Skagafjörður
Byggðarráð Skagafjarðar
= Byggðarráð Skagafjarðar =
Dagskrá
=== 1.Starfsemi FabLab í Skagafirði ===
2208315
Karitas Björnsdóttir verkefnastjóri FabLab Sauðárkróki, Gunnsteinn Björnsson stjórnarformaður Hátækniseturs Íslands ses og Ingileif Oddsdóttir skólameistari Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra komu á fund byggðarráðs til viðræðu um starfsemi og framtíð FabLab Sauðárkróki.
=== 2.Verklok Byggðasögu Skagafjarðar ===
2208195
Lögð fram greinargerð ásamt tillögum útgáfustjórnar Byggðasögu Skagafjarðar til stofnaðila ritverksins, dagsett 15. ágúst 2022.
Byggðarráð samþykkir að fela sveitarstjóra að óska eftir því að útgáfustjórn komi á fund ráðsins til viðræðu.
Byggðarráð samþykkir að fela sveitarstjóra að óska eftir því að útgáfustjórn komi á fund ráðsins til viðræðu.
=== 3.Starfshópur vegna nýtingu vindorku ===
2208214
Lagður fram til kynningar tölvupóstur dagsettur 23. ágúst 2022 til sveitarfélaga og samtaka þeirra frá skrifstofu landgæða hjá umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu. Starfshópur til að skoða og gera tillögur til umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins um nýtingu vindorku hefur tekið til starfa. Er sveitarfélögum sem viðtakendum þessa bréfs því boðið að senda sjónarmið sín um ofangreind atriði til starfshópsins í netfangið vindorka@urn.is. Einnig er gert ráð fyrir því að starfshópurinn fundi með hagaðilum síðar á þessu ári þar sem um gagnkvæmari samskipti verði að ræða. Þess er óskað að sjónarmið verði send skriflega í ofangreint netfang fyrir 30. september n.k.
Byggðarráð samþykkir að óska eftir afstöðu skipulagsnefndar til málsins.
Byggðarráð samþykkir að óska eftir afstöðu skipulagsnefndar til málsins.
=== 4.Umsókn um lækkun fasteignaskatts ===
2208240
Sjá trúnaðarbók.
=== 5.Fjárhags- og rekstrarupplýsingar 2022 ===
2208316
Lagðar fram fjárhagsupplýsingar vegna reksturs sveitarfélagsins tímabilið janúar-júní 2022.
=== 6.Fjárhagsáætlun Skagafjarðar 2023-2026 ===
2208220
Lagt fram til kynningar minnisblað Sigurðar Á. Snævarr sviðsstjóra hag- og upplýsingasviðs hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dagsett 23. ágúst 2022, varðandi forsendur fjárhagsáætlana 2023-2026.
Fundi slitið.