Svalbarðsstrandarhreppur
Umhverfis & Atvinnumálanefnd
**Dagskrá:**
|
|
**1. ** |
|
**Í upphafi kjörtímabils - 2209005**
|
||
|
Farið yfir dagskrá vetrarins, fundardagar fram að áramótum ákveðnir og erindisbréf kynnt fyrir nefndarfólki.
|
||
|
*Formaður umhverfis- og atvinnumála býður nýja nefnd velkomna. Erindisbréf nefndarinnar lagt fram til kynningar. Fundardagsetningar fram að áramótum ákveðnar. *
Umhverfis- og atvinnumálanefnd stefnir að því að funda eftirtalda daga:
20. október og 17. nóvember.
|
||
|
*Samþykkt*
|
|
|
||
|
|
|
**2. ** |
|
**Verkefni sumarsins 2022 - opin svæði - 2204009**
|
||
|
Farið verkefni sumarsins í Svalbarðsstrandarhreppi og stöðu þeirra.
|
||
|
*Lagt fram til kynningar.*
|
||
|
*Samþykkt*
|
|
|
||
|
|
|
**3. ** |
|
**2022 Vinnuskóli - 2203007**
|
||
|
Vinnuskóli Svalbarðsstrandarhrepps hefur lokið störfum í ár. Farið verður yfir hvernig sumarið gekk.
|
||
|
*Farið yfir störf vinnuskólans í sumar. Færri krakkar sóttu um að koma í vinnuskólann í ár en síðustu ár. Erfitt var að sinna skylduverkefnum vegna manneklu. *
Umhverfis - og atvinnumálanefnd beinir því til sveitarstjórnar að gera ráð fyrir ráðningu eldri starfsmanna til að sinna verkefnum vinnuskólans 2023 í fjárhagsáætlunargerð. Einnig hvetur umhverfis- og atvinnumálanefnd til þess að gefnar verði umsagnir vegna starfa í vinnuskólanum.
|
||
|
*Samþykkt*
|
|
|
||
|
|
|
**4. ** |
|
**Umhverfisviðurkenning 2021 - 2202009**
|
||
|
*Skjöldur sem til stóð að veita þeim sem hlutu viðurkenningu vegna umhverfisverðlauna 2021 hefur enn ekki verið afhentur. Umhverfis- og atvinnumálanefnd felur skrifstofustjóra að klára þá vinnu. *
|
||
|
*Samþykkt*
|
|
|
||
|
|
|
**5. ** |
|
**Fjárhagsáætlun 2023-2026 - 2208014**
|
||
|
Farið yfir áherslur umhverfis- og atvinnumálanefndar fyrir fjárhagsáætlunarvinnu.
|
||
|
*Umhverfis- og atvinnumálanefnd fer fram á að umhverfis- og loftlagsstefna Svalbarðsstrandarhrepps verði höfð til hliðsjónar við þá fjárhagsáætlunarvinnu sem er að hefjast. *
|
||
|
*Samþykkt*
|
|
|
||
|
|
|
**6. ** |
|
**Sorpmál í Svalbarðsstrandarhreppi - 1407215**
|
||
|
Skrifstofustjóri kynnir vinnu nefndar á vegum SSNE um innleiðingu hringrásarkerfisins. Einnig verður farið fyrir töluleg gögn sorphirðu í Svalbarðsstrandarhreppi.
|
||
|
*Ljóst er að miklar breytingar í sorphirðumálum eru framundan samkvæmt drögum að skýrslu um svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs á norðurlandi. Umhverfis- og atvinnumálanefnd ræddi mögulegar hugmyndir um breytingar á sorphirðu í anda Hringrásarhagkerfisins. *
|
||
|
*Samþykkt*
|
|
|
||
|
|
|
**7. ** |
|
**Atvinnumál í sveitarfélaginu. - 2209006**
|
||
|
*Lagt fram til kynningar.*
|
||
|
*Samþykkt*
|
|
|
||
|
** **
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:30.