Skagafjörður
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa
= Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa =
Dagskrá
=== 1.Borgarmýri 5 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi ===
2208171
Einar I. Ólafsson sækir f.h. Vinnuvéla Símonar ehf. um leyfi til að endurnýja hluta þakklæðninga og þakvirkis á iðnaðarhúsnæði sem stendur á lóðinni númer 5 við Borgarmýri. Framlagðir uppdrættir gerðir af Einari I. Ólafssyni verkfræðingi. Uppdrættir í verki B-001, blöð nr. 0, 1, 2 og 3, dagsett 26.04.2022. Erindið samþykkt, byggingarleyfi veit.
=== 2.Reykjarhóll lóð 146877 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi ===
2207183
Þórður Karl Gunnarsson sækir f.h. Magnúsar Eiríkssonar um leyfi til að byggja aðstöðuhús í landi Reykjarhóls lóð, L146877 í Fljótum. Framlagðir uppdrættir gerðir á Stoð ehf. verkfræðistofu af Þórði Karli Gunnarssyni byggingartæknifræðingi. Uppdrættir í verki 78891002, númer A-100 og A-101, dagsettir 13.07.2022. Erindið samþykkt, byggingarleyfi veitt.
=== 3.Brennigerði lóð 174760 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi ===
2208132
Þórður Karl Gunnarsson sækir f.h. Brennigerði ehf. um leyfi til að byggja gestahús við sumarhús sem stendur á lóðinni Brennigerði lóð, L174760. Framlagðir uppdrættir gerðir á Stoð ehf. verkfræðistofu af Þórði Karli Gunnarssyni byggingartæknifræðingi. Uppdrættir í verki 7142020, númer A-100 og A-101, dagsettir 16.08.2022. Erindið samþykkt, byggingarleyfi veitt.
=== 4.Reykjarhóll lóð 146062 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi ===
2208157
Helgi Hafliðason sækir f.h. Rarik ohf. um leyfi til að byggja við aðveitustöð Rarik á lóðinni Reykjarhóll lóð, L146062. Framlagðir aðaluppdrættir gerðir af Helga Hafliðasyni arkitekt. Uppdrættir í verki 22002, númer 0.01 og 0.02, dagsettir 26. ágúst 2022. Byggingaráform samþykkt.
=== 5.Hofsstaðasel land 179937 - Umsókn um byggingarleyfi. ===
2208223
Guðný Vésteinsdóttir og Þórólfur Sigjónsson sækja um leyfi til að setja niður frístundahús í landi Hofsstaðasels land, L179937. Húsið sem um ræðir er þegar byggt og stendur samkv. stöðu- og byggingarleyfi á jörðinni Hofsstaðasel, L146407. Framlagðir samþykktir aðaluppdrættir gerðir hjá Al-Hönnun ehf. af Runólfi Þór Sigurðssyni. Uppdrættir eru í verki 21-154, númer 101, 102 og 103, dagsettir í nóvember 2021, ásamt séruppdráttum gerðum af sama aðila. Einnig meðfylgjandi afstöðumynd gerð á Stoð ehf. verkfræðistofu af Birni Magnúsi Árnasyni. Afstöðumynd í verki 70670003, númer S01, dagsett 19. ágúst 2022. Erindið samþykkt, byggingarleyfi veitt.
=== 6.Hjaltastaðir 146301 - Umsókn um leyfi til niðurrifs mannvirkja. ===
2208275
Sæunn Kolbrún Þórólfsdóttir, Pétur Óli Þórólfsson, Helga Björg Þórólfsdóttir og Róbert Unnþórsson sækja um leyfi til að rífa eftirfarandi mannvirki á jörðinni Hjaltastöðum, L146301. Mathluta 08, 98 fermetrar fjárhús byggð árið 1977 og matshluta 13, 6,3 fermetra blásarahús byggt 1976. Erindið samþykkt, leyfi veitt.
=== 7.Bárustígur 1 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi ===
2208219
Ingvar Gýgjar Sigurðarson sækir f.h. Rakelar Kemp Guðnadóttur og Maríu Önnu Kemp Guðmundsdóttur um leyfi til að byggja við og breyta innangerð íbúðarhúss sem stendur á lóðinni númer 1 við Bárustíg. Verkinu verður áfangaskipt. 1. áfangi breytingar á innangerð. 2. áfangi viðbygging. Framlagðir aðaluppdrættir gerðir af Ingvari Gýgjar Sigurðarsyni tæknifræðingi. Uppdrættir í verki 3208, númer A-101, A-102 og A-103, dagsettir 22. ágúst 2022. Byggingaráform samþykkt.
Fundi slitið - kl. 09:30.