Borgarbyggð
Umhverfis- og landbúnaðarnefnd - 37. fundur
= Umhverfis- og landbúnaðarnefnd =
Dagskrá
Dagbjört Diljá yfirgaf fundinn kl. 15:50.
=== 1.Skógur í Varmalandi - Erindi frá Hollvinafélagi Varmalands ===
2203170
Framlögð uppfærð drög að samningi við Hollvinafélag Varmalands vegna umsjónar með skógi á Varmalandi.
Umhverfis-og landbúnaðarnefnd samþykkir samninginn þeim breytingum sem gerðar voru á fundinum.
Endanlegri afgreiðslu vísað til sveitarstjórnar.
Endanlegri afgreiðslu vísað til sveitarstjórnar.
=== 2.Umhverfisviðurkenningar 2022 ===
2206070
Farið yfir tilnefningar til umhverfisviðurkenninga.
Umhverfis- og landbúnaðarnefnd samþykkir að fela dómnefnd að fara yfir innsendar tilnefningar og að umhverfisviðurkenningar verði veittar í október.
=== 3.Erindi um hundagerði á Hvanneyri ===
2206234
Óskað hefur verið eftir afstöðu og tillögu að staðsetningu frá landeiganda vegna erindis er varðar uppsetningu hundagerðis á Hvanneyri.
Afgreiðslu erindis frestað, þar sem afstaða landeiganda liggur ekki fyrir.
=== 4.Söfnun brotajárns ofl. 2022 ===
2209015
Framlagðar upplýsingar um niðurstöðu verðfyrirspurnar vegna söfnunar brotajárns í dreifbýli ásamt tillögu að tímasetningum á hreinsunarátaki í dreifbýli haustið 2022.
Samið hefur verið við Hringrás um söfnun brotajárns og fleiri úrgangsflokka á grundvelli verðfyrirspurnar. Átakið hefur verið auglýst á heimasíðu sveitarfélagsins og í prentmiðli. Skráningarfrestur er til 5. október.
Lagt er til að gámar fyrir timbur og grófan úrgang verði settir út sem hér segir:
18.-25.okt: Bæjarsveit, Brautartunga, Bjarnastaðir, Síðumúli
27.-1.nóv: Lyngbrekka, Lindartunga, Eyrin við Bjarnadalsá, Högnastaðir
Lagt er til að gámar fyrir timbur og grófan úrgang verði settir út sem hér segir:
18.-25.okt: Bæjarsveit, Brautartunga, Bjarnastaðir, Síðumúli
27.-1.nóv: Lyngbrekka, Lindartunga, Eyrin við Bjarnadalsá, Högnastaðir
=== 5.Verkefni vegna innleiðingar hringrásarkerfis ===
2111023
Lagðar fram upplýsingar um stöðu verkefnisins.
Lagt fram
=== 6.Fyrirkomulag snjómoksturs ===
1908004
Bókun Byggðráðs á 609. fundi ráðsins þann 22. september 2022: "Byggðarráð vísar umræðu um snjómokstur í dreifbýli til umræðu í umhverfis- og landbúnaðarnefnd."
Umhverfis- og landbúnaðarnefnd leggur til að gerðar verði breytingar á fyrirkomulagi snjómoksturs í dreifbýli. Nefndin felur deildarstjóra að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundinum.
=== 7.Deild Umhverfis-og framkvæmdamála skýrsla september 2022 ===
2209106
Farið yfir helstu verkefni sem hafa verið á döfinni í umhverfis-og framkvæmdadeild.
Lagt fram.
Fundi slitið - kl. 16:50.