Grindavíkurbær
Fræðslunefnd - Fundur 122
**122. fundur Fræðslunefndar haldinn í bæjarstjórnarsal, fimmtudaginn 1. september 2022 og hófst hann kl. 16:30.**
**Fundinn sátu:** Vilhjálmur Ragnar Kristjánsson, formaður, Eva Lind Matthíasdóttir, varaformaður, Eva Rún Barðadóttir, aðalmaður, Birgitta Rán Friðfinnsdóttir, aðalmaður, Snædís Ósk Guðjónsdóttir, aðalmaður, Fríða Egilsdóttir, leikskólastjóri, Hulda Jóhannsdóttir, leikskólastjóri, Guðlaug Björk Klemensdóttir, áheyrnarfulltrúi, Helga Rut Hallgrímsdóttir, áheyrnarfulltrúi. **Fundargerð ritaði:** Jóhanna Lilja Birgisdóttir, Deildarstjóri skólaþjónustu. **Dagskrá:**
**1. Ytra mat á skólastofnunum og skólaþjónustu Grindavíkurbæjar - 2110118**
Sigurlína Jónsdóttir, leikskóla- og daggæslufulltrúi sat undir þessum dagskrárlið.
Áætlun um ytra mat sveitarfélags á öllum skólastofnunum sem tilheyra stafssviði fræðslunefndar lögð fram til kynningar fyrir nýrri nefnd.
**2. Reglur um inntöku í leikskóla - 2208149**
Sigurlína Jónsdóttir, leikskóla- og daggæslufulltrúi sat undir þessum dagskrárlið.
Drög af uppfærðum breytingu á reglum um inntöku barna í leikskóla lögð fram til kynningar. Stjórnendur leikskóla lögðu fram til kynningar breytingar um skráningu vistunartíma barna. Breytingin felur það í sér að ef forsjáaðili breytir vistunartíma barns verður sú breyting að gilda í minnst þrjá mánuði í senn. Fræðslunefnd felur skólaþjónustu að fullvinna fyrirhugaðar breytingar á reglunum og frestar afgreiðslu til októberfundar.
**3. Ytra mat Heilsuleikskólinn Krókur - 2208146**
Sigurlína Jónsdóttir, leikskóla- og daggæslufulltrúi sat undir þessum dagskrárlið.
Lögð fram tillaga að áætlun um framkvæmd ytra mats á Heilsuleikskólanum Króki 2023. Leikskólinn fór síðast í ytra mat á vegum ráðuneytisins árið 2003. Grindavíkurbær hefur ítrekað sent beiðni til menntamálastofnunar um gerð ytra mats á Heilsuleikskólanum Króki. Menntamálastofnun hefur ekki reynst unnt að verða við umsóknum Grindavíkurbæjar. Ytra mat á skólastarfi er lögbundin skylda sveitarfélaga og ráðuneytis, en ráðuneyti úthýsti því verkefni til Menntamálastofnunnar 2013. Samstarfsverkefni ríkis og sveitarfélaga um ytra mat á grunnskólanum hófst 2013 og lauk í lok árs 2021. Þátttöku jöfnunarsjóðs er lokið og samkomulag um nýjan matshring Menntamálastofnunar og sveitarfélaga hefur ekki verið endurnýjað. Lagt er til að Grindavíkurbær sjái sjálfur um heildstætt ytra mat á starfsemi leikskólans, velji matsaðila og fjármagni að fullu. Fræðslunefnd felur skólaþjónustu og formanni fræðslunefndar að afla nánari upplýsinga um kostnaðaráætlun og mögulega úttektaraðila.
**4. Starfsáætlun Heilsuleikskólans Króks 2022-2023 - 2208143**
Skólastjóri leggur fram starfsáætlun fyrir skólaárið 2022-2023. Fræðslunefnd frestar afgreiðslu til októberfundar.
**5. Starfsáætlun Lautar 2022-2023 - 2208142**
Skólastjóri leggur fram starfsáætlun fyrir skólaárið 2022-2023. Fræðslunefnd frestar afgreiðslu til októberfundar.
**6. Áherslur í fjárhagsáætlun 2023 - 2208147**
Rætt um áherslur í fjárhagsáætlun leikskólanna fyrir fjárhagsárið 2023. Fræðslunefnd leggur áherslu á mikilvægi þess að ljúka við viðgerðum á loftræstikerfi leikskólans Lautar. Einnig þarf að endurnýja stóla leikskólans. Gera þarf endurbætur á útisvæðum leikskólanna.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:40.
Fræðslunefnd / 13. september 2022
[Fundur 122](/v/25974)
Frístunda- og menningarnefnd / 8. september 2022
[Fundur 118](/v/25963)
Bæjarráð / 7. september 2022
[Fundur1620](/v/25962)
Skipulagsnefnd / 6. september 2022
[Fundur 105](/v/25959)
Fræðslunefnd / 5. september 2022
[Fundur 121](/v/25957)
Bæjarstjórn / 31. ágúst 2022
[Fundur 530](/v/25951)
Frístunda- og menningarnefnd / 29. ágúst 2022
[Fundur 117](/v/25948)
Skipulagsnefnd / 29. ágúst 2022
[Fundur 104](/v/25946)
Bæjarráð / 24. ágúst 2022
[Fundur 1619](/v/25943)
Bæjarráð / 17. ágúst 2022
[Fundur 1618](/v/25935)
Bæjarráð / 27. júlí 2022
[Fundur 1617](/v/25915)
Skipulagsnefnd / 13. júlí 2022
[Fundur 103](/v/25905)
Bæjarráð / 13. júlí 2022
[Fundur 1616](/v/25904)
Hafnarstjórn / 12. júlí 2022
[Fundur 483](/v/25903)
Bæjarráð / 6. júlí 2022
[Fundur 1615](/v/25898)
Fræðslunefnd / 4. júlí 2022
[Fundur 120](/v/25896)
Frístunda- og menningarnefnd / 29. júní 2022
[Fundur 116](/v/25889)
Bæjarráð / 29. júní 2022
[Fundur 1614](/v/25888)
Bæjarráð / 24. júní 2022
[Fundur 1613](/v/25876)
Skipulagsnefnd / 24. júní 2022
[Fundur 102](/v/25874)
Bæjarráð / 15. júní 2022
[Fundur 1612](/v/25865)
Bæjarstjórn / 8. júní 2022
[Fundur 529](/v/25839)
Bæjarráð / 25. maí 2022
[Fundur 1611](/v/25805)
Fræðslunefnd / 24. maí 2022
[Fundur 119](/v/25804)