Seltjarnarnesbær
128. fundur skipulags- og umferðarnefndar
= Fundartími Skipulags- og umferðarnefnd 2022 =
| 20. janúar
|
3. febrúar
3. mars
7. apríl
5. maí
Stjórnsýsla
Hér er að finna fundargerðir skipulags- og mannvirkjanefndar frá þessu ári, raðað í tímaröð. Fundargerðir annarra ára er raðað eftir ártölum í hægri dálki: "Leitað eftir árum"
Skipulags- og umferðarnefnd
**128. fundur skipulags- og umferðarnefndar haldinn í fundarsal bæjarstjórnar Seltjarnarness, þriðjudaginn 6. september 2022, kl. 08:00.**
**Nefndarmenn:**
Svana Helen Björnsdóttir, formaður
Dagbjört Snjólaug Oddsdóttir, varaformaður
Örn Viðar Skúlason, aðalmaður
Karen María Jónsdóttir, aðalmaður
Guðmundur Ari Sigurjónsson, varamaður
**Starfsmaður:** María Björk Óskarsdóttir, sviðsstjóri þjónustu- og samskiptasviðs
**Fundargerð ritaði:** María Björk Óskarsdóttir, sviðsstjóri þjónustu- og samskiptasviðs.
**Dagskrá:**
**1. 2020040062 - Stefnumörkun varðandi gististarfsemi og gististaði fyrir íbúðabyggð**
Lagt fram minnisblað Alta, dagsett 2. september 2022, vegna breytinga á Aðalskipulagi Seltjarnarnesbæjar 2015-2033 varðandi takmarkanir á gistiþjónustu.
*Skipulags- og umferðarnefnd ræddi málið og var því frestað til næsta fundar.*
**2. 2022050350 - Deiliskipulag Valhúsahæðar og aðliggjandi útivistarsvæðis - breyting vegna Skólabrautar 12**
Lögð fram umsókn Helgu G. Vilmundardóttur, dagsett 30. maí 2022, um breytingu á deiliskipulagi Valhúsahæðar og aðliggjandi útivistarsvæðis, samþykkt í bæjarstjórn Seltjarnarnesbæjar 24. maí 2017. Í breytingunni felst að auka nýtingarhlutfall úr 0,42 í 0,47. Málið var áður á dagskrá 126. fundar skipulags- og umferðarnefndar, 21. júní 2022, þar sem málinu var frestað.
*Skipulags- og umferðarnefnd samþykkir að grenndarkynna tillöguna í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 fyrir íbúum Skólabrautar 3-5, 10 og 14 og Kirkjubrautar 9, 11 og 13. Vísað til staðfestingar í bæjarstjórn.*
**3. 2022090001 - Nesbali 36, umsókn um byggingarleyfi**
Lögð fram byggingarleyfisumsókn Pálmars Kristmundssonar fyrir hönd Sigríðar M. Harðardóttur og Guðbergs G. Erlendssonar, dagsett 1. september 2022, þar sem sótt er um breytingar frá áður samþykktum aðaluppdráttum.
*Skipulags- og umferðarnefnd frestar erindinu og felur byggingarfulltrúa að óska eftir frekari gögnum.*
**4. 2021060049 - Skólabraut 4 - Fyrirspurn um framkvæmdir**
Lagður fram tölvupóstur frá íbúum Skólabrautar 4, dagsettur 31. ágúst 2022, þar sem óskað er eftir fresti til að færa geymsluskúr á lóðamörkum Skólabrautar 4 og 6.
*Skipulags- og umferðarnefnd frestar erindinu og felur byggingarfulltrúa að vinna málið frekar.*
**5. 2022090026 - Umhverfisvottun Gróttubyggðar**
Lögð fram tillaga Samfylkingarinnar og óháðra um að deiliskipulag Gróttubyggðar fái BREEAM-umhverfisvottun. Verkefnið verði unnið í samráði við viðkomandi þróunarfélag, lóðarhafa, verktaka og önnur skipulagsyfirvöld eftir því sem við á. Leitað verði til sérfræðinga og verkfræðistofa til ráðgjafar og útfærslu.
*Skipulags- og umferðarnefnd frestar afgreiðslu tillögunnar en felur sviðstjóra skipulags- og umhverfissviðs að skoða málið nánar ásamt því að ræða við framkvæmdaaðilann.*
**6. 2022080251 - Umferðaröryggisáætlun Seltjarnarnesbæjar - endurskoðun 2022**
Lögð fram til endurskoðunar Umferðaröryggisáætlun Seltjarnarnesbæjar 2018-2022.
*Skipulags- og umferðarnefnd samþykkir að endurskoða umferðaröryggisáætlun Seltjarnarnesbæjar og felur sviðsstjóra að vinna áfram með málið.*
**7. 2022050299 - Nesvegur - hraðatakmarkandi aðgerðir Umræður um hraðatakmarkandi aðgerðir á Nesvegi.** *Skipulags- og umferðarnefnd felur sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs að láta setja upp hraðavaraskilti með hraðamælingu á Nesvegi.*
Bókun:
Fulltrúar Samfylkingar og óháðra samþykkja að setja upp hraðavaraskilti við Nesveg en teljum mikilvægt að unnið verði að frekari hraðatakmarkandi aðgerðum við Nesveg. Við malbikun á götunni voru fjarlægðar fjölbreyttar hraðatakmarkandi aðgerðir sem voru til staðar til að halda niðri umferðarhraða og auka umferðaröryggi. Brýnt er að hraðatakmarkandi aðgerðir byggi á áliti sérfræðinga.
Fundi slitið: 10.02
Næsti fundur verður 20. september 2022 kl. 8.00
Þetta vefsvæði
[byggir á Eplica](http://www.eplica.is/)