Mosfellsbær
Lýðræðis- og mannréttindanefnd - 28
==== 30. ágúst 2022 kl. 16:34, ====
2. hæð Helgafell
== Fundinn sátu ==
- Sævar Birgisson (SB) formaður
- Aldís Stefánsdóttir (AS) varaformaður
- Brynja Hlíf Hjaltadóttir aðalmaður
- Rúnar Már Jónatansson aðalmaður
- Anna Sigríður Guðnadóttir (ASG) vara áheyrnarfulltrúi
- Kristín Nanna Vilhelmsdóttir áheyrnarfulltrúi
- Arnar Jónsson
== Fundargerð ritaði ==
Arnar Jónsson forstöðumaður þjónustu- og samskiptadeildar
== Dagskrá fundar ==
=== Almenn erindi ===
== 1. Jafnréttisdagur Mosfellsbæjar 2022 ==202206381
Drög að dagskrá jafnréttisdags Mosfellsbæjar 2022.
Lýðræðis- og mannréttindanefnd þakkar fyrir kynningu á drögum að dagskrá jafnréttisdags Mosfellsbæjar 2022 og felur jafnréttisfulltrúa að vinna áfram í verkefninu fram að næsta fundi nefndarinnar.
== 2. Jafnréttisviðurkenning Mosfellsbæjar 2022 ==202208736
Tilnefningar til jafnréttisviðurkenningar Mosfellsbæjar 2022.
Lýðræðis- og mannréttindanefnd ræddi stöðu tilnefninga og samþykkir að fela starfsmanni nefndarinnar að kalla eftir frekari tilnefningum fram að 5. september.
== 3. Drög að starfsáætlun atvinnu- og nýsköpunarnefndar. ==202208735
Drög að starfsáætlun atvinnu- og nýsköpunarnefndar lögð fram til kynningar.
Lagt fram.