Snæfellsbær
Menningarnefnd – 212. fundur
Menningarnefnd Snæfellsbæjar
212. fundur
23. ágúst 2022
**Fundinn sátu**: Ingunn Ýr Angantýsdóttir, Helga Jóhannsdóttir, Hafdís Rán Brynjarsdóttir, Arnór Ísfjörð Guðmundsson og Marsibil Katrín Guðmundsdóttir. **Fundargerð ritaði**: Helga Jóhannsdóttir
==== Dagskrá: ====
**1. Styrkveiting vegna miðnætursunds**
Í byrjun ágúst var styrkur var veittur fyrir miðnætursund í Ólafsvík að upphæð 150.000 kr. Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi óskaði eftir styrknum.
**2. Jólatónleikar**
Hugmyndir af tónlistarmönnum ræddar fram og til baka, upp komu nöfn eins og: Sigurður Guðmundsson, GÓSS, Guðrún Árný, Friðrik Ómar, Hera, KK og Ellen, Stefán Hilmars. Hugmynd um að hafa samband við Baggalút og láta fólk borga sig inn á tónleika.
**3. Dagsetning jólaviðburða**
Hugmynd rædd um að hafa jólaþorp og jólatónleika sömu helgina og jafnvel stíla inn á sömu og helgi og kveikt yrði á jólatréinu. Fá upplýsingar hjá Kristfríði Rós um nánari dagsetningu á því. Hugmynd um að hafa jólaþorp á efri hæð REKS.
**4. Barnamenningarhátíð** **4. Menningarstefna Snæfellsbæjar**
Þörf er á skýrari sýn á starfssemi nefndarinnar. Leggjum til að bæjarstjórnin útbúi menningarstefnu Snæfellsbæjar. Safnamál bæjarins eru óljós – rætt var um að setja upp málverkasýningu á málverkum í eigu Snæfellsbæjar, jafnvel í samstarfi við fólkið sem keypti Blómsturvelli eða Hvítahúsið hjá Elvu Hreiðars.
**4. Næsti fundur**
Dagsetning næsta fundar ákveðin 13. september 2022 kl. 14:00.