 730 Hjallaleira21**
|Lögð fram lóðarumsókn Malbikunarstöðvar Austurlands frá 28.júli 2022 um lóð að Hjallaleiru 21, 730 Reyðarfirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd hefur samþykkt lóðaúthlutunina fyrir sitt leyti.|
Bæjarráð samþykkir að úthluta lóðinni.
**9. 2208027 - Umsókn um lóð Öldugata 730**
|Lögð fram lóðaumsókn frá RARIK vegna spennustöðvar við Öldugötu. Umhverfis- og skipulagsnefnd hefur samþykkt lóðaúthlutunina fyrir sitt leyti.|
Bæjarráð samþykkir að úthluta lóðinni.
**10. 2207091 - Umsókn um lóð - Daltún 9**
|Lögð fram lóðarumsókn Guðna Þórs Elíssonar frá 15. júlí 2022 um lóð fyrir iðnaðarhúsnæði að Daltúni 9 735 Eskifirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd hefur samþykkt lóðaúthlutunina fyrir sitt leyti.|
Bæjarráð samþykkir að úthluta lóðinni.
**11. 2208148 - Bréf frá Uxavog ehf vegna úthlutunar lóða við Sæbakka**
|Framlagt bréf frá Sigurði Steini Einarssyni f.h. Uxavogs ehf um úthlutun lóða við Sæbakka í Neskaupstað. Bæjarritara falið að svara erindinu og leggja tillögu að svari fyrir bæjarráð. |
**12. 2208114 - Tillögur umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins um nýtingu vindorku.**
|Framlagður tölvupóstur frá starfshópi umhverfis-, orku-, og loftlagsráðuneytis um nýtingu vindorku þar sem Fjarðabyggð er boðið að koma á framfæri sínum sjónarmiðum um þau málefni sem starfshópnum er ætlað að fjalla um. Atvinnu- og þróunarstjóra er falið að gera tillögu að svari við erindinu og kynna í bæjarráði.|
**13. 2208145 - Fundarboð Íbúasamtaka Breiðdælinga**
|Framlagður tölvupóstur frá íbúasamtökunum Breiðdælinga þar sem óskað er eftir fundi með bæjarstjórn. Bæjarstjóra falið að ræða við stjórn íbúasamtakana.|
**14. 2208013F - Hafnarstjórn - 282**
|Fundargerð Hafnarstjórnar frá 24. ágúst lögð fram til afgreiðslu.|
**14.1. 2108124 - Grænn orkugarður á Reyðarfirði**
**14.2. 2207045 - Ósk um umsögn um strandsvæðisskipulag Austfjarða**
**14.3. 2207037 - Breyting á eldisfyrirkomulagi Fiskeldis Austfjarða í Fáskrúðsfirði**
**14.4. 2208096 - Sjávarútvegssýningin 2022**
**14.5. 2101071 - Fóðurprammi sekkur við Gripalda**
**14.6. 2208102 - Hafnarsvæðið á Fáskrúðsfirði**
**14.7. 2208101 - Bryggja við Olís í Neskaupstað**
**15. 2208011F - Umhverfis- og skipulagsnefnd - 5**
|Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar frá 23. ágúst lögð fram til afgreiðslu|
**15.1. 2207045 - Ósk um umsögn um strandsvæðisskipulag Austfjarða**
**15.2. 2208038 - Strandgata 18a 740 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi**
**15.3. 2208037 - Strandgata 18b 740 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi**
**15.4. 2208039 - Strandgata 16 740 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi**
**15.5. 2208035 - Egilsbraut 6 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi**
**15.6. 2208018 - Grenndarkynning Hrauntún 3-5 og 7-13 raðhúsarlóð**
**15.7. 2208117 - Umsókn um lóð að Hrauntúni 7-9**
**15.8. 2207134 - Umsókn um lóð - 730 Hjallaleira21**
**15.9. 2208090 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi**
**15.10. 2208036 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi**
**15.11. 2208073 - Norðfjarðarflugvöllur**
**15.12. 2208027 - Umsókn um lóð Öldugata 730**
**15.13. 2207091 - Umsókn um lóð fyrir iðnaðarhúsnæði að Daltúni 9**
**15.14. 2208028 - Umsókn um lóð Heiðarvegur 730**
**16. 2208012F - Íþrótta- og tómstundanefnd - 103**
|Fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar frá 22. ágúst lögð fram til afgreiðslu|
**16.1. 2012116 - Fundaáætlun íþrótta- og tómstundanefndar haust 2022 og vor 2023**
**16.2. 2205097 - Starfs- og fjárhagsáætlun fræðslunefndar 2023**
**16.3. 2004159 - Fjölþætt heilsuefling fyrir eldri aldurshópa**
**17. 2208009F - Fræðslunefnd - 113**
|Fundargerð fræðslunefndar frá 17. ágúst lög fram til afgreiðslu|
**17.1. 2208048 - Fundaáætlun fræðslunefndar haustið 2022**
**17.2. 2205211 - Tæknidagur Fjölskyldunnar 2022**
**17.3. 2208046 - Skólahald í Tónskóla Neskaupstaðar 2022-2023**
**17.4. 2207054 - Íslenska æskulýðsrannsóknin - Fjarðabyggð**
**17.5. 2205097 - Starfs- og fjárhagsáætlun í fræðslumálum 2023**
**17.6. 2208060 - Skólabyrjun skólaársins 2022-2023**