Mosfellsbær
Fræðslunefnd Mosfellsbæjar - 409
==== 7. september 2022 kl. 16:30, ====
2. hæð Helgafell
== Fundinn sátu ==
- Aldís Stefánsdóttir (ASt) formaður
- Sævar Birgisson (SB) varaformaður
- Elín María Jónsdóttir (EMJ) aðalmaður
- Hjörtur Örn Arnarson (HÖA) aðalmaður
- Elín Eiríksdóttir varamaður
- Elín Anna Gísladóttir (EAG) áheyrnarfulltrúi
- Dagný Kristinsdóttir (DK) áheyrnarfulltrúi
- Freyja Leópoldsdóttir (FL) áheyrnarfulltrúi
- Rósa Ingvarsdóttir áheyrnarfulltrúi
- Guðrún Helga Kristjánsdóttir áheyrnarfulltrúi
- Guðbjörg Linda Udengard (LU) framkvæmdastjóri fræðslusviðs
- Gunnhildur María Sæmundsdóttir skólafulltrúi
== Fundargerð ritaði ==
Gunnhildur Sæmundsdóttir skólafulltrúi
== Dagskrá fundar ==
=== Almenn erindi ===
== 1. Fjöldi barna í leik- og grunnskólum Mosfellsbæjar 2022-23 ==202209019
Lagt fram til kynningar.
Lagðar fram tölulegar upplýsingar um fjölda leik- og grunnskólabarna í upphafi skólaársins 2022-23. Í leikskólum Mosfellsbæjar verða 817 börn í vetur og 1847 nemendur í grunnskólum. Auk þeirra stunda 59 börn úr Mosfellsbæ nám í sérskóla eða í sjálfstætt starfandi skólum á höfuðborgarsvæðinu. Öll börn fædd 2020 eða fyrr eru komin með leikskólapláss.
== 2. Skólaþjónusta 2021 - 22 ==202209076
Yfirlit frá fræðslu- og frístundasviði um skólaþjónustu Mosfellsbæjar, skólaárið 2021-22. Lagt fram til kynningar.
== 3. Starfsáætlanir leikskóla 2022 - 2023 ==202209075
Starfsáætlun Huldubergs lögð fram til kynningar og staðfestingar.
Starfsáætlun leikskólans Huldubergs staðfest með fimm atkvæðum.
== 4. Starfsáætlun fræðslunefndar 2022 - 2026 ==202208560
Lokadrög að starfsáætlun fræðslunefndar 2022 - 2023 lögð fram.
Starfsáætlun fræðslunefndar 2022-23 lögð fram.
== 5. Ytra mat á grunnskólum - Lágafellsskóli ==201511031
Bréf frá Mennta- og barnamálaráðuneyti - eftirfylgd með úttekt á Lágafellsskóla, lagt fram til kynningar.
Lagt fram bréf frá Mennta- og barnamálaráðuneytinu um að eftirfylgni á ytra mati Lágafellsskóla sé lokið.