Snæfellsbær
Velferðarnefnd – 12. fundur
Velferðarnefnd Snæfellsbæjar
12. fundur
29. júní 2022 í Ráðhúsi Snæfellsbæjar frá kl. 18:00 – 18:40
**Fundinn sátu**: Jón Kristinn, Patryk Zolobow, Kolbrún Ósk, Dagbjört Dúna og Sigrún Erla. **Fundargerð ritaði**: Sigrún Erla
==== Dagskrá: ====
**1. Kosning formanns**
Lilja, bæjarritari, setti fundinn og lagði til að Sigrún verði formaður. Samþykkt. Lilja vék af fundi.
**2. Rætt um fundarritara**
Þar sem 2/5 þeirra sem sitja fundinn eru varamenn var ákveðið að bíða með skipun ritara þar til á næsta fundi.
**3. Rétt um bréf frá Tómasi Péturssyni**
Rætt var um bréf sem nefndinni barst í vor frá Tómasi Péturssyni um rannsókn hans í MS verkefni um fjármálalæsi 10. bekkinga. Tómas óskaði eftir leyfi frá nefndinni til að framkvæma rannsóknina í GSNB. Allir samþykkir að veita honum leyfi.
**4. Önnur mál**
Sigrún greindi frá fundi með Hilmari skólastjóra í síðustu viku þar sem hann var að sækja um undanþágutr til að ráða leiðbeinendur í stöður kennara eftir að hafa auglýst þær, en enginn með kennararréttindi sótti um. Hilmar þurfti undirskrift frá nefndinni við umsóknina