Hvalfjarðarsveit
Fræðslunefnd 43. fundur
= Fræðslunefnd =
Dagskrá
=== 1.Starfsáætlun Skýjaborgar 2022-2023 ===
2209029
Starfsáætlun 2022-2023 - drög.
Fræðslunefnd staðfestir starfsáætlun Skýjaborgar fyrir skólaárið 2022-2023.
=== 2.Starfsáætlun Heiðarskóla 2022-2023 ===
2209028
Starfsáætlun 2022-2023 - drög.
Fræðslunefnd staðfestir starfsáætlun Heiðarskóla fyrir skólaárið 2022-2023.
=== 3.Frístundastefna - viljayfirlýsing ===
2204059
Frístundastefna.
Fræðslunefnd leggur til við sveitarstjórn að skipaður verði starfshópur um gerð frístundastefnu Hvalfjarðarsveitar og að hann verði skipaður fulltrúum úr grunnskóla, leikskóla, nemendaráði, ungmennaráði, frístunda- og menningarfulltrúa auk fulltrúa úr fræðslunefnd og fjölskyldu- og frístundanefnd.
=== 4.Vor - og haustfrístund 2022 ===
2203040
Samantekt á Vor- og haustfrístund.
Fræðslunefnd þakkar öllum þeim starfsmönnum sem komu að vor- og haustfrístund fyrir sveigjanleika og vel unnin störf. Nefndin óskar eftir því að frístunda- og menningarfulltrúi í samstarfi við skólastjóra geri umbótaáætlun eftir reynsluna í sumar svo hægt sé að sníða af vankanta fyrir sumarfrístundarstarfið 2023.
=== 5.Ársskýrsla Leik- og grunnskóla Hvalfjarðarsveitar 2021-2022 ===
2209030
Kynning á ársskýrslu Leik- og grunnskóla Hvalfjarðarsveitar.
Fræðslunefnd þakkar skólastjórnendum fyrir góða kynningu á vandaðri og yfirgripsmikilli ársskýrslu Leik- og grunnskóla Hvalfjarðarsveitar fyrir skólaárið 2021-2022.
=== 6.Miðstöð skólaþróunar-stjórnun-kennsluráðgjöf og starfsþróun ===
2208034
Tillögur að verkefnum byggðar á yfirlitsrýni.
Fræðslunefnd fór yfir fyrstu drög að áætlun um samstarf sveitarfélagið við Miðstöð skólaþróunar við Háskólann á Akureyri.
=== 7.Lógó Leik- og grunnskóla Hvalfjarðarsveitar ===
2203037
Vorið 2022 féllst sveitarstjórn á að verja fjármagni í hönnun nýs kennimerkis fyrir Leik- og grunnskóla Hvalfjarðarsveitar. Samið var við Önnu Kristínu Ólafsdóttur og mun sú vinna hefjast á næstu vikum og verður unnin í góðu samstarfi við nefndina.
=== 8.Markmið þróunarverkefnisins - Snemmtæk íhlutun - Málþroski og læsi ===
2209027
Fara yfir markmið þróunarverkefnisins.
Lagt fram til kynningar. Fræðslunefnd fagnar þátttöku leikskólans í þessu metnaðarfulla og mikilvæga verkefni.
=== 9.Innleiðing laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna. ===
2208023
Staða á innleiðingu laga í þágu farsældar barna.
Fræðslunefnd telur mikilvægt að hefja vinnu við innleiðingu laga um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna og að hún verði unnin frá upphafi í góðu samstarfi allra þeirra er koma að málefnum barna í Hvalfjarðarsveit.
=== 10.Leikskólahúsnæði - þarfagreining 2022 ===
2202016
Vinnuhópur um þarfagreiningu leikskólahúsnæðis leggur fram minnisblað á næsta fundir nefndarinnar.
=== 11.Samstarfs- og málefnasamningur sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar. ===
2208042
Fara yfir Samstarfs- og málefnasamning sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar.
Lagt fram til kynningar. Fræðslunefnd fagnar áherslum sveitarstjórnar í fræðslumálum fyrir kjörtímabilið.
=== 12.Siðareglur kjörinna fulltrúa í sveitarstjórn, nefndum og ráðum á vegum Hvalfjarðarsveitar. ===
1409019
Lagt fram til kynningar. Fundarmenn skrifa undir siðarreglur kjörinna fulltrúa í sveitarstjórn, nefndum og ráðum á vegum Hvalfjarðarsveitar.
Fundi slitið - kl. 18:30.