Skagafjörður
Byggðarráð Skagafjarðar
= Byggðarráð Skagafjarðar =
Dagskrá
=== 1.Freyjugötureitur - Deiliskipulag ===
2105267
Fulltrúi Hrafnhóls ehf. Sigurður Garðarsson tók þátt í fundinum með fjarfundabúnaði. Hann veitti upplýsingar um stöðu vinnu við deiliskipulag Freyjugötureits og framkvæmdir á reitnum af hálfu fyrirtækisins. Fyrirtækið stefnir að því að auglýsa átta íbúðir fjölbýlishússins til leigu um mánaðamótin september/október n.k.
=== 2.Innleiðing á farsældarlögum ===
2204179
Lögð fram drög að samningi um rekstur umdæmisráðs barnaverndar á landsvísu ásamt erindisbréfi fyrir valnefnd.
Byggðarráð telur að þjónusta sveitarfélagsins í málaflokki nýrra farsældarlaga verði best veitt með því að verða aðilar að umdæmisráði barnaverndar á landsvísu og felur sveitarstjóra að vinna að samþykki samnings þar að lútandi og leggja fyrir sveitarstjórn til endanlegrar samþykktar.

=== 3.Jarðhitaréttindi á Steinsstöðum ===
2011045
Lagt fram bréf dagsett 2. september 2022 frá Sunnu Axelsdóttur lögmanni hjá Lögmannsstofu Norðurlands fyrir hönd ábúenda Laugarmýrar, varðandi heitavatnsréttindi að Steinsstöðum hinum fornu. Óskað er meðal annars eftir upplýsingum um stöðu mála hjá sveitarfélaginu varðandi heitavatnsréttindin og fundi með byggðarráði og sveitarstjóra vegna málsins svo fljótt sem unnt er.
Byggðarráð felur sveitarstjóra og lögmanni sveitarfélagsins að taka saman upplýsingar og bjóða ábúendum Laugarmýrar til næsta fundar ráðsins.

=== 4.Skipan starfshóps um þjónustu við fólk af erlendum uppruna ===
2207070
Málið áður á dagskrá fundar byggðarráðs þann 13. júlí 2022. Lögð fram drög unnin af starfsmönnum fjölskyldusviðs um skipan starfshóps um þjónustu við fólk af erlendum uppruna og verkefnum hans.
Byggðarráð samþykkir skipan starfshópsins í samræmi við fyrirliggjandi drög og felur sveitarstjóra að ræða við hlutaðeigandi aðila og upplýsa byggðarráð í kjölfarið um framgang málsins.

=== 5.Ráðning aðgengisfulltrúa ===
2209033
Álfhildur Leifsdóttir leggur fram eftirfarandi tillögu:
"Samkvæmt samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks erum við skuldbundin til að "gera fötluðu fólki kleift að lifa sjálfstæðu lífi og taka fullan þátt á öllum sviðum lífsins [...] og útrýma hindrunum og tálmum sem hefta aðgengi, skulu meðal annars ná til bygginga, vega, samgangna og annarrar aðstöðu innan dyra sem utan, þar með talið skóla, íbúðarhúsnæðis, heilbrigðisþjónustu og vinnustaða."
Gott aðgengi skiptir okkur öllu máli, en slæmt aðgengi getur beinlínis komið í veg fyrir þátttöku fólks í samfélaginu. Skagafjörður er leiðandi sveitarfélag í málefnum fatlaðs fólks og er því mikilvægt að sveitarfélagið sé til fyrirmyndar hvað málefnið varðar í hvívetna.
VG og óháð leggja til Skagafjörður ráði aðgengisfulltrúa sem sér til þess að gerðar séu úttektir á aðgengi, þ.e. á þjónustu og starfsemi sveitarfélagsins í víðum skilningi. Leiði úttekt í ljós að úrbóta sé þörf hlutast aðgengisfulltrúi til um að gerðar séu tímasettar áætlanir um úrbætur."
Byggðarráð samþykkir að fela sveitarstjóra að óska eftir að Steinn Leó Sveinsson sviðsstjóri framkvæmda- og veitusviðs og jafnframt aðgengisfulltrúi sveitarfélagsins komi á fund byggðarráðs við fyrsta tækifæri til að upplýsa um stöðu mála. Byggðarráð samþykkir að fela sveitarstjóra að undirbúa að skipa að nýju fulltrúa í ráðgefandi hóp um aðgengismál í sveitarfélaginu.

