Dalabyggð
Fræðslunefnd Dalabyggðar - 112
|Jón Egill Jónsson, íþrótta- og tómstundafulltrúi situr fundinn undir dagskrárliðum 1 til 4.|
**1. 2205025 - Frístundaakstur**
|Búið að leggja könnun fyrir alla foreldra grunnskólabarna í ágúst 2022.|
Svarhlutfall var 82%
76% allra nemenda Auðarskóla sem telja sig munu nýta frístundaakstur.
Mikill meirihluti sem eru tilbúnir til að greiða fast gjald fyrir þjónustuna.
Ef til frístundaaksturs kemur þyrfti að skoða skipulag stundatöflu og heimferðir leikskólabarna.
Nefndin gerir tillögu um að Dalabyggð taki upp frístundaakstur og vísar málinu til sveitarstjórnar.
Samþykkt samhljóða.
Bréf til fræðslunefndar og byggðarráðs lagt fram til kynningar.
[bréf-til-fræðslunefndar-og-byggðaráðs - Ragnheiður Pálsdóttir - vegna frístundaaksturs.pdf](
displaydocument.aspx?
itemid=IDLu1RlwGE2iKg1nJhrCGA&meetingid=9OPx3DkoMUG0gBWRR3b4KA1)
[Samantekt á niðurstöðum úr könnun um frístundabíl.pdf](
displaydocument.aspx?
itemid=tpVw1YI3QU2CAEmhD0lmLQ&meetingid=9OPx3DkoMUG0gBWRR3b4KA1)
**2. 2207018 - Samstarfsverkefni Dalabyggðar, Reykhólahrepps og Strandabyggðar um tómstundastarf**
|Nefndin þakkar fyrir erindið.|
Íþrótta- og tómstundafulltrúa falið að vinna minnisblað vegna málsins og um mögulega útfærslu í samræmi við umræður á fundinum.
Samþykkt samhljóða.
**3. 2208009 - Grunnskólamál - haust 2022**
|Skólastjóri fer yfir skólastarf haustið 2022.|
84 nemendur við Auðarskóla í byrjun skólaárs.
Skoða þarf samspil skólastarfs og frístundaaksturs ef til hans kemur.
Ákalli um bætta lífsleiknikennslu hefur verið svarað.
Samþætting kennslu verður aukin.
Markmiðasetning verður hluti af skólastarfi.
Stefnt er að opnun á nýrri heimasíðu Auðarskóla 20. september nk.
Umræður um að settar verði reglur fyrir félagsmiðstöðina Hreysið í samvinnu við nemendur. Íþrótta- og tómstundafulltrúa falið að vinna að reglum fyrir næsta fund nefndarinnar.
Nefndin ræðir kynjaskiptingu í námi við Auðarskóla.
**4. 2208010 - Tómstundir - haust 2022**
|Íþrótta- og tómstundafulltrúi fer yfir drög að dagskrá íþrótta- og tómstundastarfs haustið 2022 og verkefnin framundan; vinaliðar, félagsmiðstöð, UDN, félagsstarf eldri borgara, tómstundabæklingur, ungmennaráð o.s.frv.|
[vetrardagskráin 2022 haust_uppfaert.pdf](
displaydocument.aspx?
itemid=7pFHmPGFgkmqMv1ixG_Gtw&meetingid=9OPx3DkoMUG0gBWRR3b4KA1)
|Linda Guðmundsdóttir, verkefnastjóri DalaAuðar kemur inn á fundinn í gegnum fjarfundabúnað.|
**5. 2202022 - Verkefnisstjórn fyrir Brothætta byggð**
|Linda fer yfir stöðu DalaAuðar, opnað verður fyrir umsóknir vegna verkefnisins um næstu mánaðarmót.|