=== 6.Fyrirspurn varðandi álagningarprósentu fasteignagjalda fyrir árið 2023 ===
2208335
Lagt fram bréf dagsett 29. ágúst 2022 frá Verslunarmannafélagi Skagafjarðar þar sem óskað er eftir upplýsingum um hvort ákvörðun hafi verið tekin um að lækka álagningarprósentu fasteignagjalda í sveitarfélaginu fyrir árið 2023 í ljósi þeirra miklu hækkana sem urðu á fasteignamati í sveitarfélaginu fyrr á árinu.
Byggðarráð skilur áhyggjur Verslunarmannafélags Skagafjarðar á hækkun fasteignagjalda en minnir á fasta tengingu við framlag Jöfnunarsjóðs við álagsprósentu fasteignaskatts, þ.e. framlag Jöfnunarsjóðs til sveitarfélagsins lækkar ef það fullnýtir ekki skattstofninn. Ljóst er að þetta fyrirkomulag þarfnast endurskoðunar við. Frekari umræða verður tekin í tengslum við vinnu vegna undirbúnings fjárhagsáætlunar ársins 2023.

=== 7.Grænir iðngarðar - greining innviða ===
2202080
Málið síðast á dagskrá byggðarráðs þann 24. ágúst 2022. Lögð fram lokaútgáfa af samantekt KPMG Ráðgjafar á "Grænum iðngörðum í Skagafirði".
=== 8.Samstarfsnefnd fyrir friðland í Þjórsárverum ===
2208248
Lagður fram tölvupóstur dagsettur 24. ágúst 2022 frá Umhverfisstofnun, þar sem óskað er eftir að sveitarfélagið skipi fulltrúa, til fjögurra ára, í samstarfsnefnd um friðland í Þjórsárverum.
Byggðarráð samþykkir að tilnefna Hrefnu Jóhannesdóttur og Svein F. Úlfarsson.

=== 9.Jafnaðartaxtar NPA samninga fyrir árið 2022 ===
2208030
Lögð fram greiðsluviðmið vegna jafnaðarstunda í NPA samningum fyrir árið 2022 sem samþykkt voru á 2. fundi félagsmála- og tómstundanefndar þann 8. ágúst 2022 og vísað til byggðarráðs.
Byggðarráð samþykkir greiðsluviðmiðin og vísar þeim til afgreiðslu sveitarstjórnar.

=== 10.Samþykkt um stjórn og fundarsköp Skagafjarðar ===
2206198
Lögð fram samþykkt um stjórn Skagafjarðar.
Byggðarráð samþykkir samþykktina og vísar henni til fyrri umræðu í sveitarstjórn.

=== 11.Reglur um úthlutun lóða ===
2208274
Lagðar fram reglur um úthlutun byggingarlóða í sveitarfélaginu Skagafirði.
Byggðarráð samþykkir reglurnar og vísar þeim til afgreiðslu sveitarstjórnar.

=== 12.Reglur um útnefningu heiðursborgara ===
2208235
Lagðar fram reglur um val og útnefningu heiðursborgara Skagafjarðar.
Byggðarráð samþykkir reglurnar og vísar þeim til afgreiðslu sveitarstjórnar.
Byggðarráð samþykkir reglurnar og vísar þeim til afgreiðslu sveitarstjórnar.
=== 13.Jafnlaunastefna ===
2208230
Lögð fram jafnlaunastefna Skagafjarðar.
Byggðarráð samþykkir stefnuna og vísar henni til afgreiðslu sveitarstjórnar.

=== 14.Reglur um heilsurækt ===
2208254
Lagðar fram reglur Skagafjarðar um heilsuræktarstyrki til starfsmanna sinna fyrir árið 2022.
Byggðarráð samþykkir framlagðar reglur og vísar þeim til afgreiðslu sveitarstjórnar.

=== 15.Reglur um skjávinnugleraugu ===
2208262
Lagðar fram reglur um kaup á skjávinnugleraugum.
Byggðarráð samþykkir framangreindar reglur og vísar þeim til afgreiðslu sveitarstjórnar.

=== 16.Siðareglur starfsmanna ===
2208263
Lagðar fram siðareglur starfsmanna Skagafjarðar.
Byggðarráð samþykkir ofangreindar siðareglur og vísar þeim til afgreiðslu sveitarstjórnar.

=== 17.Reglur um viðveruskráningu starfsmanna ===
2208265
Lagðar fram reglur um viðveruskráningu starfsmanna sveitarfélagsins.
Byggðarráð samþykkir framangreindar reglur og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar.

=== 18.Rammi að samkomulagi um samræmda móttöku flóttafólks ===
2208314
Lagt fram bréf dagsett 26. ágúst 2022 frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga til allra sveitarfélaga, varðandi ramma að samkomulagi um samræmda móttöku flóttafólks.
=== 19.Tækifæri til áhrifa Ráðstefna UNICEF um þátttöku barna ===
2209015
Lagður fram til kynningar tölvupóstur dagsettur 1. september 2022 frá UNICEF á Íslandi varðandi tækifæri til áhrifa: Ráðstefna UNICEF um þátttöku barna þann 15. september 2022. Boðið verður upp á fjölbreyttar málstofur sem tengjast þátttöku barna í starfi sveitarfélaga, skóla og frístundavettvangsins. Þá geta þátttakendur valið milli þriggja mál- og vinnustofa um mikilvægi réttindafræðslu og þátttöku barna í starfi sveitarfélaga.
Fundi slitið - kl. 16:27.